Tónlistin - 01.06.1946, Blaðsíða 5

Tónlistin - 01.06.1946, Blaðsíða 5
TÓNLISTIN 3 þess ekki getið, að móðir hans jjyríti framar að telj a um fyrir lion- um. Þessi þjóðsaga er i rauninni ósk- mynd af islenzkum tónlistarmanni. Og jafnframt hirtir hún áður út- breidda og enn viðloðandi skoðun, að tónlist sé „fögur list en mögur.“ Merkilegust eru samt hin athyglis- verðu tvítengsl, sem sagan leiðir mönnum fyrir hugskotssjónir. Gáf- ur Björns liafa þróazt í einrúmi, þar til útþráin knýr liann til þess að leita út undan lágri skarsúð bað- stofunnar. Kraftur dvalarstöðvanna reynist samt ekki nægilega uppi- stöðurikur til að móta tilverukjark lians og lífsgetu, ferill hans er að verpast sandi umkomuleysis og ör- vænis meðan móðir hans berst þol- lausri baráttu við vofu fátæktar- innar. Arftekin og óhagnýt list- lineigð snillimennskunnar er annar þáttur þessara sálarlegu tvítengsla. Hinn þátturinn er aftur á móti of- inn úr ítursterku trafi hins raun- veruþrungna dægurlífs. Raun- hyggja móðurinnar finnur, að drengurinn þarfnast traustrar kjöl- festu, og prestinum tekst um síðir að vekja hann til öruggrar stefnu og lierða hug lians í hinum óárennileg- ustu og geigvænlegustu þolraunum. Þessi þáttur leiðir svo til hinnar mestu farsældar. Tvítengslin hafa lieppnazt. Tvennir eðliskraftar liafa náð að leysast úr djúpfylgsnum sál- arinnar og sameinast i heilsteyptri vitund andlega fullveðja manns. Samlíkingin með Bach og Brahms annarsvegar og Fiðlu-Birni ])jóð- sögunnar hinsvegar sýnist furðu nærtæk, þegar meta skal verk hins hljómandi tóns frá hendi þess manns, er opnað hefir hlustir allra þeirra íslendinga, sem ekki liafa dauflieyrzt við hinu þelhreina og hlíðmálga kalli fósturfoldarinnar, rödd Sigvalda Kaldalóns. Hinn raunliæfi meistari í lífsins list, Bach, og liinn tilfinningaríki djúphyggju- maður, Brahms, sameinast að vissu leyti i lýsingunni á Fiðlu-Birni. Frumorka listneistans er heizluð af kröfunni um skynsamlegt samræmi milli listar og lífs. Einhliða ofmat á öðrum þætti tvítengslanna aðeins getur hæglega valdið misræmi til ófarnaðar. Þó má ekki ganga fram hjá þeirri staðreynd, að enda þótt Bacli væri máske fyrst og fremst sanntrúaður lögmálsdýrkandi og Brahms einkum og sér í lagi heit- lynd tilfinningahetja, þá höfðu þeir háðir lært að rata mundangshófið milli höfuðs og hjarta. Báðir höfðu sett tilfinningu sína undir mæliker skynseminnar og öðlazt þar fulltingi lögmálsins á misjafnlega háu stigi. Hjá Bach verður það ríkjandi en hjá Brahms víkjandi. Þjóðsagan lætur Fiðlu-Björn líka rata hinn gullna meðalveg affarasældarinn- ar. Hann glatar ekki sjálfsvirðingu sinni í draumsæknu hugarvingli um fánýtt hrosshár og skorpnaðar katt- argarnir, heldur varðveitir náðar- gjöf sína óskerta með stæltu starfi liins vinnandi manns og skapar þar- með hin óumflýjanlegu tvítengsl — jafnvægi milli anda og athafnar. En nú vill svo til, að við þurfum hvorki að lita suður til landa inn í lígulegar skrauthallir, þar sem er-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tónlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.