Tónlistin - 01.06.1946, Síða 10

Tónlistin - 01.06.1946, Síða 10
8 TÖNLISTIN J3éla Uarlól: Þjóðkyn og þjóðlög. Béla Bartók, höfundur greinar þeirrar, sem hér fer á eftir, er eitt helzta tónskáld nútímans. Hann fæddist árið 1881 i Ungvcrjalandi, stundaði nám við tón- listarliáskólann í Budapest og varð kenn- ari þar árið 1907. Snemma tók liann að kanna þjóðlög föðurlands síns og ann- arra nágrannaþjóða, og höfðu þau kynni mikil áhrif á tónsmiði hans. Skipta þjóð- lög þau, er hann safnaði og skrásetti, mörgum þúsundum, og varð hann einn mesti fræðimaður i þeirri grein, enda var hann oft fenginn til þess að flytja fyrir- lestra um það efni. Bartók skilur milli þjóðlaga þeirra, sem upp eru runnin með- al bændafólks í Ungverjalandi, oft mjög forneskjulegra, og svonefndra ungverskra þjóðlaga, sem hann teiur „ungversk“ að- eins í landfræðilegum skilningi. Þjóðlaga- útsetningar Bartóks eru taldar til þess bezta sem þekkist á því sviði. Frægastur er hann samt fyrir frumsamdar tónsmið- ar sinar, sem eru margar. Aðaleinkenni þeirra er formfesta, meitluð hrynjandi og þjóðlegur blær. Þær eru lausar við tilfinn- ingasemi, kaldhamraðar og heilsteyptar Árið 1939 fluttist hann vestur um haf til Bandarikjanna og andaðist þar i sept- ember 1945. Á síðustu tímum er mikiö rætt um hreina og blandaða kynþáttu mannkynsins. Liggja venjulega til þess stjórnmálalegar orsakir, og gætir þá oft þeirrar skoðunar, að koma beri i veg fyrir kynblöndun, jafnvel með lögum. Þeir, sem halda þessu eða hinu fram, bafa að lik- indum — eða ættu að minnsta kosti að bafa — kynnt sér þessi mál til hlitar, eytt árum i rannsóknir á op- inberum beimildum þar að lútandi eða safnað staðreyndum af eigin rammleik. Þar sem ég liefi bvorugt gert, sé ég mér varla fært að taka ákveðna afstöðu með eða móti, enda vafa- samur réttur minn til þess. Hinsveg- ar befi ég um margra ára skeiö kannað eitt fyrirbrigði mannlifsins, og það mikilvægt í augum vissra draumóramanna, sem venjulega kallast þjóðlagasafnarar, en það er tónlist, sem til er orðin ineðal al- þýðunnar, einkurn bændafólks. Og einmitt nú þegar deilurnar um kyn- þáttamál standa sem hæst, er máske tímabært að varpa fram þessari spurningu: Hvort er „kynblöndun“ jijóðlaga til góðs eða ills? (Orðið kyn á bér auðvitað við tónlistina sjálfa, en ekki þá, sem hana skapa, varðveita eða flytja.) Aðalrannsóknasvæði mitt var Austur-Evrópa. Og þar sem ég er Ungverji, sneri ég mér fyrst að lög- um minnar eigin þjóðar, en brátt kom röðin að nágrannalöndunum. Slóvakiu, tTkrainu og Rúmeniu. Það bar við, að ég seildist lengra —jafn- vel til Norður-Afriku og Litin-Asíu — í þvi skyni að afla mér viðtæk- ari þekkingar. En auk þessara beinu rannsókna á staðnum, liefi ég óbeint kvnnzt mörgu úr söfnum annarra manna. Ég furðaði mig þegar i unnbafi á binni gífurlegu fiölbreytni laptep- undanna í Austur-Evrónu, og undr- un min óx bvi meir sem éir kann- aðí fleira. Ef tekið er tillit U1 ho<s<;. bve blutfallslega fámennar bióðir bessar eru — um 40—50 mWÍGnv'

x

Tónlistin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.