Tónlistin - 01.06.1946, Page 15

Tónlistin - 01.06.1946, Page 15
TÓNLISTIN 13 sjálfsdáðum stund á tónfræði, inn- ritaðist sem lögfræðistúdent við liá- sKólann i Helsingfors, en tók sam- tímis þátt i námskeiðum við tón- listax-skólann. Kennari lians þar var Martin Wegelius, traustur en hefð- hundinn lærifaðir og mikill aðdá- andi Wagners. Hinsvegar aðhyllt- isl nemandinn Grieg og Tschaikow- sky. Sibelius tók burtfararpróf i tón- smíði frá tónlistarskólanuní með svítu fyrir strokhljómsveit í A-dúr og strokkvartett í a-moll, sem ujjp- færð voru 1889 og lilutu lofsamlega dóma lijá hezta tónlistargagnrýn- anda Finna, Carl Flodin. I lok þessa árs liélt Sibeíius til Berlín með 1500 marka ríkisstyrk. Þar tók liann stranga tíma í kontrapunkti og fúgu hjá mjög þekktum tónfræðingi þýzkum, Albert Becker. Þaðan lagði liann leið sína til Wien, þar seni liann stundaði tónsmíði og hljóð- færaskipun (instrumentation) lijá arftáka Bralmis, Robert Fuchs. Síð- ar naut hann einnig leiðsagnar lijá Carl Goldmark, sem sýndi honum fram á nauðsyn þess að skrifa ork- esturmúsík öðruvísi en kammer- músík. Goldmark var þá æðsta ráð í skapandi tónlist, næst á eftir Brahms og Bruckner, þótt nú sé hann flestum gleymdur. Hans Ricli- ter, liinn kunni óperustjórnandi, hafði ráðlagt Sihelius að sækja fund þessa slóttuga fésýslumanns eftir að Busoni árangurslaust hafði reynt að veita lionum áheyrn lijá Bralims. Goldmark gaf sér tíma til að leið- beina Sihelius, sem liann nefndi um- yrðalaust „skrítinn fugl“. Söngur hinna norðlægu skóga hefir eflaust ómað kynlega fyrir glaumfylltum eyrum borgarinnar. Nú loks var Sibelius farinn að sætta sig við hinn þurra og misk- unnarlausa skóla tónfræðinnar. Hann skildi, að liandverkið var lyk- ill að vel mótaðri liugsun. Án kunn- áttu var liugsunín ófleyg og andinn linepptur i fjötra hiks og úrræða- leyis, og þvi til áréttingar segir hann: „Nú virðist mér þjálfun i tónsmíðatækni jafn nauðsynleg fyr- ir tónskáldið og æfing í lil'færafræði fyrir skurðlækninn.“ Þó þyrmdi yf- ir liann uggvænlegur leiði, er liann hrauzt um í böhdum fúgunnar: „Ég gat ekki varizt þeirri hugsún, að ég líktist manni, sem væri að grafa upp heinagrindur liðinna tíma.“ En hann lauk uppgreftrinum. Öll sin námsár hafði Sibelius sam- ið allmörg tónverk, sem jafnóðum höfðu verið flutt í Finnlandi og fengið einlægar viðtökur, t. d. pianó- kvintett í g-moll og oktett fyrir fíautu, klarínettu og strokhljóðfæri. En enn hafði liann ekki gert neitl hljómsveitarverk, sem staðfesti full- komlega sjálfstæðan stil. Baráttan milli skóla Brahms og Wagners stóð sem hæst um það leyti, er hann dvaldi i Wien, en Sibelius lét liana afskiptalausa og tók enga afstöðu, enda hafði tónlist þeirra engin úr- slitaáhrif á hann. Hann þráði öllu heldur að hverfa úr háreysti stór- horganna og komast heim til Finn- lands. Þar gat hann fundið sjálfan sig, þar var hlóð hans, beinmergur og hjarta. Ættjarðarástin svall i barmi hans og jafnframt áköf löng- un til þess að hrinda hinu rússneska

x

Tónlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.