Tónlistin - 01.06.1946, Page 23
TÓNLISTIN
21
hefir þegar komizt langt í cellóleik.
Margir hafa numið hjá kennurum
skólans tónfræði og kontrapunkt
og hafa þvi sjálfir verið færir um
að klæða tónsmíðar sinar í viðeig-
andi búning. Hafa sumir vakið á
sér athygli, meira að segja fyrir
frumsamin tónverk á sviði hljóð-
færalistarinnar, eins og Karl 0. Run-
ólfsson, Helgi Pálsson, Árni Björns-
son, Jón Nordal o. fl. En það er
alkunnugt, að kunnáttuleysi í tón-
fræði hefir háð mörgum mannin-
um, sem annars hefði getað gert
vel, og óneitanlega er það leiðin-
legt fyrir tónskáld, að þurfa að fara
i smiðju til annarra með raddsetn-
ingu á lögum sínum. Því að sá, sem
raddsetur lag, setur ávallt fingra-
för sín á það.
Skólinn hefir gert ágætum ís-
lenzkum tónlistarmönnum kleift að
starfa hér í Reykjavik og beita
kröftum sínum, mönnum eins og
Páli ísólfssyni, sem verið hefir
skólastjórinn frá byrjun og unnið
hefir liér ágætt brautryðjandastarf,
siðan Árna Kristjánssyni og Rirni
Ólafssyni og nú síðast Rögnvaldi
Sigurjónssyni, sem án þessa skóla
mundu hafa orðið að setjast að er-
lendis. Ennfremur befir skólinn
flutt hingað heim duglega menn frá
útlöndum, eins og dr. Mixa, dr. Ur-
bantschitsch og dr. Edelstein, og án
starfs þeirra hefði orðið vonlaust
að leggja liér grundvöll að fjöl-
breyttu tónlistarlífi. 1 sambandi við
skólann hefir verið komið upp furðu
eóðri strengjasveit og siðast strok-
kvartett. Mun það verk að mestu
að þakka fiðlukennara skólans,
Birni Ólafssyni, sem sýnt hefir í
starfi sínu svo mikinn áhuga með
þessu, að Tónlistarfélagið sá ástæðu
til að sýna honum sérstaklega við-
urkenningu fyrir það. Loks hefir
skólinn starfrækt hérblandaðan kór,
sem nú nefnist Samkór Tónlistar-
skólans, og hefir hann með aðstoð
hljómsveitar skólans sungið mörg
stórverk, svo sem alkunnugt er og
vikið verður nánar að hér á eftir.
Ennfremur læra nú um 50—60 hörn
að leika á blokkflautu og lesa nót-
ur, svo að þau geta sungið eftir
þeim, og væri æskilegt að slík að-
ferð væri viðhöfð við söngkennslu
i barnaskólum landsins.
Tónlistarfélagið hefir jafnan sett
markið liátt og vandað val kenn-
ara sem bezt má verða. Nemend-
urnir hafa borið kennslunni í skól-
anum fagurt vitni. Ekki þarf ann-
að en að sækja nemendatónleika
skólans til að sannfærast um það.
Margir þeir, sem i skólanum hafa
numið, hafa síðan dreifzt um byggð-
ir landsins og orðið virkir kraftar
í sönglífinu bver á sinum stað. Það
má og nokkuð marka árangurinn
af starfi skólans af því, að áður en
hann tók til starfa, voru það nær
eingöngu útlendingar, sem héldu
uppi hljómleikum á veitingastöðum
borgarinnar. Nú eru það eingöngu
tslendingar, sem það gera, og eftír
þcirri reynslu, sem fengizt hefir.
mvndi engum koma til huear að
sækia bliómleikara til útlanda i
bessu skvni. Oö svo mikil brpvtinrr
hefir orðið á Hliómsveit Rpvkín-rríir.
ur frá bv? sem hún var n«nv
hún er orðin svo mikln ti“kí r>-