Tónlistin - 01.06.1946, Qupperneq 35

Tónlistin - 01.06.1946, Qupperneq 35
TÓNLISTIN 33 Söngfélögin, sem ég hefi starfaÖ í, eru orðin allmörg. Mikil var vinnan og fyrirhöfnin viÖ allar æfingarnar. Þetta er samanlagt orÖinn langur timi í íimmtiu og fimm ár. Þrettán fyrstu árin söng ég kauplaust í kirkjukórnum. Svo varð kaupið tólf krónur á mánuði. Seinna bað ég um þriggja króna launahækkun en fékk það ekki. Þá hætti ég um tíma en byrj- aði aftur. Brynjólfur Þorláksson var söngstjóri á sögulegasta „konsertinum“, sem ég man eftir. Hann var alltaf mikill smekkmaður og lista-stjórnandi. Við vorurn alls sextán, sem sungum þar sam- an í karlakór, og höfðum „viskí“ bak við tjöldin í Gúttó til að mýkja okkur. Þetta var rétt um lokin. Öll skipin voru inni, mikið af norskum og færeyskum skipum. Við sungum m. a. „Sjömanden" og feng- um dynjandi lófaklapp. Þegar söngurinn var úti, „marséruðum“ við niður í gegn- um Bryggjuhúsið og sungum „Sjöman- den“ út yfir höfnina, en sjómennirnir úti á skipunum klöppuðu og hrópuðu af fögnuði. Þá var líf og fjör. Þá var bær- inn eins og eitt heimili. Þeir gera það ekki núna. Nú er allt orðið svo fínt, allt orðið eintómir flokkadrættir og innilokun. Fyrsta söngfélagið, sem ég var í, hét „Svanurinn“, sem Þorsteinn Jónsson stjórnaði. Hann kenndi með fiðlu, bráð- músíkalskur maður, alveg sjálfmenntað- ur, allt náttúrugáfa. Hann var inndæll maður. En' elskulegasti söngstjóri, sem ég hefi þekkt, er hinn hjartanlega músík- alski Jón Haíldórsson. Einu sinni sagði Sigfús Einarsson við mig: „Ef þú hefðir siglt, Gísli, þá hefðir þú orðið Caruso nr. I og hinn nr. 2.“ Svo sagði hann ekki meira. — Ég er guði þakklátur fyrir allt, sem liðið er, það yfirstandandi og það ókomna. Ég veit ekki, hvort ég hefði haft nokkuð gott af þessum lærdómi. Það verður allt svo „mekanískt“ hjá þessum útlærðu. Það er eins og það vanti eitt- hvað af andanum í röddina. Maður á að syngja eins og fugl af fögnuði, þrá og eðlishvöt. I gamla daga fórum við í skemmtiferð- ir með Reykjavíkinni gömlu. Ég stóð fyr- ir því. Við fórum ekki nema_ ve.ður væri gott. Þá voru drifnar upp auglýsingar á götuhornunum snernma á morgnana, lagt af stað kl. io og farið upp á Akranes eða eitthvað þessháttar. Þá spiluðum við á lúðrana til kl. 4 eða 5 á eftirmiðdögun- um. Og þá var byrjað að syngja og sung- ið alltaf þangað til við komum heim k 2—3 um nóttina. Það var sú mesta „ópera“, sem ég hefi tekið þátt í, þetta tiu klukkustundir í einum rykk, —- og svo að hafa blásið á lúðrana 6—7 tíma fyrst. En þetta var ekki nema einstaka dag. Svo heyrðist ekki hljóð úr horni lengi á milli. Annað nú, síðan útvarpið kom, nú er þessi sífelldi sveljandi á hvers manns heimili alla daga. Það liggur við, að ég sé farinn að þreytast á því. Ann- ars finnst mér ég alltaf vera sama barn- ið er ég var, þegar ég söng sjö ára á Geirstúni fyrir Vesturbæinn, — einkum þegar ég hugsa um vorið. En maður gef- ur sér sjaldan tima til þess. Alltaf er stöðugt annríki.. En þó er vinnan í sjálfu sér það einasta, sem dugar, það einasta, sem maður þráir og saknar, ef maður verður án hennar. Og kannske er það þessi eilífa þjónusta, sem heldur manni í skefjum." Svo fórust hinum sjötuga alþýðusöngv- ara orð. Ummæli hans eru opinská og drengileg eins og títt er um sanna lista- menn í hjarta. „Tónlistin“ tekur undir hinar mörgu árnaðaróskir Gísla til handa, ])akkar honum af heilhug dáðríka þátt- töku í sönglífi landsins og biður honum góðs farnaðar á ókominni ævileið. Gerðu þér far um — jafnvel þótt þú aðeins hafir litla rödd — að syngja hljóð- færislaust frá blaðinu; þá mun næm- leiki heyrnar ])innar ávallt aukast. En ef þú hefir hljómmikla rödd, láttu þá ekkcrt tækifæri ónotað til þess að þroska bana íkoðaðu hana sem þá fegurstu gjöf, er forsjónin hefir veitt þér! Schumann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tónlistin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.