Tónlistin - 01.06.1946, Síða 49
TÓNLISTIN
-17
Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari
fimmtugur
Þórarinn Guðmundsson fiÖluleikari
lagÖi ungur út á braut tónlistarinnar. FaÖ-
ir hans, Guðmundur Jakobsson,hinn mesti
völundarsmiður, var sérlega skynugur og
áhugasamur um allt, er að fiðluspili laut,
enda var hann fyrsti nútíma fiðlusmið-
urinn, sem ísland eignaðizt. Kornungur
fór Þórarinn utan til náms í fiðluleik,
ásamt bróður sínum Eggert, og nam
íþrótt sína á tónlistarskóla Kaupmanna-
hafnar. Var það þá algjör nýlunda, að
ungir menn helguðu sig hljóðfæraleik.
Meira þótti þá um vert, að verzlunin
yrði öflugur innlendur rekstur og fiski-
flotinn færði út kvíarnar. En maðurinn
lifir þó ekki á einu saman brauði. í
rauninni voru hin veraldlegu afkomuskil-
yrði bætt, til þess að siðar reyndist kleift
að fegra mannlífið og auka því ásmeg-
in. Tónlist hafði Islendingum lengst af
verið sem lokuð bók. Öll þeirra áreynsla
á sviði andans hafði beinzt að orðsins
list. Tónninn vakti því hina mestu undr-
un og hvassa eftirtekt, þá loks hann tók
að berast um grundir Islandsbyggðar.
Þórarinn Guðmundsson, sem nú getur
litið yfir fimmtíu ára skeið ævi sinnar,
varð einn af hinum fyrstu til þess að
bæra boga hinnar fjórstrengjuðu gígju
nútímans og opna hlustir manna fyrir
mætti kindargarnanna og hrosshársins,
eins og hann birtist í endurlausn tón-
listarmannsins. Frumbýlingsár söngdís-
arinnar eiga Þórarni margt að þakka.
Hann hefir strokið tónana léttilega úr
sínu innanholaða og smávaxna tréhljóð-
færi og tekið til uppfósturs marga ný-
sveina og unnendur tóngyðjunnar og lát-
ið þeim vaxa fyrstu flugfjaðrirnar —
nógu margar til þess, að þeir gætu flog-
ið til frekara náms. Álitlegur hópur nem-
cnda hans getur í dag minnzt þeirra
ánægjustunda, er þeir fyrst fóru að draga
bogann í viðurvist þolinmóðs kennara,
þreifa sig áfram á hinu hála og viðsjála
gripbretti og teygja fingurna upp í hættu-
lega háa handstöðu. Þeir þakka honum
leiðsögn bernskuáranna og óska honum
þess af heilum hug, að enn megi hinn
síungi fiðluleikari verja kröftum sínum
til þess að stuðla að vaxandi þroska
íslenzkra tónlistarmanna.
Tónþraut
1. Hvað er tónn?
2. Að hvaða leyti er tónninn C sér-
staklega þýðingarmikill ?
3. Greinið í stuttu máli frá nótnaskrift
að fornu og nýju.
4. Nefnið minnst fimm mismunandi
lykla og greinið frá legu þeirra.
5. Hver er munur á dúrstiga og moll-
stiga (harmónískum) frá sama tóni ?
6. Hvaða dúrtóntegundir hafa 4 krossa
og 4 bé, og hvaða tóntegundir eru
sammarka þeim?
7. Skrifið heiti nótnanna í Fís-dúr.
8. Hvað heitir kirkjutóntegundin frá
g—g?
9. Nefnið þrjú mikilvægustu sæti tón-
stigans.
10. Hvaða tónar eru samhljóða (enhar-
mónískir) við: 1) aís, 2) fís, 3)
eís, 4) c, 5) es?
11. Myndið eftirfarandi tónbil: a) stóra
þríund frá d, b) hreina ferund frá
f, c) litla sexund frá es, d) stóra
sjöund frá gís, e) minnkaða fimm-
und frá e, f) stækkaða tvíund frá g.
12. Nefnið: a) helztu einkenni í tón-
list miðalda, b) 3 klassísk tónskáld
og 4 rómantísk.
Þessar spurningar eru ætlaðar til gagns
og gamans þeim, sem ánægju hafa af að
velta fyrir sér undirstöðuatriðum tón-
menntar. Úrlausnir mega sendast til rits-
ins í póstliólf 121 til leiðréttingar, og
verða þær þá sendar aftur um hæl. —
Svörin birtast svo í næsta hefti ritsins.