blaðið - 21.01.2006, Side 24

blaðið - 21.01.2006, Side 24
24 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 blaöið Blaðið/SteinarHugi vm WJk Æ pfe f 'L i F "Ff Wm/* tamm/ ■11ItB ffif J ss 5MÖgjj „Tónlistin er aðaltjáningarform mitt, þar liggur slagæðin, en ég skrifa líka mikið fyrir sjálfan mig, bæði prósa og ljóð,“ segir Bubbi Morthens sem er þessa dagana að skrifa bók ásamt Jóni Atla Jónassyni en vill ekkert láta uppi um efni hennar að svó stöddu. Þú ert haldinn skrifhlindu, háði hún þér tnjög þegar þú varst barn eða átti hún kannski þátt í því að beina þér inn á tónlistarbrautina? „Það var hrein martröð að glíma við skrifblinduna en þegar upp var staðið fólst í því ákveðinn sigur. Þegar einhver fyrirstaða er þá er ekki óalgengt að áin finni sér aðra leið til sjávar. Þannig var það með mig. Ég fann tónlist og bækur. Ég varð snemma hraðlæs og las allt sem ég komst í hvort sem það var Kaupmaðurinn í Feneyjum, Tarzan, Vesalingarnir eða Maður- inn sem hlær. Annað hvort þóttu mér bækur skemmtilegar eða leiðin- legar. Annað hvort hrífa hlutir mig eða ekki og ég er óhræddur við að segja að mér hafi leiðst eitthvað. Ég sé engan tilgang í að lesa bók sem nær ekki til mín. Það hefur komið fyrir að ég hafi lesið slíkar bækur af skyldurækni sem gerir mér ekki gott því ég er ekki fær um að lesa lengi á eftir. Bókmenntalega verður mér óglatt og ég er mjög snöggur að sjá hvort bækur eru þannig að þær tali til mín eða ekki. Ég las fyrir skömmu Yosoy eftir Guðrúnu Evu. Ég hlakkaði allan daginn til að fara heim, leggjast undir feld og lesa. Þegar slíkt gerist finnur maður þvílík gersemi bókin getur verið og hvað heimur hennar er undursamlegur. Strax á eftir las ég Skugga vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón og fann fyrir sömu gleði og undrun. Þegar maður rankar við sér þar sem maður er farinn að hrópa upphátt eða nota unglinga- frasa eins og „Yes!“ í miðjum lestri þá er mikið undur á ferð. Ég er mjög agaður, sofna snemma og vakna snemma en ég missti tök á þessu öllu og las Guðrúnu Evu til fimm á morgnana og gekk um gólf. Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að þegar ég las Skugga vindsins þá talaði ég til Guðs og þakkaði fyrir að hafa haldið hæfileikanum til að lesa.“ Lífsþyrstur maður Hrífstu af fólki á sama hátt og þú hrífst aflistaverkum? „Já og þar koma litir við sögu. Ég sé allt í litum og upplifi allt í litum. Bókin hennar Guðrúnar Evu var mjög gul meðan Skuggi vindsins hafði grænan og brúnan lit og einnig var rautt í henni. Eins er með fólk. Ég hitti fólk og sé liti. Ef mér líka litirnir, ef það eru ekki harðir, vondir, grimmir litir, þá tek ég þeim manneskjum vel. Ég treysti algjörlega á þennan hæfileika í samskiptum við fólk. Ég hélt lengi að allir væru svona og það eru ekki mörg ár síðan ég var í rannsókn uppi á Grensásdeild hjá konu sem heitir María og hún sagði mér að þessi eiginleiki væri þekktur, hefði nafn og til væru bækur um hann.“ r v. --------------------------------------------------------------------------\ Sjóntækjafræðingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga Endumýjar þú gleraugun eða langar þig bara í ný? Vaxtalaus kjör í allt að 24 mánuði engin útborgun Suðurlandsbraut50, (bláu húsunum við Faxafen Sími: 568 1800 þín nógu oft GleraugaðJ

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.