blaðið - 21.01.2006, Side 34

blaðið - 21.01.2006, Side 34
34 I ÁHUGAVERT LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 blaöi6 Tilraunakennd raftónlist verður... áhugaverð? Búdda-boxið er merkilegt fyrirbœri Pýska plötuútgáfan Staalplaat sérhæfir sig í tilrauna- kenndri raf- og tilraunatón- list og er þekkt víða um heim fyrir vandaða, óhefðbundna tónlist og virðulegan útgáfulista, þó hún geri sjaldan miklar rósir á metsölu- listum. Að auki er útgáfan rómuð fyrir smekklegar og oft byltingar- kenndar útfærslur á „plötuumslag- inu“, en Staalplaat ætti og að vera íslendingum að einhverju kunn því liðsmenn hinnar goðsagnakenndu óhljóðasveitar Stilluppsteypu hafa gefið út nokkrar skífur undir því merki. Nýlegt uppátæki útgáfunnar hefur vakið nokkra athygli meðal áhugamanna um óhefðbundna raft- ónlist, en það er þess eðlis að hinn „venjulegi“ tónlistarunnandi ætti síst að láta það framhjá sér fara. Um er að ræða nýja útgáfuröð á vegum Staalplaat, þar sem flutn- ingur og framsetning tónlistar - að ekki sé minnst á umbúðir hennar - eru tekin til endurskoðunar og sett fram á nýstárlegan máta sem gæti jafnvel breytt hugmyndum okkar um „neyslu“ tónlistar. 1 stað þess að tónlistinni sé dreift i formi geisladiska, vínilplatna, kassetta eða útvarpsbylgja fær kaupandinn ,plötuna“ í formi lítils kassa sem minnir um margt á gömlu transi- storútvörpin. Nefnist kassinn góði „ Buddah Box“ (eða: „Búddaboxið“ á Hér má sjá Búddaboxið i allri sinni dýrð góðri íslensku) og er á honum lítill hátalari, útgangur fyrir heyrnartól (eða steríógræjur) ásamt tökkum til að kveikja á boxinu, velja „lög“ og stýra hljómstyrk þess. Afslappandi og falleg stemn- ing hvar sem hennar er þörf 1 þessari fyrstu útgáfu kassans má hlýða á verk alþjóðlega dúettsins FM3, sem samanstendur af Þjóð- verjanum Christiaan Virant og kín- verska tölvutónlistarmanninum Zhang Jian, en þeir hafa unnið saman um árabil og m.a. átt hljóð- innsetningar í Lovre safninu. Þeir leggja til níu „lög“ í formi stuttra hljóðslaufa (þær lengstu ná 10 sek- úndum) sem spilast út í hið óendan- lega, allt þar til rafhlöðurnar klár- ast, skipt er um lag eða slökkt er á tækinu. Hljóðslaufurnar eru af þeirri gerð tónlistar sem almennt kall- ast „ambient" eða sveimtónlist, en fyrir ókunna má nefna nokkrar af plötum Brian Eno (t.d. Music for airports) sem dæmi um slíka. Slíkri tónlist er yfirleitt ætlað að veita þægi- legan bakgrunn fyrir aðrar athafnir, hún hefur sig lítið frammi heldur gegnir frekar því hlutverki að skapa og móta stemningu (þó auðvitað sé einnig hægt að leggja betur við hlustir og njóta agnúa hennar). Því gefur augaleið að þegar búið er að koma verkunum í þannig samhengi að þeim lýkur aldrei, heldur mala þægilega áfram í ljúfum nið, getum við notað tækifærið og skoðað hug- myndir okkar um tónlist sem hug- tak og áhrifaþátt nánar. Fyrst og síðast er um að ræða áhugaverða nýjung í útgáfu og dreifingu á tónlist - nokkuð sem að víst er að mun vekja athygli og umræður þar sem það er að finna. Búddaboxið er fallegt á að líta og gaman að leika sér með; kemur í ýmsum litum, er tiltölulega ódýrt og haft er fyrir satt að það myndi afslappandi og fallega stemningu hvar sem það er haft í gangi (líkt og er tilfellið með marga sveim-tón- list, enda er hún oft spiluð á lágum styrk á stöðum þar sem fólk þarfn- ast hjálpar við afslöppun, s.s. flug- völlum og í verslunarmiðstöðvum). Hægt er að fræðast nánar um Búddaboxið og starfsemi Staalplaat á vefsíðu útgáfunnar, www.staalplaat.com. Dúettinn FM3 að störfum SUMARHUSALAN Talaöu viö okkur ef þú ætlar aö byggja, kaupa eöa breyta suniarhúsi og þú færö hagstætt lán fyrir allt að 60° af verðmæti eöa 75% af byggingarkostnaði dæmiummanaðarlegagreiðslubyrðiaf 1.000.000kr.* sumarhúss. Konrdu til okkar í Lágmúla 6. hringdu | Lánstímí Isár l ioar hsar 1540 5000 eöasenduokkurpóstáfrjalsi@frjalsi.is. 4,95°o vextir ts.ssokr lo.ssokr. 7.8sokr. 4,95% FRJALSI Viö viljum að þer liöi líka vel um helgar!

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.