blaðið - 03.06.2006, Side 10
10 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ2006 blaöiö
Al-Zarqawi hvetur
súnníta til að hundsa
óskir um sættir
mbl.is | Abu Musab al-Zarqawi, leið-
togi al-Qaída í írak, skorar í mynd-
bandi á Súnní-múslima að hunsa
óskir um sættir við sjíta í hljóðupp-
töku sem birt var á netinu í gær. Al-
Zarqawi segir að herlið Sjíta myrði
súnníska karlmenn og nauðgi
konum þeirra.
Á upptökunni, sem er fjögurra
klukkustunda löng, fordæmir
al-Zarqawi æðstaklerk sjíta, Ali al-
Sistani, segir hann trúleysingja og
kveður sögu landsins sýna að sjítar
vinni með innrásarmönnum.
Biður leiðtoginn Súnníta að
„vakna, fylgjast með og horfast í augu
við eitur Sjíta-snáksins”. Hann biður
trúbræður sína að gleyma þeim sem
biðja um sameiningu þjóðarinnar
og vilja binda enda á sundrung í
landinu.
Þetta er í fyrsta sinn sem heyr-
ist í al-Zarqawi frá því í lok apríl
þegar myndband með honum var
birt. Þar sagði hann að ríkisstjórn
í frak yrði aldrei annað en leppur
Bandaríkjamanna.
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
simi 552 5744
Giró- og kreditkortþjónusta
Sjaldséðir
hvítir hrafnar
Hvítt Ijón tekur sér hvíld frá annasömum
degi i griðlandi í Timbavati i Suður-Afríku.
Ljóninu var nýlega sleppt út í griðland-
ið en það hafði áður verið í dýragarði í
Jóhannesarborg. Lffsbarátta hvftra Ijóna,
sem eru afar sjaldgæf, er erfiðari en ann-
arra Ijóna þar sem að hvíti liturinn vekur á
þeim athygli við veiðar.
Miðvikudagur 6. júní
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Slmi 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Magnús Gauti Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@vbl.is
Konur koma á sjúkrahús í Bagdad í leit að ættingjum sínum eftir sprengjutilræði i höfuðborginni. "eu,ers
Bandaríkjamenn sakað-
ir um annað fjöldamorð
Samkvæmt frásögn íraskra lögreglumanna myrtu bandarískir her-
menn ellefu óbreytta borgara í bænum Ishaqi í marsmánuði.
Bandarískir embættismenn hafa
greint breska ríkisútvarpinu, BBC,
frá þvi að teknar hafi verið til rann-
sóknar fullyrðingar þess efnis að
bandarískir hermenn hafi tekið
n óbreytta fraka af lífi. Ásakanir
þessar koma í kjölfar rannsóknar
sem hafin er á meintu fjöldamorði
bandarískra hermanna í bænum
Haditha.
Myndbandsupptaka sem BBC
hefur undir höndum gefur til kynna
að frásagnir Bandaríkjamanna afþví
sem gerðist í bænum Ishaqi í mars-
mánuði standist ekki. Talsmenn
Bandaríkjahers greindu þá frá því
að fjórir óbreyttir borgarar hefðu
týnt lífi í árás í bænum. fraskir lög-
reglumenn fullyrða á hinn bóginn
að bandarísku hermennirnir hafi
tekið ellefu manns af lífi í Ishaqi
sem er um íoo kílómetra norður af
höfuðborginni, Baghdad.
Myndbandið virðist sýna aðra
rás atburða í Ishaqi í marsmánuði
en Bandaríkjamenn hafa greint frá.
Bandaríkjaher segir að fjórir írakar
hafi týnt lífi þegar gerð var hörð
árás á hús eitt í bænum þar sem
meintur hryðjuverkamaður var í
felum. Þak byggingarinnar hafi að
lokum hrunið og við það farist fjórir
frakar, hinn grunaði, tvær konur og
eitt barn.
Sex mánaða gamalt
barn tekið af lífi?
Samkvæmt skýrslu írösku lögregl-
unnar söfnuðu bandarísku hermenn-
irnir ellefu manns saman í bænum
og tóku þá af lífi með skotum i brjóst
og höfuð. Segir þar að fimm börn,
hið yngsta sex mánaða, hafi verið
tekin af lífi og fimm konur, sú elsta
75 ára. Síðan hafi bandarísku her-
mennirnir sprengt húsið í loft upp.
Sibylja fyrir hunda
Anupan Boonchuen þeytir skífum með dyggri aðstoð seppa í hljóðveri útvarpsstöðvar
sem er sérstaklega ætluð hundum. Útvarpsstöðin sendir út á Netinu og eru höfuðstöðv-
ar hennar í Bangkok i Taílandi. Stöðin var stofnuð fyrir tæpum mánuði og hefur notið
mikilla vinsælda. Um 100 þúsund hundar viðs vegar um heim hlusta á útsendingu
hennar.
Á myndbandinu sem BBC hefur
undir höndum má sjá lík fullorð-
inna og barna og segir hinn virti
fréttamaður BBC, John Simpson, að
ekki fari á milli mála að fólkið hafi
beðið bana af völdum byssuskota.
Myndbandið fékk BBC frá hópi
harðlínu-súnníta sem berst gegn
veru erlenda hernámsliðsins i land-
inu. Segja fréttamenn BBC að þeir
hafi þurft að leggja á sig mikla
vinnu til að fá myndbandið; það hafi
ekki verið einfaldlega afhent þeim
og hópurinn hafi sýnilega ekki haft
uppi áform um að koma því til Vest-
urlandabúa. I frétt BBC segir og að
myndbandið hafi verið rannsakað ít-
arlega og það borið saman við aðrar
myndir sem teknar voru á sama
tíma. Er það hald manna að mynd-
bandið sé ósvikið.
Orkuöflun til ál-
vers gegn stefnu
borgarinnar
Vinstrihreyfingin í Reykjavík hefur
ítrekað mótmæli sín gegn áformum
Orkuveitunar um að útvega raforku
til álvers í Helguvík.
Vinstri grænir vísa í bókun
stjórnar OR í júní í fyrra þar sem
því var lýst yfir að orkusala fyrir-
tækisins til stóriðju yrði skoðuð
með heildstæðum hætti. „Við það
hefur ekki verið staðið, heldur hefur
þvert á móti verið haldið áfram að
kynda undir væntingum álfyrir-
tækja um stórfellda orkusölu,“ segir
í yfirlýsingunni.
Ennfremur segir að fulltrúi VG í
stjórn Orkuveitunnar hafi lagt á það
áherslu að ákvarðanir um orkusölu
til stóriðju verði teknar til umfjöll-
unar á hinum pólitíska vettvangi
í borgarstjórn Reykjavíkur. Á það
hafi ekki verið fallist innan stjórnar
OR heldur hafi stjórnin farið sínu
fram í krafti stuðnings annarra full-
trúa í stjórn fyrirtækisins.
„Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð í Reykjavík mótmælir þessum
áformum harðlega og telur þau
stangast á við markaða stefnu borg-
arstjórnar Reykjavíkur um sjálf-
bæra þróun og vistvæna höfuðborg."