blaðið - 03.06.2006, Side 19
blaðið LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006
VERÖLDINI 19
99.......................................
Evrópumenn verða að horfast í augu við þá stað-
reynd að það þurfti ameríska íhlutun undir hatti
NATO til að stöðva fjöldamorðin í þeirra eigin
bakgarði. Skyldi Evrópa hafa lært lexíuna sína?
Karadjorde-minnismerkið í Belgrad. Fyrir aftan sést glitta í Dómkirkju heilags Sava sem
er ein stærsta og tilkomumesta dómkirkja á Balkanskaga.
Sannleikurinn fyrsta fórnarlambið
Það er sagt, að í stríði sé sannleikur-
inn alltaf fyrsta fórnarlambið. Þjóðir
hinna fornu Júgóslavíu þóttust allar
eiga harma að hefna, og sumar
aftur í gráa forneskju. í annarri
heimstyrjöldinni studdi rikisstjórn
konungsríkisins Serbíu Hitler. Serb-
neski (júgóslavneski) herinn setti
ríkistjórnina af og snerist gegn nas-
istum. Hitler brást við hart. Hann
lét sprengjum rigna yfir Belgrad og
hernam Balkanskagann. Hann setti
upp leppstjórn nasista í Króatíu og
innlimaði hluta af Bosniu og Serbiu
í stórkróatiskt leppríki. Auk þess
studdu Þjóðverjar sjálfstæðishreyf-
ingu Albana, þar með talið í Kosovo,
á kostnað Serba. Margir af forystu-
mönnum Króata og Albana voru
því hallir undir Hitler. Aftökusveitir
þessara þriggja þjóða (Ustashe-nas-
istar í Króatíu,Tsétnikar i Serbíu og
bófahreyfingar í Albaníu-Kosovo)
frömdu fólskuleg fjöldamorð og
fóru myrðandi, rænandi, ruplandi
og nauðgandi um sveitir og þorp alls
staðar, þar sem þessi fantar þorðu
að níðast á varnarlausu fólki.
Allt nærði þetta hatrið og hefnd-
arhuginn, sem braust aftur út undir
lok aldarinnar, þegar miðstjórnin
í Belgrad missti tökin. Skæruliðar
Króatans Josif Bros Titos, sem með
hjálp bandamanna ráku Þjóðverja
að lokum út úr Júgóslavíu, án að-
stoðar Rauða hersins, undir lok
stríðsins, voru að uppistöðu Serba-
her. Á fyrstu árunum eftir stríð
upplifðu allar þessar þjóðir ofbeld-
isverk í nafni uppgjörs við kvislinga
og fasista á valdatíma Hitlers og
leppa hans. En að lokum kom Tito
á lögum og reglu með harðri hendi.
Sambandsríkið Júgóslavía saman-
stóð af lýðveldunum sex (Slóveníu,
Króatíu, Bosníu, Serbíu, Svartfjalla-
landi og Makedóníu og sjálfstjórnar-
héruðunum Kosovo og Voivodinu í
grennd við ungversku landamærin).
Miðstjórnin í Belgrad stjórnaði
í gegnum her og leynilögreglu. Lýð-
veldin höfðu hins vegar vaxandi
VILTU AÐ
AUCLÝSINGIN
ÞÍN SJÁIST
sjálfstjórn og höfðu m.a.s. stjórnar-
skrárvarinn rétt til að segja sig úr
sambandsríkinu, ef meirihluti kjós-
enda ákvæði það í þjóðaratkvæði.
Þennan rétt höfðu hins vegar ekki
heimastjórnarhéruðin. Þetta átti
eftir að reynast örlagaríkt og skipti
sköpum, þegar Júgóslavía byrjaði að
liðast í sundur að Tito látnum.
Þessi saga sýnir, að kommúnist-
inn, Króatinn og skæruliðaforing-
inn Josif Bros, öðru nafni Tito, var
um margt pólitískt mikilmenni.
Hlutur hans í sögu þessara þjóða er
mikill og vaxandi. Sem kommúnisti
stóð hann einn manna uppi í hárinu
á Stalín og hélt sínum hlut. Hann
var alþjóðasinni, sem fyrirleit þjóð-
rembing og þjóðernishatur og skildi
hversu hættuleg þjóðernishyggja,
sem er réttlætt af trúarofstæki,
getur reynst. Þjóðir hinnar gömlu
Júgóslavíu fengu heldur betur að
kenna á því.eftir að Titos nau ekki
lengur við.
Eitt er að lesa um þessa sögu í
sögubókum eða heyra af ógnaröld-
inni í fjölmiðlum, en annað að kynn-
ast harmleik fjölskyldna og einstak-
linga af persónulegum kynnum við
þá. Þegar við vorum komin í gegnum
Serbiu til Kosovo, kynntumst við af
eigin reynd lífsreynslu fólks, sem
lifað hafði af hörmungarnar. Og Kol-
finna dóttir okkar leiddi okkur um
einstigi sögunnar, sem að baki bjó.
Bryndís Schram
disschram@yahoo.com
180 hótel og gistiheimili
á Gulu síðunum
www.ja.is / www.simaskra.is
Þú getur slegið inn leitarorð á borð við „veislá', „banki" eða „pípari"
Leitarvélin talar íslensku svo að engu skiptir í hvaða falli leitarorðin eru
Blönduð leit, nafn/heimilisfang/póstnúmer. Þannig má t.d. finna öll hótel og gistiheimili
á svæði 101 og skiptir röð leitarorða ekki máli
Niðurstöður birtast í röð eftir vægi, mestar upplýsingar fyrst og síðan hinar í stafrófsröð
Tengd/skyld leitarorð birtast sem tillögur
Fellistika stingur upp á leitarorði um leið og leitandi slær inn orð
Leitarvélin stingur upp á annarri stafsetningu við vitlausan innslátt
Ný og gjörbreytt kort fylgja öllum heimilisföngum
JQ
Mundu einnig eftir Gulu síðunum í 118 og í Símaskránni.
V