blaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 27
blaðið LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006
VÍSINDI I 21
%-wfTísm
99....................
Flestir vísindamenn og
siðfræðingar eru sam-
mála um að tækni sem
gerir fólki kleift að lifa
lengur verði dýr í fyrstu
og því muni aðeins fáir
efnaðir einstaklingar
geta nýtt sér hana.
siðfræði lífvísinda við Hasting-stofn-
unina í New York hefur áhyggjur
af því að það myndi koma niður á
fyrirtækjum og stofnunum ef menn
gætu hangið í sama starfinu, jafnvel
stjórnunarstöðum svo áratugum
skipti. Ef ungt og hæfileikaríkt fólk
með nýstárlegar hugmyndir fengi
ekki tækifæri til að komast áfram
myndu þessar stofnanir staðna.
„Ef fólk verður too ár í sama starf-
inu verður mjög erfitt fyrir ungt
fólk að komast að og ná frama,“
segir Callahan.
Verður tæknin á allra færi?
Siðfræðingar velta einnig fyrir sér
hvort tækni sem geri mönnum kleift
að lengja líf sitt muni breikka bilið á
milli ríkra og fátækra í heiminum
og stuðla að aukinni mismunun.
Munu allir hafa jafnan aðgang að
þessari tækni eða verður hún fyrst
og fremst á færi þeirra sem hafa efni
á henni?
Flestir vísindamenn og siðfræð-
ingar eru sammála um að tækni
sem gerir fólki kleift að lifa lengur
verði dýr í fyrstu og því muni aðeins
fáir efnaðir einstaklingar geta nýtt
sér hana. Það getur leitt til þess að
bilið milli fátækra og ríkra breikki
enn frekar.
Þeir sem væru svo lánsamir að
hafa efni á slíkri meðferð myndu
ekki aðeins lifa umtalsvert lengur
heldur fá þeir fleiri tækifæri til
að safna auði eða tryggja vald
sitt enn frekar í sessi hvort sem
það er pólitískt, efnahagslegt eða
menningarlegt.
Mismunun þegartil staðar
John Harris sem er prófessor í sið-
ferði lífvísinda við Háskólann í
Manchester bendir á að þegar séu
mörg dæmi um slíka mismunun í
heiminum. Sem dæmi megi nefna
að í Bandaríkjunum geti meðalmað-
urinn búist við að ná 78 ára aldri
en í Botsvana er meðalaldur fólks
aðeins 34 ár. Ennfremur hefur fólk í
þróuðum vestrænum ríkjum kost á
lyfjum og læknismeðferðum á borð
við líffæraskipti sem íbúar fátækari
ríkja hafa ekki.
Harris segir að á sama hátt sé sú
staðreynd að aðeins hinir efnuðu
muni hafa aðgang að tækni sem
gerir þeim kleift að lifa lengur sé
ekki nægilega góð ástæða til að
banna tæknina sem slíka. í fyrsta
lagi komi það ekki til með að bjarga
lífi eins hóps manna með því að
meina öðrum hópi að nýta sér til-
tekna tækni eða meðferð. í öðru lagi
getur tækni sem er dýr í upphafi
orðið ódýrari með tímanum og þar
með á færi fleira fólks.
Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.is
It
Hátækni
Vertu með á miðjunni! q,
Digital Sound Projeotors
YSP-1000
YSP-800
R""»~aga Intetl/Beam Bm^ihrl BWff
©
Gerðu sófann þinn að stúku á HM
Með stórum flatskjá færðu betri yfirsýn yfir leikina, en innbyggðir hátalarar ná ekki
að skila spennunni og stemningunni á vellinum. Yamaha YSP-1000 og YSP-800
hátalarar leysa það fullkomlega. Allt í einu boxi en samt fjölrása hljóðkerfi. Komdu (
Hátækni og hlustaðu, tilfinningin er ólýsanleg.
Þú þarft ekki að leggja snúrur um alla stofuna til að fá gott hljóð!
■Ain.r ■
■
-cinema