blaðið - 03.06.2006, Side 38
38 I MENNING
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöÍA
Innileg fjarvera
Landslag og mannlíf á norðurhjaranum er viðfangsefni norska
myndlistarmannsins Patrick Huse en sýning á verkum hans, sú
fimmta sem hann heldur hér á landi, verður opnuð í dag.
Norski listmálarinn og ljósmynd-
arinn Patrick Huse opnar í dag
sýningu á verkum sínum í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar.
Huse hefur sýnt fjórum sinnum
áður á íslandi, fyrst í Hafnarborg
árið 1995. Sýningar hans eru viða-
miklar og hafa verið settar upp víða
um heim. Sýningin í Hafnarborg
ber yfirskriftina Intimate Absence
(Innileg fjarvera) og var fyrst opnuð
í Henie-Onstad listamiðstöðinni í
Olsó síðasta sumar.
Sem fyrr er það landslag og mann-
líf á norðurhjara sem heillar Huse
og á sýningunni má sjá verk sem
rekja ferðir hans um Nunavut (sjálfs-
stjórnarlýðveldi Inúíta norðvestur
af Kanada), Grænland og ísland.
Heiti sýningarinnar, Innileg fjar-
vera, endurspeglar ljúfsárar tilfinn-
ingar listamannsins til viðfangsefn-
isins en hann hefur látið félags- og
menningarmál heimskautabúa mjög
til sín taka. Þessari sýningu fylgir
sem fyrr mikil útgáfa þar sem er að
finna bæði verk Huse og ýmsa texta
eftir fólk frá heimskautasvæðunum
og fræðimenn sem láta sig málefni
þeirra varða.
Fimmta sýning Huse á íslandi
Patrick Huse hefur lengi verið
þekktur listamaður í heimalandi
sínu, Noregi, og hér á íslandi eru
líka margir sem þekkja til hans
enda er þessi sýning sú fimmta sem
hann kemur með hingað til lands.
Sú fyrsta var einnig í Hafnarborg
árið 1995. Þar var á ferðinni sýningin
Norrænt landslag með undarlegum
draumkenndum myndum af eyði-
landslagi við vesturströnd Noregs
og var sýningin sérstaklega áhuga-
verð fyrir okkur íslendinga sem svo
lengi höfum fengist við landslagið í
myndum og máli. Nálgun Huse var
önnur en sú sem íslenskum lista-
mönnum hefur verið töm, en þó var
eins og myndir hans kölluðust á við
islenska landslagið og mynduðu með
því sterkan og ágengan samhljóm.
Leggur enn mesta rækt
við málverkin
Síðustu árin hafa sýningar Huse
orðið æ fjölbreytilegri og á þeim
má nú bæði sjá ljósmyndir og mynd-
bandsverk við hlið hins málaða
striga. Mesta rækt leggur hann þó
enn við málverkin og þykja þau
vera sérstaklega vel unnin, bæði
hvað varðar hina myndrænu þætti
og þá miklu tækni sem listamaður-
inn ræður yfir. Þar sem hann ein-
beitti sér áður að Noregi og íslandi
fer hann nú víðar og hefur ferðast
mikið um eyjarnar norður af Kan-
ada, um Grænland og norðurhéruð
Skandinaviu.
Safnið er opið alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17, á fimmtu-
dögum er opið frá kl. 11 til 21, sýning-
unni lýkur mánudaginn 3. júlí.
Artic Resident, eitt af verkum norska myndlistarmannsins og Ijósmyndarans Patrick
Huses sem er til sýnis í Hafnarborg í Hafnarfirði.
X
/
,
Leikverkið Agnes - High Quality verður sýnt í Jaðarleikhúsinu í Hafnarfirði í dag og á
morgun.
Sjálfshjálparbœkur og
jarðarfarabœklingar
Jaðarleikhúsið í Hafnarfirði sýnir
verkið Agnes - High Quality í dag
kl. 17 og á morgun, sunnudag, kl.
20. Verkið er leikið og leikstýrt af
Gemmu Rowan og Sakuru Tanaka
og unnið í samstarfi við alþjóðlega
leikflokkinn Dan Kai Teatro. Verkið
er leikið á ensku. Sýningin er styrkt
af Menningarnefnd Hafnarfjarðar
og menntamálaráðuneytinu.
„í leikritinu eru hversdagslegir
hlutir eins og egg og heimilistæki
notuð til þess að fjalla um afbökun
og afhelgun á brotakenndum sam-
skiptum, samhengi hluta og heim-
ilishaldi. Agnes vekur upp spurn-
ingar um sjálfsmynd í heimi sem
krefst fullkomnunar. Sjálfshjálpa-
bækur og jarðarfarabæklingar leiða
áhorfandann inn í undarlegan
heim mitt á milli raunveruleika og
skynvillu," segir í tilkynningu frá
Jaðarleikhúsinu.
Jaðarleikhúsið er til húsa að Mið-
vangÍ4iíHafnarfirði(gamlaapótekið
á bak við Samkaupsverslunina).
Verð aðgöngumiða er 1000 kr. en
800 kr. fyrir ungmenni, eldri borgara,
nema, öryrkja og atvinnulausa. Hægt
er að panta miða í síma 8461351.
LÝSING
LYSING.IS // 540 1500
Það er sama hvernig þú lítur á dæmið. Ef þig vantar leiðir til þess að
eignast draumabílinn getum við alltaf boðið þér sniðuga lausn.
Bílalán // Bflasamningur // Einkaleiga