blaðið - 03.06.2006, Síða 40
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöiö
40
IVlJCilllÍ!
Fjölbreytni í fyrirrúmi
Knut Hamre leikur á harðangursfiðlu á sumartónleikum Bláu kirkjunnar á Norskum dögum í fyrra.
Vortónleikar
Selmu og
Gunnars
Gunnar Kvaran, sellóleikari, og
Selma Guðmundsdóttir, píanó-
leikari, halda tónleika á Skriðu-
klaustri mánudaginn 5. júní kl. 17
(annan í hvítasunnu). Á efnisskrá
tónleikanna er svíta eftir franska
tónskáldið Couperin, Sónata „Arp-
eggione" eftir Franz Schubert, Fant-
asíuþættir opus 73 eftir Robert
Schumann og íslensk þjóðlög í út-
setningu Hafliða Hallgrímssonar.
Gunnar Kvaran, sellóleikari, og Selma
Guðmundsdóttir, píanóleikari, halda vor-
tónleika á Skriðuklaustri á mánudag.
Gunnar Kvaran og Selma Guð-
mundsdóttir hafa starfað saman
að tónleikahaldi frá árinu 1995. Þau
hafa leikið saman tónlist inn á tvo
geisladiska. Sá fyrri, Elegía, kom út
hjá Japis árið 1996. Fyrir rúmu ári
kom svo út hjá Smekkleysu diskur-
inn Gunnar og Selma með flutningi
þeirra á nokkrum rómantískum
verkum, þar á meðal sónötu Fre-
deric Chopin fyrir selló og píanó.
Gunnar og Selma starfa bæði sem
kennarar við Listaháskóla íslands
og Tónlistarskólann í Reykjavík.
Tónleikarnir eru samstarfsverk-
efni Félags íslenskra tónlistar-
manna og Gunnarsstofnunar
á Skriðuklaustri með styrk frá
menntamálaráðuneytinu.
Tónlistarunnendum sem eiga leið
um Austurland í sumar er bent á
að á Seyðisfirði fer fram árleg sum-
artónleikaröð í Bláu kirkjunni. Tón-
leikarnir eru haldnir á miðvikudags-
kvöldum kl. 20:30 og er aðgangseyrir
1000 krónur.
Tónleikaröðin hefst miðvikudags-
kvöldið 28. júní með fjölbreyttum
söngtónleikum Signýjar Sæmunds-
dóttur, sópran við undirleik Bjarna
Jónatanssonar, en þau munu meðal
annars flytja nokkur íslensk lög sem
ekki eru sungin oft á sviði. Hver tón-
listarviðburðurinn rekur síðan
annan og er óhætt að segja að alþjóð-
legt yfirbragð og fjölbreytni setji
svip sinn á tónleikaröðina í ár. Seyð-
firðingum og gestum þeirra mun
meðal annars gefast færi á að hlýða
á bandarískan gospelsöng, norska
harmonikkutónlist, djass og klassík.
Sumartónleikar í Bláu kirkjunni:
5. júlí: Kvartett Sigurðar Flosa-
sonar saxófónleikara ásamt söng-
konunni Kristjönu Stefánsdóttur.
12. júlí: Tónleikar með brasilíska
gítarleikaranum Ife Tolentino. Hann
kemur fram ásamt gítar- og saxófón-
leikurunum Ömari og Óskari Guð-
jónssonum og enska trommuleikar-
anum Chris Wells.
19. júlí: Gospelltónleikar með
Eddie Cohee og Pat Randolph frá
Delaware í Bandaríkjunum. Þær
verða jafnframt með gospelnám-
skeið í tengslum við LungA, Listahá-
tíð ungs fólks á Austurlandi. Nám-
skeið fyrir fólk utan LungA hefst
sunnudaginn 16. júlí en það verður
auglýst síðar.
26. júlí: Bergþór Pálsson ásamt
Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur söng-
konu, Sigrúnu Eðvaldsdóttur, fiðlu-
leikara og Kjartani Valdemarssyni,
píanóleikara með söngskemmtun
fyrir alla.
2. ágúst: „Fjórir vinir“ halda tón-
leika en sá hópur samanstendur af
tónlistarfólki frá fjórum löndum,
þar á meðal Islandi, sem kynntust
í tónlistarháskóla í Haag í Hollandi.
Þetta eru fyrstu tónleikar hópsins á
íslandi.
9. ágúst: Dúett Elísabetar Waage
hörpuleikara og Örnu Kristínar Ein-
arsdóttur flautuleikara. Fjölbreytt
og falleg tónlist sem gleður hjörtun.
16. ágúst: Lokatónleikar Bláu kirkj-
unnar í tengslum við hina árlegu
Norsku daga á Seyðisfirði. Harm-
onikkusnillingurinn Kjetil Skaslien
frá Noregi ásamt Reidar Myhre
saxófónleikara.
Eitt af verkum Erlu Þórarinsdóttur mynd-
listarmanns í Galleríi Animu í Ingólfsstræti.
Dœldir og
duldir
I gær var opnuð sýning Erlu Þór-
arinsdóttur myndlistarmanns í
Galleríi Animu, Ingólfsstræti 8.
Yfirskrift sýningarinnar er
Dældir og duldir. „Dældin á
samsvörun við duld hugans sem
fyllir hana innihaldi og jafnvel
dældin sem fyllist dæld finnur
líkamlega duld og þannig heldur
þetta áfram,“ segir í tilkynningu
frá galleríinu
Á sýningunni eru ný og tíma-
laus verk, efnisgerð úr steini,
silfri, ljósi, tíma og bronsi.
Bœjarlistamaður
Hafnarfjarðar
Lista- og menningarhátíðin
Bjartir dagar í Hafnarfirði var
sett á fimmtudaginn á afmælis-
degi bæjarins. Við það tækifæri
var útnefndur bæjarlistmaður
Hafnarfjarðar og veittir tveir
hvatningarstyrldr til lista-
manna og/eða listnema. Elín
Ósk Óskarsdóttir var valin
bæjarlistamaður Hafnaríjarðar
og þær Auður Vésteinsdóttir,
myndlistarmaður, og Eyrún
Ósk Jónsdóttir, leikstjóri og leik-
skáld, hlutu hvatningarstyrki.
Elín Ósk hefur sungið
fjöldamörg óperuhlutverk
innanlands sem utan og hlotið
lof gagnrýnenda fyrir túlkun
og framúrskarandi söng.
Eitt af verkum Sunnu Sigfríðardóttur sem
er til sýnis á Café Karólínu á Akureyri.
Viðhorf
Sunna Sigfríðardóttir opnar í dag
sýningu á Café Karólínu í Listagil-
inu á Akureyri.
Sýningin hefur hlotið nafnið „Við-
horf“. Þetta er þriðja sýningin sem
Sunna setur upp á Café Karólínu.
Sunna segir um verkin á sýning-
unni: „Myndirnar eru af blómum.
Ýmis mismunandi munstur sem
koma úr sama forminu. Myndirnar
eru allar þær sömu. Myndirnar eru
allar unnar með bleki á pappír.
Það er áhorfandans að velta fyrir
sér hvað myndirnar tákna. Mynd-
irnar geta skipt um þýðingu eftir
því hver horfir á þær. Sýningin
heitir viðhorf vegna okkar eigin
skoðana og hvernig viðhorf okkar
eru mismunandi."
Sunna stundaði nám við Mynd-
listaskólann á Akureyri og útskrifað-
ist 2001 og hefur frá því tekið þátt í á
annan tug sýninga. Sýningin á Café
Karólínu stendur til 30. júní 2006.
Allir eru velkomnir á opnunina í
dag kl. 14.
A sama tíma stendur yfir sýn-
ingin „Mjúkar línur / Smooth lines“
eftir Joris Rademaker á Karólínu
Restaurant. Joris er bæjarlistamaður
Akureyrar.
Rómarborg byggð úr sandi
Listamaður vinnur að því að móta eftirlíkingu af rómverska hringleikahúsinu Co- Reuters
losseum í enska strandbænum Brighton. Þar hefur verið opnuð sýning á nærri 200
sandskúlptúrum sem allir tengjast borginni sögufrægu.
Það er engu líkara en að Rómar-
borg, með öllum sínum stórkostlegu
byggingum og minnismerkjum, sé
risin í strandbænum Brighton í Eng-
landi. Um 60 listamenn hafa mótað
úr sandi nærri 200 eftirmyndir
■u
1 ~ Æ1 y
Eistneski sandlistamaðurinn Kirke
Kangro dyttar að verki sinu á sandskúlp-
túrsýningunni I Brighton. Sýningin fjallar
um ris og hnig Rómarveldis.
ýmissa sögufrægra mannvirkja
borgarinnar við Tíber, þar á meðal
Colosseum og Pantheon. Þetta er
í annað skipti sem Sandskúlptúr-
hátíðin í Brighton er haldin en að
þessu sinni verða um 85% skúlptúr-
anna undir risastóru tjaldi sem á að
verja þá fyrir veðri og vindum og
ágengni skemmdarvarga.
Á síðasta ári skemmdust sumir
skúlptúranna sem stóðu undir beru
lofti og vilja skipuleggjendur sýning-
arinnar koma í veg fyrir að leikur-
inn endurtaki sig.
Michelle Lamb, talsmaður hátíðar-
innar, segir að tjaldið hafi jafnframt
gefið listamönnunum tækifæri til
að vera tilraunaglaðari.
Nærri 200.000 manns komu á há-
tíðina á síðasta ári en þá var þema
Reulers
Eins og sjá má eru mörg verkanna á sýningunni meira en mannhæðar há. Hér
hefur listamaðurinn Sergio Ramirez komið sér vel fyrir við verk sitt.
sýningarinnar Egyptaland til forna
og vonast skipuleggjendur til að slá
það met í ár.
Um 10.000 tonn af sérstökum
sandi frá Hollandi voru flutt til
Brighton fyrir sýninguna en sá
sandur þykir henta betur til skúlp-
túrgerðar auk þess sem verk sem eru
mótuð úr honum eiga að þola betur
ágang veðurs og vinds.
Sýningin stendur til 10. september
en þá munu jarðýtur jafna Rómar-
borg hina litlu við jörðu.