blaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 51
blaðið LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006
AFÞREYING I 51
Offrambod eda óspenn-
andi hljómsveitir?
Tónlist
Atli Fannar Bjarkason
Það kemur ekki mikið á óvart að
Reykjavík rokkar hátíðin hafi ekki
náð hylli almennings. Aðstand-
endur blésu hátíðina af vegna
dræmrar miðasölu en var hægt að
búast við að aðalsveitir hátíðarinnar
gætu fyllt Laugardalshöll þrjú kvöld
í röð?
hófi frram undanfarin misseri. Hver
sem er virðist halda að hann geti
flutt inn hljómsveit, fyllt Höllina
og haft upp úr því fúlgur fjár. Þeir
sem ætla að treysta á hljómsveita-
innflutning til að borga reikningana
verða stöðugt að vera með puttann
á púlsinum. Endurkomur gamalla
jálka eru skemmtilegar en ganga
ekki endalaust upp.
Þegar allt kemur til alls er stað-
reyndin sú að með auknu framboði
minnkar eftirspurn og fólk verður
vandlátara. Það er ekki langt síðan
fólk beið hátt í sólarhring í röð til að
fá miða á tónleika. í dag fer miðasala
mest megnis fram á Netinu enda
engin ástæða til annars. Tónlistar-
áhugamenn sjá ekki lengur ástæðu
til að ganga á eftir miðum á tón-
leika. Hvort sem það er offramboði
eða óspennandi hljómsveitum að
kenna (eða hvoru tveggja?) er ljóst
að tónleikahaldarar þurfa að vakna
oglykta afkaffinu.
atli@bladid.net
The Darkness áttu að koma fram á Reykjavík Rokkar-hátíðinni í ár.
Fréttir gærdagsins
Reykjavík rokkar hefði átt að heita
„I gær 2006“ vegna þess hve erlendu
atriðin, sérstaklega Darkness og
David Gray, voru mikið að gerast í
fyrra - fréttir gærdagsins. Darkness
gáfu út sína fyrstu plötu, Permission
to Land, árið 2004. Þeir lifðu á
sínum eina alvöru smelli, I Believe
in a Thing Called Love, þar til tók að
líða á árið 2005 þegar fregnir fóru
að berast um ritstíflu aðalmanns
sveitarinnar. Ritstíflan kom svo út
í formi breiðskífu á þessu ári sem
fékk slæmar undirtektir gagnrýn-
enda sem og tónlistarunnenda.
David Gray gaf út plötuna Life in
Slow Motion í fyrra og dældi út mis-
góðum smellum sem útvarpshlust-
endur landsins virtust taka vel í. En
langtímaminni aðdáendahóps hans
á íslandi er greinilega slæmt því
ekki náði hann að svo lítið sem fylla
stúkuna í Laugardalshöll.
Loks sé ég Motörhead ekki fyrir
mér sem hljómsveit sem fyllir Laug-
ardalshöllina. Motörhead er frábær
hljómsveit sem á sér langa sögu og
aðalmaður sveitarinnar, Lemmy
Kilmister, er svo sannarlega holdg-
ervingur rokksins. En flestir muna
hvernig fór með annan sögufrægan
sukkara, Iggy Pop. Tónleikar hans
og hljómsveitarinnar Stooges voru
færðir úr Laugardalshöll i Listasafn
Reykjavíkur sem fylltist þó ekki.
Atriðin öli„happening"
Reykjavík rokkar hátiðin var gríð-
arlega vel sótt í fyrra. Atriðin þrjú
sem voru í boði voru öll „happen-
ing“ þá. Duran Duran endurkoman
sló í gegn um allan heim, Foo Fight-
ers voru nýbúnir að gefa út plötu
og Queens of the Stone Age líka. í
fyrra var líka bullandi góðæri, doll-
arinn á 60 kall og helmingi minna
tónleikaframboð.
Framboð tónleika hefur farið úr
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
Sunnudagur
12.00-Tónlist
Bastien og Bastienne, ópera
fyrir börn
Hafnarfjarðarleikhúsið
15.30-Tónlist
Reykjavík Trópík
Háskólasvæðið
21.00-Tónlist
Akureyri International Music
Festival
Rocco
Miðasala á midi.is
21.00-Tónlist
Sleater Kinney
Nasa
Miðasala á midi.is
24.00-Tónlist
Drungablús og djöflakántrí
A Hansen
Þegar það kemur að því að
bjarga heiminum getur verið
gott að vera litli kjúllinn.
Kominn í verslannir og
leigur á DVD!