blaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 1
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS! ■ MENNING Kjartan Guðmundsson málar á meðan hann getur. Hann er með sýningu í Gallerí Fold / | SÍÐA 37 ■ LIFIÐ Hljómsveitin Bertel spilar með Lödu Sport og Miri á Café Amsterdam ' | SlÐA 34 183. tölublað 2. árgangur fimmtudagur 17. ágúst 2006 m m m 4®** """ , ’ í . j —4,^, iij i -,•> ■■ |-» | 11— n| Mr .m. -i.",-'.--' m Ökubrúin tilbúin á undan áætlun Vinna við mislægu gatnamótin þar sem Vesturlandsvegur og Suðurlands- vegur mætast gengur vel. „Ég er bjartsýn að við náum að klára á réttum tíma og jafnvel eitthvað á undan áætlun,“ segir Guðfinna Hinriksdóttir, verkefnisstjóri hjá Eykt. Verklok eru áætluð 1. nóvember en samkvæmt þessu gæti vinna klárast síðla í næsta mánuði. Framkvæmdin hófst í byrjun maímánaðar. „Þetta er því stuttur verktími, en hann er búinn að vera erfiður,” segir Guðfinna. „Helsta ástæða þess er að háir bilar hafa keyrt um fimmtiu sinnum á hæðarslá sem er til viðvör- unar. Við brugðum því á það ráð að vera með vakt allan sólarhringinn til að beina öllum háum bílum niður að Stórhöfða, því við vorum hrædd um að hætta steðjaði að okkar mannskap sem er þarna að störfum," segir Guðfinna. Urðunarstaður: Safna ætti metangasi „Fyrsta skrefið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda af völdum úrgangs væri að skipa fleiri urðunarstöðum að safna metangasi til nýtingar,“ segir Björn H. Halldórsson, deild- arstjóri hjá Sorpu, en nú er einungis Sorpu í Álfsnesi skylt að safna saman metangasi. Samkvæmt tölum frá Umhverf- isstofnun er um 200 þúsund tonna útblástur af gróðurhúsa- lofttegundum á ári hverju af völdum urðunar úrgangs. Los- unin á sér stað á urðunarstöðum þar sem lífrænn úrgangur er urðaður. „Þar gerjast hann og til verður það sem við köllum hauggas, sem inniheldur koldíoxíð og metan. Metan er ansi sterk gróðurhúsa- lofttegund, eða rúmlega tuttugu sinnum sterkari en koldíoxíð," segir Björn. |slo,12 Ofsaakstur: Hrein og klár geoveiki Ofsaakstur á mótorhjóli er hrein og klár geðveiki, segir Ber- ent Karl Hafsteinsson, sem missti fót og þrjá putta þegar hann missti stjórn á mótorhjóli sinu á 200 kílómetra hraða. „Þetta er ekki einu sinni rússnesk rúlletta, það eru fimm skot í byssunni,1* Berent Karl lenti í slysinu árið 1992. Síðan þá hefur hann gengið í gegnum fjölda aðgerða og þarf enn þann dag í dag að gangast undir aðgerðir vegna slyssins. | SÍÐA 4 Víða boðið upp á aðkeyptan mat í grunnskólum: Upphitaður skólamatur ■ Aðkeyptur matur oftast óhollari ■ Mörg sveitarfélög að prófa sig áfram Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Hvernig maturinn er geymdur fram að mat- málstíma, við hvaða hitastig og fleira getur haft nokkur áhrif á hollustuna, en er þó ekki síður mikilvægt með tilliti til öryggis, meðal annars til að koma í veg fyrir örveruvöxt,” segir Anna Sigríður Ólafsdóttir, næringarfræðingur. Algengt er að grunnskólar á höfuðborgar- svæðinu bjóði nemendum uppá aðkeyptan mat þannig að hann er eldaður annars staðar, komið með hann heitan og hann framreiddur á diska. „Það er auðvitað besti kosturinn ef eldað er á staðnum þar sem því verður við komið og óskandi að allir skólar hefðu til þess aðstöðu og starfsfólk. Maturinn er fyrst og fremst mun ■ FÓLK í draumastarfinu Búri lærði húðflúrun af Fjölni sem aftur lærði af Jóni Páli. Sá lærði í Aþenu. lystugri ef hann er nýeldaður en svo er það háð bæði hráefni og meðhöndlun hvert næringar- gildi máltíðanna er. Allajafna má þó segja að heitur skólamatur, hvort sem hann er eldaður í eða utan skólans, ætti að auka hollustu og fjöl- breytni í fæðu skólabarnanna og halda þeim betur söddum og ánægðum yfir daginn, svo framarlega sem hugað er að hollustu hráefnis- ins við matargerðina. „Þannig skiptir miklu máli að ferskmeti, helst bæði grænmeti og ávextir, sé hluti af hverri máltíð til viðbótar við heita matinn. Fiskur ætti helst að vera á borðum minnst tvisvar í viku og kjötvörur ættu að vera sem minnst unnar,” bætir Anna Sigríður við. Af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ■ VEÐUR Léttskýjað Víða léttskýjað, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti 10 til 20 stig. I SfÐA 2 Mótmæli: er staðan verst í Kópavogi, þar sem maturinn er aðeins eldaður í einum skóla af tíu. „Það eru allir skólar okkar með mötuneyti en i sumum þeirra er sú þjónusta hins vegar boðin út. Það er hvergi boðið upp á bakkamat heldur heitan mat sem skammtaður er á diskana,” segir Árni Þór Hilmarsson, sviðsstjóri fræðslusviðs Kópavogsbæjar. „í fimm skólum er búið að forvinna matinn og hann er svo hitaður upp í skólunum. Til að hita upp höfum við sérstaka gufuofna þannig að víða eru svokölluð móttökueldhús. í fjórum kemur maturinn heitur í hús og er skammt- aður á diska. Við erum að prófa okkur áfram í þessum efnum og stærðarhagkvæmnin skiptir þar miklu máli.” Tugmilljóna tjón Alcoa Tjón Alcoa vegna aðgerða mót- mælenda á byggingarsvæði álvers í Reyðarfirði í gær getur numið tugum milljóna króna, segir Erna Indriðadóttir, upplýsinga- fulltrúi fyrirtækisins. Fjórtán mótmælendur fóru inn á byggingarsvæðið, klifruðu upp í byggingarkrana og hlekkjuðu sig við þá. Öll starfsemi stöðvað- ist því fram að hádegi í gær. Erna segir tjón vegna vinnustöðvunar nema átta til níu milljónum króna á hverja klukkustund. | sIða 6 ■ MEWNTUW Nýtt hús nauðsyn Rektor Listaháskólans segir ástandið í húsnæðismálum skólans óásættanlegt | SÍÐA38 | SlÐA 2 | SÍÐA20

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.