blaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 14
14 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 blaðið
Þungur á brún Andy van der
Meyde vill fá hvolpinn sinn aftur
Innbrot:
Sárt saknað Mac er 7 mánaða
gamall hvolpur.
Knattspyrnumaður
saknar hvolps
Andy van der Meyde, hinn hol-
lenski miðjumaður í herbúðum
enska knattspyrnuliðsins Ever-
ton, er með böggum hildar þessa
dagana í kjölfar þess að óprúttnir
menn stálu hvolpinum hans. Brot-
ist var inn í hús Van der Meyde
í Liverpool um helgina og auk
hundsins var tveimur bílum
stolið frá knattspyrnumanninum.
Hvolpur knattspyrnumannsins,
sem er af svokölluðu Bordeaux-
kyni, heitir Mac og er hans afar
sárt saknað.
Lögreglan á bökkum Mersey
var fljót að finna bílana tvo, en
þeir voru af gerðinni Ferrari og
Mini Cooper. En þrátt fyrir að
bílarnir hafi skilað sér vill Van
der Meyde fyrst og fremst fá
hvolpinn sinn til baka. í viðtali
við dagblaðið Liverpool Echo
sagði knattspyrnumaðurinn að
hann óski einskis heitar en að fá
hvolpinn aftur í sínar hendur og
vegleg fundarlaun séu í boði fyrir
þann sem kemur á endurfundum
hunds og knattspyrnumanns.
PipúLrscsÁ...
... þeqár virdur fnvím!
TiivVin köld út á kjötiö, i fiskrétti, meö reyktum silungi og
sjávarfangi. Góð með köldum, steiktum lunda og sem ídýfa.
VOGABÆR
Frábær köld úr dósinni eða hituð upp, með lambakjöti,
nautakjöti, fiski eða kjúklingaréttum í ofni.
Deilan um Kurileyjar:
Rússar skutu
japanskan sjómann
■ Japanir mótmæla harðlega ■ Rússar vísa gagnrýni á bug
Landhelgisgæslumennirnir komu
að japönskum bát við krabbaveiðar
við hinar umdeildu Kúrileyjar, en
Rússar og Japanir deila um hjá hvorri
þjóðinni eyjan fullvalda liggur. Að
sögn rússneskra stjórnvalda lést sjó-
maðurinn eftir að landhelgisgæslu-
mennirnir skutu viðvörunarskotum
að bátnum sem var síðar færður til
rússneskrar hafnar. Japönsk stjórn-
völd hafa mótmælt aðgerðunum harð-
lega við rússnesk stjórnvöld og krafist
þess að þau sleppi hinum sjómönn-
unum sem voru um borð í bátnum úr
haldi. Stjórnvöld í Moskvu hörmuðu
dauða sjómannsins í gær en sögðu
aðgerðirnar hafa verið réttlætanlegar
þar sem báturinn hafi verið við ólög-
legar veiðar á rússnesku hafsvæði.
Stjórnvöld í Tókýó kölluðu sendi-
herra Rússa i borginni á fund í utan-
ríkisráðuneytinu og kröfðust meðal
annars að Rússar myndu refsa þeim
sem bera ábyrgð á dauða sjómanns-
ins. 1 yfirlýsingu frá rússneska utan-
ríkisráðuneytinu er allri ábyrgð vísað
á hendur japönsku sjómönnunum.
Oft hefur komið til ryskinga á
milli rússnesku landhelgisgæslunnar
og japanskra sjómanna á hafsvæð-
inu kringum hinar umdeildu eyjar.
Þrátt fyrir það eru rúm fimmtíu
ár síðan að japanskur fiskimaður
Réttlætanleg aðgerð Mikhail
Galuzin, starfandi sendiherra Rússa
í Tókýó, svarar spurningum blaða-
manna eftir að vera krafinn skýringa í
japanska utanríkisráðuneytinu.
lét lífið í aðgerðum rússnesku
landhelgisgæslunnar.
Langvarandi deila
Atvikið kann að auka á spennuna á
milli ríkjanna sem hafa deilt um Kúril-
eyjarfrálokumseinniheimsstyrjaldar-
innar. Sovéski herinn hertók eyjarnar
í stríðinu en japönsk stjórnvöld hafa
aldrei látið af kröfu sinni um að fá
fjórar syðstu eyjarnar aftur undir sín
yfirráð. Deilan hefur meðal annars
orðið til þess að stjórnvöld í Moskvu
og Tókýó hafa ekki enn gert með sér
formlegan friðarsamning vegna loka
síðari heimsstyrjaldarinnar. Rússar
hafa gegnum tíðina verið reiðubúnir
til þess að láta tvær eyjanna af hendi
en japönsk stjórnvöld geta ekki sætt
sig við þá niðurstöðu. Á sama tíma
og rússnesk stjórnvöld ítreka þá
málamiðlun hafa þau lagt töluvert fé
í uppbyggingu á eyjunum. Japanskir
hægrimenn leggja mikla áherslu að
eyjunum verði skilað og krafan er eitt
af helstu stefnumálum utanríkisráð-
herra landsins, Shinzo Abe, en líklegt
er að hann taki við embætti forsætis-
ráðherra þegar Junichero Koizumi
lætur af störfum í næsta mánuði. Er
búist við að hann leggi töluverða
áherslu á að framfylgja kröfum Jap-
ana í deilunni í stjórnartíð sinni.
Eflr miklu að slægjast
Eftir töluverðu er að slægjast.
Gjöfgl fiskimið eru við eyjarnar auk
þess sem Hklegt er talið að hafsbotn-
inn sé auðugur af olíu- og gaslindum.
Deilan um eyjarnar hefur meðal ann-
ars hindrað viðskipti og efnahagssam-
starf á milli Rússa og Japana. Miklir
möguleikar felast í viðskiptum ríkj-
anna tveggja þar sem að Rússar eru
miklir orkuútflytjendur og orkuþörf
japanska efnahagskerfisins er gríðar-
leg. Hefur deilan um eyjarnar meðal
annars orðið til þess að tafir hafa
orðið á lagningu á olíuleiðslu frá Síb-
eríu til hafna við Kyrrahafið.
iUGARASBIÓ
rw, iJi
Nýr salur „Þetta verður ekki lúx-
ussalur en með þvi besta sem
gerist i almennum sölum,“ segir
Magnús Geir Gunnarsson.
Laugarásbíó:
Nýr 200 manna salur
Eigendur Laugarásbíós ráðgera
að byggja nýjan kvikmyndasal sem
mun taka um 200 manns í sæti en
leyfisveiting vegna framkvæmd-
anna bíður nú afgreiðslu bygginga-
fulltrúa Reykjavíkur. Áætlað er að
salurinn muni rísa austan við nú-
verandi bíó og krefst framkvæmdin
þess að hluti Laugarásbíós, þar
sem salernin eru nú staðsett, verði
rifinn.
Að sögn Magnúsar Geirs Gunn-
arssonar, forstjóra Laugarásbíós, er
málið enn á frumstigi en áætlað
er að hinn nýi salur verði svipaður
að stærð og núverandi aðalsalur.
,,Hann verður svipaður að stærð en
það verða færri sæti. Þetta verður
ekki lúxussalur en með því besta
sem gerist í almennum sölum.“
í Laugarásbíói eru nú starfræktir
þrír bíósalir sem taka alls 450
manns i sæti. Eftir breytingarnar
verður því pláss fyrir 650 bíógesti.
Indland:
Bundinn við
tré í áratug
Fjölskylda indversks unglings-
pilts batt hann við tré með keðju
í tæpan áratug, en pilturinn á
við geðsjúkdóma
að stríða. Ind-
versk heilbrigð-
isyfirvöld
greindu frá
þessu en dreng-
urinn hefur nú
verið frelsaður
undan ánauð fjöl-
skyldu sinnar.
Faðir piltsins festi son sinn,
sem er 15 ára, við tré meðan fjöl-
skyldan fór til vinnu í því skyni
að koma í veg fyrir að hann
myndi bíta dýr og fólk.
Drengurinn hefur nú
verið fluttur á geðsjúkrahús
í Kolkata á Indlandi eftir að
honum var komið til bjargar sl.
mánudag.