blaðið - 17.08.2006, Page 6

blaðið - 17.08.2006, Page 6
6IFRÉTTIR FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 blaAÍA Hryðjuverkavarnir í Þýskalandi: Mega skjóta mbl.is | Þýsk stjórnvöld hyggjast breyta stjórnarskrá landsins á þann veg að öryggissveitum verði kleift, sem neyðarúrræði, að skjóta niður flugvélar sem hryðjuverka- menn hafa rænt. Þýski innanrík- isráðherrann, Wolfgang Scháuble, greindi frá þessu í dag í viðtali við dagblaðið Sáchsische Zeitung. Scháuble sagði að embættis- á flugvélar menn muni leggja drög að nýrri löggjöf og leggja til lagfæringar á stjórnarskránni í kjölfar þess að hæstiréttur landsins hafði vísað frá fyrri löggjöf um flugöryggi. Scháuble segir að réttlæta megi slíkar aðgerðir, þ.e. að skjóta niður flugvélar sem hryðjuverkamenn hafa rænt, ef það ógnar öryggis- hagsmunum Þýskalands. Skólavörðustíg 21 a Njálsgötumegin S. 551 4050 Mótmælendur komu sér fyrir á byggingakrönum Lögreglan ílífshættu við aö koma þeim niöur MyndirMoa Mótmæli á Reyðarfirði: msfi&sm-w Mótmælendur stöðvuðu allar framkvæmdir ■ Alcoa krefst skaðabóta i ■ Stofnuðu lífi sínu og lögregluþjóna í hættu 'iii'r-' Eftir Höskuid Kára Schram hoskuldur@bladid.net Fjórtán mótmælendur, flestir af er- lendu bergi brotnir, stöðvuðu allar framkvæmdir á byggingarsvæði álversins á Reyðarfirði í nærri átta klukkustundir í gær. Nokkrir þeirra náðu að klífa háa byggingarkrana og aðrir klifruðu uppá húsþök. Talið er að tjón Alcoa vegna mótmælanna hlaupi á tugum milljóna. Fyrirtækið hefur lagt fram kæru á hendur mótmælend- unum og mun hugsanlega krefjast skaðabóta. Þá er einnig hugsanlegt að lögreglan leggi fram kæru þar sem lífi lögregluþjóna var stefnt í hættu. Vel búnirtil klifurs „Vinna lá niðri í um átta klukku- stundir. Eftir að mótmælendunum fækkaði fór vinna í gang á þeim svæðum sem talin voru örugg,“ segir Erna Indriðadóttir, upplýsingafull- trúi Alcoa Fjarðaáls. Öll vinna við álverið á Reyðarfirði lá niðri í gærdag eftir að fjórtán einstaklingar, þar af einn íslenskur, náðu að koma sér fyrir á byggingar- svæðinu til að mótmæla framkvæmd- unum þar . Nokkrir klifruðu upp á húsþök og aðrir hlekkjuðu sig við hluti á jörðu niðri. Þá klifruðu þrír einstaklingar upp í tvo byggingar- krana sem staðsettir eru á svæðinu og komu sér þar vel fyrir. Voru þeir vel búnir til klifurs. Að sögn lögreglunnar á Eskifirði tók töluverðan tima að hreinsa svæðið af mótmælendum og naut hún til þess aðstoðar sérsveitar ríkislög- reglustjóra. Þá þurftu lögreglumenn að klifra upp í byggingarkranana tvo til að fjarlægja þá mótmælendur sem þar voru staddir. Búið var að hreinsa svæðið upp úr klukkan tólf í gær og voru mótmælendur færðir til yfir- heyrslu hjá lögreglunni á Eskifirði. Að sögn Ernu er ljóst að töluvert tjón hefur orðið vegna þeirrar vinnu- stöðvunar sem mótmælin ollu en áætlað er að hver vinnustund kosti Alcoa um 8 til 9 milljónir. „Það liggur ekki fyrir ákveðin upphæð en þetta getur hugsanlega hlaupið á tugum milljóna króna.“ Erna segir ennfremur mikla hættu hafa skapast á svæðinu á meðan mót- mælin fóru fram enda fái enginn undir venjulegum kringumstæðum að koma þar inn án þess að kynna sér ítarlega allar öryggisreglur. Þá segir hún að búist hafi verið við einhvers konar mótmælum á svæðinu í sumar en það hafi komið á óvart hversu fáir mættu. „Við reiknuðum með því að það yrðu mótmæli hjá okkur eins og í fyrra. Við erum þó mest undrandi hvað þetta eru fáir mótmælendur. Það var búið að fara út um alla Evr- ópu og fá fólk til að koma og mót- mæla á íslandi í sumar. Okkur fmnst þetta vera miklu færra fólk en við bjuggumst við að kæmi.“ Gistu fangageymslur Alcoa lagði strax í gær fram kæru á hendur mótmælendunum fjórtán fyrir að hafa farið í leyfisleysi inn á framkvæmdasvæðið og stofnað sjálfum sér og öðrum í hættu. í kærunni er einnig fyrirvari þar sem fyrirtækið áskilur sér þann rétt að krefjast skaðabóta vegna vinnustöðvunarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Eskifirði er hér að hluta til um sama hóp að ræða og haldið hefur uppi mótmælum við Kárahnjúka í sumar. Einnig voru þarna sömu ein- staklingar og stóðu fyrir mótmælum á Reyðarfirði síðasta sumar. Yfirheyrslur stóðu yfir langt fram á kvöld í gær og gistu þeir fanga- geymslur í nótt. Að sögn lögreglunnar á Eskifirði er að hugsanlegt að mómæl- endanna bíði einnig kæra frá lögregl- unni fyrir að hafa stofnað lífi lögreglu- þjóna í hættu. Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 24 mánuði (visa/euro) Engin útborgun Sjóntækjafræðingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga GLERAUGNAVERSLUN Gleraugað í bláu húsunum við Faxafen Sími: 568 1800 ^

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.