blaðið - 17.08.2006, Síða 11
blaðið FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006
FRÉTTIR I 11
framkvæmdastjóri Danskra daga.
„Þetta er fjölskylduhátíð undir
dönskum áhrifum fyrir Hólmara
og vini og vandamenn þeirra.“
Mikið verður um að vera en á
dagskránni er hverfahátíð þar sem
ellefu hverfi í Stykkishólmi keppa
um titilinn „Hverfi ársins“. „Á
dagskránni er leikhússýning, kvik-
myndahátíð, götumarkaður, sultu-
og marmelaðikeppni, fjöltefli með
Helga Ólafssyni, bryggjusöngur, úti-
tónleikar og margt fleira. Þá hefur
öllum götum bæjarins verið gefin
dönsk nöfn og bærinn hefur verið
skreyttur," segir Anna og bætir við
að um tólf þúsund manns hafi sótt
hátíðina í fyrra.
Haraldur segir að gestir Danskra
daga megi reikna með mildu veðri
með vætu annað slagið.
í góðum félagsskap Jörðin, tunglið, Plútó og Karon
Varnarsigur Plútó:
Fjölgun í hópi
reikistjarna?
Nefnd sem er skipuð stjarn-
eðlisfræðingum og vísindasagn-
fræðingum hefur komið sér
saman um nýja skilgreiningu á
reikistjörnum og nái hún fram
að ganga mun reikistjörnum í
sólkerfinu fjölga úr níu í tólf.
Kosið verður um tillöguna á
fundi Alþjóðasambands stjarn-
eðlisfræðinga (IAU) í Prag í Tékk-
landi í næstu viku og verði hún
samþykkt munu skólabörn læra
um að átta reikistjörnur - Jörðin,
Merkúr, Venus, Mars, Júpiter, Sat-
úrnus, Neptúnus og Úranus eru á
sporbaug um sólina auk fjögurra
annarra reikistjarna sem falla
undir undirflokkinn plútónur,
en auk Plútó og tungls hans, Kar-
ons, falla hnettirnir Ceres og
Xena undir þá skilgreiningu.
Ástæðan fyrir þessari umbylt-
ingu á skilgreiningum á himna-
taflinu er sú að deilur hafa magn-
ast upp meðal vísindamanna um
hvort beri að skilgreina Plútó
sem reikistjörnu. Plútó er minni
en tunglið og hefur hnötturinn
aðeins brot af massa jarðarinnar.
Sporbraut Plútó um sólina er ólík
braut annarra reikistjarna og líkist
frekar fyrirbrigði sem fyrirfinnst
í Kuiper-beltinu, sem er belti
íshnatta við braut Neptúnusar.
Deilan um stöðu Plútó á meðal
reikistjarnanna hefur harðnað
á síðustu árum ekki síst í kjölfar
þess að öflugri mælitæki hafa leitt
til uppgötvunar á fleiri íshnöttum
á jaðri sólkerfisins. Sumir þeirra
eru mun stærri en Plútó.
Fram til þessa hafa reiki-
stjörnur ekki haft neina vísinda-
lega skilgreiningu en yfirleitt á
hugtakið við stóran hnöttóttan
hlut sem er ekki stjarna en er á
sporbaug um stjörnu. ör þróun
á mælitækjum og sjónaukum
vísindamanna hefur gert það
að verkum að fjöldi fyrirbrigða
í sólkerfinu fellur undir þessa
skilgreiningu. Nefndin sem skil-
aði tillögunni fékk það hlutverk
að leysa þetta vandamál eitt
skipti fyrir öll. Hún hefur verið
að störfum í tvö ár og komust
nefndarmeðlimir að samhljóða
niðurstöðu. Nefndarformaður-
inn, Ivan Williams sem er pró-
fessor við Queen Mary háskól-
ann í London, segir að þar sem
undirflokkurinn plútónur nái
til hnatta handan Neptúnusar
sem fara á ílangri sporbraut um
sólina sé ekki ólíklegt að fjölga
muni í flokknum í framtíðinni.
Síminn
1...........■
a
SUMaRTILBOD
Á SAMSUNO SÍMUM
m
SAMSUNG D820
SAMSUNG X650
14.980 kr
37.980 kr.
Glæsileg hönnun. Örþunnur,
með stórum TFT hágæða
litaskjá og 1,3 MP myndavél
sem hægt er að snúa 180
gráður. Hægt er að tengjast
tölvu, handfrjálsum búnaði
og blátannarsímum i
gegnum blátannarbúnað.
Gullfallegur samlokusími,
sem býður upp á alla helstu
möguleikana. Meðal búnaðar
má nefna VGA myndavél og
hægt að taka upp hreyfimyndir,
FM-útvarp, 3MB minni, 6 klukku
stunda taltíma á rafhlöðu og
margt fleira.
rnú;; v
Nanari upplýsingar á siminn.is eða á næsta sölustað Simans.
.......i i -——VI
"
T'" """WM*
Eingöngu innan kerfls Símans