blaðið - 17.08.2006, Page 12
12 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 blaöiö
Hrafntinnusker:
Erlendur ferða-
maður lést
Banaslys varð við Hrafn-
tinnusker í gær þegar íshella
féll á erlendan ferðamann sem
þar var á ferð ásamt kunningja
sínum.
Neyðarlínunni barst til-
kyrining um slysið laust fyrir
klukkan níu í gærmorgun og
í kjölfarið var björgunarlið
ásamt þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar kallað út.
Fyrir tilviljun voru tveir
björgunarsveitarmenn frá
Akranesi staddir í nágrenni
við slysstað og hófu þeir strax
björgunaraðgerðir ásamt hópi
breskra ferðamanna sem voru
á svæðinu. Náðu þeir að grafa
ferðamanninn úr íshrönglinu
áður en hjálp barst en var hann
þá látinn.
Maðurinn var á fertugsaldri
og af þýsku bergi brotinn.
Dagblaðastríð:
Skógar
í hættu
mbl.is Umhverfisverndarsamtök
vara við því að aukin papp-
írsnotkun vegna
fríblaðastríðs i
Danmörku stofni
gróðri og dýralífi
í hættu í gömlum
skógum í Finnlandi.
Þeir eru notaðir í gerð
dablaðapappírs. Pappírsnotkun
mun aukast um þúsundir tonna
á ári hverju vegna dablaðanna
nýju. Danska fréttastofan
Ritzau segir frá þessu.
Fyrirtækin sem kaupa pappír
frá Finnlandi neita því að verið
sé að stofna skógunum í hættu,
en náttúruverndarsamtök á
borð við Greenpeace segja að
verið sé að fella gamla skóga.
* w
Könnun:
Siv myndi
efla flokkinn
Siv Friðleifsdóttir myndi efla
Framsóknarflokkinn meira
en Jón Sigurðsson í embætti
formanns Framsóknarflokksins.
Þetta er niðurstaða viðhorfs-
könnunar sem nokkrir stuðn-
ingsmenn Sivjar létu vinna.
Niðurstöður könnunarinnar
leiða í ljós að tæplega 40 prósent
svarenda telja að Siv myndi efla
flokkinn meira, en rúmlega ní-
tján prósent Jón. Um 28 prósent
telja báða frambjóðendurna
mundu efla hann jafnt. 400
manns voru spurðir.
Losun gróðurhúsalofttegunda af völdum urðunar:
Skikka ætti urðunarstaði
til að safna metangasi
■ Rekstraraðilum annarra urðunarstaða engin vorkunn að þurfa að safna gasi
■ Metangasið nýtt sem eldsneyti á bíla
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
„Fyrsta skrefið til að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda af
völdum úrgangs væri að skipa
fleiri urðunarstöðum að safna
metangasi til nýtingar," segir
Björn H. Halldórsson, deildar-
stjóri tækni- og þróunardeildar
Sorpu, en nú er einungis Sorpu
í Álfsnesi skylt að safna saman
metangasi. „Ég tel óþarfa að
eltast við allra minnstu urðun-
arstaðina, en ég held að rekstrar-
aðilum meðalstórra og stærri urð-
unarstaða sé ekki nein vorkunn
að safna saman þessari sterku
gróðurhúsategund.“
gróðurhúsalofttegund, eða rúm-
lega tuttugu sinnum sterkari en
koldíoxíð,“ segir Björn.
Að sögn Björns hefur eitthvað
dregið úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda af völdum úrgangs á undan-
förnum árum, vegna þess að á urð-
unarstað höfuðborgarsvæðisins
í Álfsnesi er nú skylt að safna gas-
inu og nýta, eða brenna það ella.
„Metanið er hreinsað og notað sem
ökutækjaeldsneyti og hins vegar í
rafstöð sem Orkuveita Reykjavík-
ur á og rekur.“
Björn segir að svo lengi sem
verið er að urða, verði hins vegar
alltaf einhver losun. „Erfitt er að
ná allri losuninni, en með góðum
„Metanbílarnir
eru orðnir
um fimmtíu'
Björn H. Halldórsson,
deildarstjóri tækni-
og þróunardeildar
Sorpu
200 þúsund tonn á ári
Samkvæmt tölum frá Um-
hverfisstofnun er um 200
þúsund tonna útblástur af
gróðurhúsalofttegundum á
ári hverju af völdum urðunar
úrgangs. Losunin á sér stað
á urðunarstöðum þar sem
lífrænn úrgangur er urðaður.
„Þar gerjast hann og til verður
það sem við köllum hauggas,
sem inniheldur koldíoxíð og
metan. Metan er ansi sterk
Kúafret er skaðlegra en koldíoxíð
■ Blaðið f gær.
undirbúningi og ef menn vita
hvað þeir eru að gera, þá ætti að
vera hægt að ná stærstum hluta
af þeim útblæstri sem kemur frá
urðunarstöðum. Síðan er hægt
að nota aðrar aðferðir við að gera
úrganginn skaðlausan, til dæmis
með því að framleiða metan úr
úrganginum og stjórna þannig
framleiðslu metans til einhvers
konar orkuframleiðslu.
Með sorpbrennslu og
jarðgerð má síðan draga
verulega úr losun met-
ans þó þeim aðferðum
fylgi einnig útblástur
gróðurhúsalofttegunda."
Stendur ekki undir sér
Björn segir að út frá
beinum fjárhagslegum
sjónarmiðum borgi sig
ekki að safna metangas-
inu. „Ef litið er á málið út
frá þjóðfélagslegum og um-
hverfislegum þáttum borgar það
sig hins vegar. Eins og staðan er
í dag myndi langmestur árangur
nást ef aðrir urðunarstaðir á land-
inu yrðu einnig skyldaðir til að
safna metangasi til nýtingareða
eyðingar."
Byrjað var að nýta metan sem
eldsneyti á bíla árið 2000. Þá voru
fluttir inn um tuttugu bílar til
landsins sem ganga fyrir metani,
en nú eru bílarnir orðnir rúmlega
fimmtíu. „Sorpa, íslandspóstur,
Strætó og fleiri fyrirtæki eru með
þessa bíla í notkun. Þá eru tveir
einstaklingar hér á höfuðborg-
arsvæðinu sem nota metanbíla.
Fjölgun bílanna hefur verið hæg
en sígandi,“ segir Björn og bætir
við að metanið sé eina innlenda
eldsneytið sem notað er í ein-
hverjum mæli.
Björn segir að ef stjórnvöld
hafi einhvern áhuga á útblásturs-
málum ættu þau að líta í eigin
barm. „Stjórnvöld búa til leik-
reglur samfélagsins. Ríkið hefur
til að mynda með núgildandi
skattaumhverfi hvatt almenning
til að kaupa gríðarlega orkufreka
pallbíla, sem valda mun meiri
losun gróðurhúsalofttegunda en
venjulegir bílar.“
Urðunarstaður Sorpu í Álfsnesi
Metangasi er safnaö saman og
nýtt sem bílaeldsneyti
Mynd/Þorkell
omsrumusio
TómstundahUslö,
Nethy! 2, sfmi 5870600,
www.tomstuhdahu8ld.is
MTKLU
SMÁAUGLÝSINGAR
blaöiöB
SMAAUQlYSiNQAReBUtHD.NET