blaðið - 17.08.2006, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2006 blaAÍÖ
menntun
¥
menntun@bladid.net
Breyttir tímar
Alls brautskráðust 67 með stúdentspróf á árunum 1847 tii 1855. Engin kona. Öld
siðar brautskráðust 1.485 á þessu sjö ára tímabili. Þar af 419 konur. Kynjahlutfall-
ið hefur heidur betur breyst. i fyrra útskrifuðust 13.320. Stúlkurnar 918 fieiri en
piltarnir samkvæmt tölum frá Hagstofu islands.
Endurmenntun:
Námskeið við
allra hæfi
Nú er orðið tímabært að skrá sig á
hin fjölmörgu námskeið sem standa
til boða í haust og vetur. Hjá Endur-
menntunarstofnun er hægt að fræð-
ast um allt á milli himins og jarðar.
Til að mynda er boðið upp á
sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir kon-
ur sem hefst 19. september. Annað
námskeið ber yfirskriftina: Starf-
ið, heimilið, lífið - skipulag í stað
álags. Fjölmörg önnur námskeið
eru í boði. Til dæmis er hægt að
fræðast um ævi og störf Sigmunds
Freuds, afrískan guðaheim á Kúbu,
vínsmökkun, Egilssögu, hvernig
rita skuli gott íslenskt mál og margt,
margt fleira. Svo nú er bara að drífa
sig á námskeið!
Rektor Listaháskólans:
Mikilvægt að skólinn
tengist inn í borgarlífið
son rektor. „Það sem
stendur á núna er
fyrst og fremst
staðsetning
skólans." Unn-
ið sé að lausn í
samvinnu við
menntamála-
ráðuneytið. Að-
spurður hvaða
hugmyndir séu
uppi um stað-
setningu segir
Hjálmar: „Mótuð
stefna skólans er
að vera í miðborg
Reykjavíkur, en óljóst
er hvaða möguleik-
ar eru þar fyrir
hendi. Þá
hefur
Allt frá stofnun
Listaháskólans hafa
húsnæðismálskól-
ans verið á hálf-
gerðum hrakhól-
um og erfiðlega
hefur gengið að
koma starfsem-
inni fyrir undir
einu þaki. Rekt-
or skólans segir
ástandið vera
óásættanlegt og
hann kallar á fram-
tíðarlausn fyrir jól.
„Búið er að vinna
alla undirbúnings-
vinnu, komin þarfa-
greining og hugmynd
ir liggja fyrir að
fjármögnunar-
leiðum,“ segir
Hjálmar H.
Ragnars-
einnig verið til umræðu samvinna
við Háskólann í Reykjavík á nýju
svæði hans í Öskjuhlíð." Aðspurður
hvernig honum lítist á þá hugmynd
segir Hjálmar að hún bjóði upp á
aðra kosti en miðbæjarstaðsetn-
ing. „Kostir og gallar eru á báðum
hugmyndunum. En við teljum afar
mikilvægt fyrir Reykjavíkurborg
að Listaháskólinn tengist inn í borg-
arlífið."
Hjálmar minnir á að fyrir liggi
yfirlýsing frá fyrrverandi borgar-
stjóra þess efnis að borgin vilji
leggja lóð undir skólann með sama
hætti og gert hefur verið fyrir aðra
skóla. Skólinn hafði sóst eftir að fá
úthlutað lóð á svæðinu í kringum
væntanlegt tónlistarhús við höfn-
ina. Hjálmar segir að nú hafi kom-
ið í ljós að sú staðsetning hafi 1 för
með sér talsverða annmarka, bæði
hvað varðar byggingamagn og aðr-
ar takmarkanir. „Það er ljóst að
við höfum ekki svigrúm til stækk-
ana á því svæði.“
Þegar Hjálmar er spurður hve-
nær hann áætli að lausn finnist á
húsnæðisvandanum segist hann
fara varlega í þesskonar spádóm-
um. „Ég hef áður sett mér markmið
í þessu máli sem ekki hafa tekist,
en ég held að það sé afar mikilvægt
að þetta verði leyst á yfirstandandi
kjörtímabili núverandi ríkisstjórn-
ar. Ég ætla að vona að við fáum nið-
urstöðu í þetta mál fyrir jól.“ Hjálm-
ar segir núverandi aðstöðu vera
óásættanlega en skólinn er staðsett-
ur á þremur aðalstöðum og nokkr-
um minni víðs vegar um borgina.
„Þetta háir öllu skólastarfi auk þess
sem rekstrarkostnaðurinn er meiri
en hann þyrfti að vera. Þetta þýðir
að sú samtvinnun listgreina sem
skólinn byggir á er handþvinguð,“
segir Hjálmar H. Ragnarsson, rekt-
or Listaháskóla Islands.
á stangavelöivörum
i
7^2*
Vesturrost
Serverslun v e i ð i m a n n s i n s
Laugavegi 178-105 Reykjavik
Símar 551 6770 & 553 3380 - Fax 581 3751
vesturrost@vesturrost.is - www.vesturrost.is
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Iðnskólinn í Reykjavík Yfir 1.500 nemendur stunda þarnám
Skólameistari Iðnskólans i Reykjavík:
Straumurinn liggur í
hárgreiðslu og hönnun
Iðnnám verður sífellt
vinsælla og straumurinn
liggur fyrst og fremst í í
hárgreiðslu- og hönnun-
arnám samkvæmt Baldri
Gíslasyni, skólameistara
Iðnskólans í Reykjavík.
Hann segir að rúmlega
1.500 nemendur muni
stunda nám í dagskóla
við Iðnskólann í Reykja-
vík í vetur en rúmlega
tvö þúsund sé kvöldskóli
og fjarnám tekið með í
reikninginn.
„Það hefur verið mikill uppgang-
ur hjá þeim skólum sem bjóða upp
á iðnnám og það komast ekki all-
ir að hér hjá okkur,“ segir Baldur
Gíslason, skólameistari Iðnskólans
í Reykjavík. „Við höfum alltaf þurft
að vísa einhverjum frá en það er mis-
jafnt eftir brautum. Á sumum braut-
um þurfum við aldrei að vísa frá.“
Að sögn Baldurs eru vinsælustu
brautirnar núna hönnun
og hársnyrting. Alls eru
48 nýnemar teknir inn
í hársnyrtingu ár hvert
en nokkur hundruð nem-
endur stunda þar nám.
„Hársnyrting hefur alltaf
verið vinsælt fag. Meiri-
hluti þeirra sem sækja
um eru stelpur en sem
betur fer hafa strákar
líka áhuga á að stunda
þetta nám.“
Þá hefur áhugi á bygg-
ingagreinum og marg-
miðlun aukist töluvert á undanförn-
um árum. Baldur talar um mikla
uppsveiflu í áhuga á margmiðlun-
arnámi. „Það hefur verið mikil upp-
sveifla i aðsókn að margmiðlunar-
námi á síðastliðnum tveimur árum
eftir frekar mögur ár þar á undan.
Þá hefur nemendum í grunndeild
byggingagreina fjölgað verulega á
sama tíma.“
Baldur Gíslason,
skólameistari