blaðið - 14.11.2006, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
blaöi6
INNLENT
HÉRAOSDÓMUR
Sancy dæmdur
Skipsljóri færeyska togarans Sancy TG-519 var
dæmdur i þrjátíu daga fangelsi skilorösbundiö
til tveggja ára fyrir fiskveiðibrot innan íslenskrar
landhelgi. Þá er honum einnig gert að greiða sex
hundruð þúsund til Landhelgissjóðs íslands.
Uppgjör undir væntingum
FL Group skilaði 11,3 milljarða króna hagnaði fyrir skatta
fyrstu níu mánuði ársins, sem er fjörutíu prósent meira
en á sama tímabili í fyrra. Hagnaðór af rekstri á þriðja árs-
fjórðungi nam fimm milljörðum króna. í frétt frá Greiningu
Glitnis segir að uppgjörið sé undir væntingum.
HÉRAÐSDÓMUR
Ár fyrir líkamsárás
Maður var dæmdur í árs fangelsi fyrir að slá lögregluþjón á
Akureyri með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð
á vörina. Árásarmaðurinn átti talsverðan sakaferil auk þess
að hafa verið með amfetamín á sér. Því telur Héraðsdómur
Norðurlands eystra ekki mögulegt að skilorðsbinda dóminn.
Kaupmannalíöfn:
Dagur Kári
heiðraður
Dagur Kári Pétursson kvik-
myndaleikstjóri mun taka við
Peter Emil Refn-kvikmyndaverð-
laununum í
Kaupmanna-
höfn þann
22. nóvember
næstkomandi.
Dagur
Kári er
fimmti
leikstjórinn
sem hlýtur
verðlaunin, en fyrri verðlauna-
hafar hafa verið Lars von
Trier, Lukas Moodyson, Nicolas
Winding Refn og Natasha Art-
hy. Með verðlaununum fylgja
einnig peningaverðlaun upp
á 105 þúsund danskar krónur.
Daginn eftir afhendinguna
verður svo haldið sérkvöld með
Degi Kára á dansk-íslenskum
bíódögum á Norðurbryggju.
Kvikmyndin Nói albínói verður
þar sýnd ásamt stuttmynd-
inni Old Spice og mun Dagur
Kári svara spurningum áhorf-
enda að sýningum loknum.
Bandaríkin:
McCain og Gi-
uliani óákveðnir
Rudy Giuilani, fyrrum borgar-
stjóri New York, segist ekki ætla
að ákveða sig fýrr en á næsta ári
hvort hann
sækist eftir
útnefningu
repúblikana
í forsetakosn-
ingunum árið
2008. Annar
líklegur fram-
bjóðandi repú-
blikana, öld-
ungadeildarþingmaðurinn John
McCain, lýsti því einnig yfir í gær
að hann myndi ekki ákveða neitt
um framboð fyrr en effir áramót.
Óveður:
Sex ferðamenn
í bíl sem valt
Mbl.is Sex erlendir ferðamenn
voru í bíl sem valt við Litlu kaffi-
stofuna síðdegis í gær. Meiðsl á
fólki voru minniháttar. Það var
þó flutt á sjúkrahús til skoðunar.
Þá þurfti björgunarsveitin
Súlur á Akureyri að sækja fjóra
bíla sem sátu fastir í vestan-
verðu Víkurskarði nú síðdegis.
Vont veður og ófærð er í
Víkurskarði, fjórtán til fimm-
tán metra vindur á sekúndu,
skafrenningur og lítið skyggni.
Rpli fPflj
HlD- - f l
Tugur afbrota upplýstur á Akranesi:
Kveiktu í, stálu og börðu
■ Stálu golfbíl ■ Kveiktu í vinnuskúr ■ Mál unglinganna til félagsmálayfirvalda ■ Sniffuöu gas
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
,Þetta var bara bölvaður prakkara-
skapur," segir Jón Ólason, yfirlög-
regluþjónn á Akranesi, en tugur
afbrota var upplýstur um helgina
þegar lögreglan náði í hnakka-
drambið á níu 14 ára unglingum.
Þeir voru uppvísir að fjölda afbrota
sem þeir frömdu um sumarið og
fram á haust. Þar bar hæst íkveikjur,
innbrot og líkamsárás.
Afbrotafaraldurinn hófu þeir
um mitt sumarið með skemmdar-
verkum við leikskóla í bænum. Ein-
hver vitni voru að skemmdunum og
báru þau kennsl á unglingana. Við
rannsóknina kom í ljós að sömu
ungmennin höfðu verið uppvís að
reiðhjólaþjófnaði, eignaspjöllum,
innbroti, íkveikju, nytjastuldi og lfk-
amsárás ásamt minni brotum.
Þar var meðal annars innbrot í
golfskála í bænum þar sem ungling-
arnir brutust inn og tóku bíllykla af
golfkerru í eigu golffélagsins. Dag-
inn eftir komu unglingarnir aftur
og stálu kerrunni. Þeir óku um æf-
ingasvæði vallarins og spændu upp
grasið og af varð talsvert tjón.
f lok sumars réðust þeir að ung-
lingi sem slasaðist þó ekki mikið
við átökin.
Þá kveiktu ungmennin níu í vinnu-
skúr ásamt því að vinna skemmdir á
nýbyggingum í bænum. Einnig kom
í ljós að þau höfðu verið að fikta með
gaskúta í tilraunum til að komast í
vímu. Þau reyndu einnig að sniffa
kveikjaragas en verslunarmenn í
bænum neituðu að selja þeim vegna
gruns um að gasið ætti að sniffa.
„Þetta er nú ekki þekktur hópur
hérna í bænum,“ segir Jón og bætir
við að það hafi komið á óvart hverjir
voru í hópnum, því ekki væru allir
unglingarnir þekktir sem vandræða-
unglingar. Hann segir lögregluna
hafa á tímabili verið ráðalausa vegna
framferðis unglinganna.
Lögreglan upplýsti málið í góðri
samvinnu við foreldra, skóla og fé-
lagsmálayfirvöld og segir samstarfið
við foreldrana ómetanlegt og mikils
metið.
Málum ungmennanna hefur verið
beint til félagsmálayfirvalda en
foreldrar þeirra eru ekki skaðabóta-
skyldir vegna afbrotanna.
Bæjarráð Akraness samþykkti, í
síðustu viku, að ráða tómstunda- og
forvarnarfulltrúa til bæjarins en það
starf er nýtt i bænum.
Passamyndatökur hjá sýslumönnum:
Ljósmyndarar krefjast breytinga
Starfsemi einnar ljósmyndastofu
hefur verið lögð niður eftir að passa-
myndatökur hófust hjá sýslumanns-
embættum í maílok i fyrra. Hætta
er á að fleiri stofur verði lagðar
niður vegna tekjumissis. Þessu una
ljósmyndarar ekki. Mál þeirra gegn
dómsmálaráðuneytinu var tekið fyrir
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
„Við viljum að minnsta kosti að
sama gjald verði tekið fyrir sömu
þjónustu,” segir Gunnar Leifur Jón-
asson, formaður Ljósmyndarafélags
íslands. Hann segir félagið enn ekki
hafa skilgreint kröfur sínar að öðru
leyti.
Passamyndataka hjá sýslumanni
er ókeypis en kostar um 2.500 krónur
áljósmyndastofu.
„Það er verið að ganga inn á okkar
verksvið. Iðnréttindi eru ekki virt.
Hjá sýslumanni er það ekki ljósmynd-
ari sem sér um myndatökurnar,”
bendir Gunnar á. „Þessu var hrint í
Ljósmyndarar gegn dómsmálaráðu-
neytinu Héraösdómur Reykjavíkur
framkvæmd 23. maí í fyrra þótt lögin
hafi ekki verið samþykkt fyrr en 6.
júni. Við vorum aldrei spurðir og
fengum ekkert bréf. Það var ekki fyrr
en í kjölfar fundar í fyrrahaust, sem
við höfðum farið fram á, sem sam-
þykkt var að við fengjum að halda
áfram að taka passamyndir að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum. En þar
sem myndatakan er ókeypis hjá sýslu-
mönnum er um hreina ríkisvæðingu
að ræða.”
HEREFORP
S T E I K H Ú S
I-augavegur 53b • 101 Reykjavfk
5 11 3350 • www.hercTord.is
/(>L((/i/a/a/ ma) /(htj/u /ýaf ^ttn tnitt/ufa tí/Juti/itufaría
Verð 5.500 á mann, aðeins 4.900 á fimmtudögum og sunnudögum /Boröapantanir
'tMSm
Hereford nautasteikurnar eru rómaðar, þú velur stærð, steikingu og meðlæti. Magnað!