blaðið - 14.11.2006, Síða 15
blaðift
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 15
Al-Jazeera-fréttastöðin:
Sendir út á ensku
í fyrsta sinn
Arabíska fréttastöðin al-Jazeera
mun hefja útsendingar á ensku á
morgun. Forráðamenn stöðvarinnar
vilja með því riðla þeirri yfirburða-
stöðu sem bandarískar og breskar
gervihnattastöðvar hafa haft í flutn-
ingi á fréttum og bjóða upp á annan
vinkil en hinn vestræna í frásögn af
atburðum líðandi stundar. Stöðin
hefur ráðið til sín þekkta frétta- og
sjónvarpsmenn eins og David Frost,
Rageh Omar og Darren Jordan.
Sjónvarpsstöðin al-Jazeera er
þekktust á Vesturlöndum fyrir að
birta upptökur frá hryðjuverka-
foringjanum Osama bin Laden
og öðrum leiðtogum A1 Kaída-
hryðjuverkanetsins. Forráðamenn
stöðvarinnar hafa sagst ætla að
fara varlega í að birta slíkar upp-
tökur en einnig forðast hugtök
eins og „hryðjuverkamaður” og
,sjálfsmorðssprengjumaður” sem
einhverjum af áhorfendum stöðv-
arinnar kann að þykja gildishlaðin.
Útsendingar stöðvarinnar er beðið
með töluverðri eftirvæntingu í Evr-
ópu en þar mun hún nást á fjörutíu
milljónum heimila.
Hinsvegar hefur aðstandendum
hennar gengið verr að fá að koma
stöðinni í almenna dreifingu í
Bandaríkjunum.
, KIK
Frost og Rumsfeld Sjonvarpsmaðurinn
David Frost hefur hafið störfá arabísku
sjónvarpsfréttastöðinni al-Jazeera.
Fríblaðaútburður:
Vilja setja
lög og reglur
Mbl.is Jafnaðarmannaflokkurinn
í Danmörku hefur lagt fram
tillögu um að hægt verði að refsa
útgefendum fríblaða ef slík blöð
eru sett í póstkassa eða inn um
bréfalúgur á íbúðum þrátt fyrir
að á þeim séu merkingar þar sem
slíkur fjöldapóstur er afþakkaður.
„Neytendur eiga að hafa rétt til
að afþakka fríblöð. Margir borgar-
ar eru orðnir dauðþreyttir á að
bera bunka af fríblöðum út um
dyrnar þótt þeir hafi afþakkað
þau. Nú ríkir lögleysa á þessu
sviði og við viljum gjarnan koma
þar á lögum og reglu,“ segir
Karen Hækkerup, talsmaður
flokksins í neytendamálum.
Dönsku neytendasamtökin
standa nú fyrir könnun meðal
almennings og segir Ritzau-frétta-
stofan, að þar komi í ljós, að 87
prósent aðspurðra vilja gjarnan
fá héraðsfréttablöð send heim
en vilja geta afþakkað frfblöðin,
sem gefin eru út á landsvísu.
Palestína:
Shabir fyrir
ríkisstjórninni
Staðfest var í gær að Mohamm
ad Shabir tekur við af Ismail
Haniyeh í embætti forsætisráð-
herra og mun leiða þjóðstjórn
Hamas- og Fatah-hreyfinganna.
Haniyeh hafði lýst því yfir um
helgina að hann væri reiðubúinn
að segja af sér embætti og myndi
ekki taka sæti í þjóðstjórninni.
Unnið er að myndun þjóðstjórn-
ar til að binda enda á alþjóðlega
einangrun palestínsku heima-
stjórnarinnar: nánast allur stuðn-
ingur við palestínsk stjórnvöld
hvarf í kjölfar þess að Hamas
myndaði ríkisstjórn á þessu
ári sökum herskárrar stefnu
samtakanna gagnvart ísrael. Eitt
erfiðasta deilumálið við myndun
þjóðstjórnarinnar var hver ætti
að skipa embætti forsætisráð-
herra. Shabir, sem er sextugur,
er sagður hafa náin tengsl við
Hamas-samtökin en er ekki
virkur stuðningsmaður þeirra.
Vaxtalaus nóvember
Vaxtalaus
VISA Lán í allt
að 12 mánuði
®kr. 261.700
I Vaxtaiaust VISA Lán til 12 mánada •
á mánuði
• kr. 21.808.
CALIAITALIA SÓFASETT 3+2
Vandað og afar glæsilegt sófasett alklædd hágæða ítölsku leðri.
Einnig er hægt að fá stóla í þessu sama módeli. Fáanlegurl
dökkbrúnu og beige.
Sett kynniracaliaitalia gæða
húsgögn á ótrúlegu verði!
Pessar vörur eru til afgreiðslu samdægurs
Caliaitalia, sem framleiðir þekkt gæðahúsgögn
á Italíu, var stofnað 1965 af húsgagnasmiönum
Liborio Vincenzo Calia. Allar götur síðan hefur
fyrirtækið vaxið og dafnað og er eitt hið fremsta
sinnar tegundar á Ítalíu I dag. Caliaitalia er best
þekkt fyrir gæði, styrkleika, einstaka hönnun og
hagstætt verð.
■kr. 169.900.-
Vaxtalaust VISA Lán til 12 mánaða * kr. 14.158.- á mánuði
CALIAITALIA 3JA SÆTA HÆGINDASÓFI
Ótrúlega þægilegur þriggja sæta hægindasófi alklæddur
hágæða ítölsku leðri. öll þrjú sætin eru með fótskemli
og hallanlegu baki.
■ kr. 239.700.-
Vaxtalaust VISA Lán til 12 mánaða • kr. 19.975.“ á mánuði
CALIAITALIA 3+2 SÓFASETT
Glæsilegt sófasett alklætt hágæða ítölsku leðri. Þessi mundi
sóma sér vel í stofunni. Einnig er hægt að fá stóla í þessu
sama módeli. Fáanlegur í dökkbrúnu og beige.
■kr. 219.900,-
Vaxtalaust VISA Lán til 12 mánaða • kr. 18.325.- á mánuði
CALIAITALIA TUNGUSÓFI
Glæsilegur tungusófi alklæddur hágæða ítölsku leöri.
Nýtískulegur sófi sem er til á lager með tungu beggja megin.
Fáanlegur í Ijós beige og svörtu.
VISA OG EURO
RAÐGREIÐSLUR
VISMán
- HAGSTÆDAR AFBORGANIR
HÚSGAGNAVERSLUN
OPNUNARTÍMI: MÁNUD - FÖSTUD 11,00 - 18,00 LAUGARDAGA 11.00 - 16:00 SUNNUDAGA 13:00 -16:00
SETT HÚSGAGNAVERSLUN • ASKALIND 2A • 201 KÓPAVOGUR • SfMI 534 1400 • WWW.SETT.IS
kaldaljós 2006