blaðið - 14.11.2006, Page 22

blaðið - 14.11.2006, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 blaðið Kæri Illugi Sæll Illugi. Ég þekki þig af góðum útvarps- þáttum, og oft skemmtilegri þjóð- félagsrýni. Þess vegna fannst mér þú fara rangt að þegar þú skrifaðir opið bréf til Mariönnu Barböru konu minnar í Blaðinu n. nóvember sl. Ég hef gætt þess að halda fjöl- skyldu minni utan við stjórnmálin sem oft getur verið rætin í garð einstakra stjórnmálamanna. Fjöl- skylda stjórnmálamanna verður að fá vera í friði. Þess vegna fannst mér miður að þú skyldir ekki beina orðum þínum til mín. Enginn af talsmönnum Frjálslynda flokksins hefur mælt styggðaryrði í garð þess fólks sem flutt hefur hingað til landsins á undanförnum árum. Varnaðarorð okkar hafa verið vegna mikils innstreymis útlendinga á stuttum tíma. Við höfum kallað eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Nú hefur ríkisstjórnin tekið tvær ákvarð- anir eftir að umræðan hófst sem við teljum vera til bóta fyrir framtíðina. I vor skoðuðum við þessi mál vel og komumst að þeirri niðurstöðu að það væri varhugavert að við- halda ekki fyrirvaranum varðandi nýju Evrópusambandslöndin. Við vöktum athygli á þessu og Magnús Þór Hafsteinsson alþingismaður flutti vandaða ræðu af því tilefni sem þú getur kynnt þér. Þar var ekki farið fram með fordómum heldur varað við. Ekki veldur sá sem varar. Jón Magnússon hrl. gerði í fjöl- miðlum nýverið grein fyrir mjög vax- andi aðstreymi fólks hingað til lands og að aðkallandi væri að stjórnvöld brygðust við. Mótaðar yrðu reglur og upplýsingagjöf svo þjóðfélagið þróaðist ekki í þá átt að hér byggju tvær eða fleiri þjóðir í landinu. Sjón- armið hans og áhyggjur eru sama eðlis og við kynntum í vor í um- ræðum á Alþingi. Hann ítrekaði þá stefnu og varnaðarorð sem við höfðum flutt á Alþingi um að mikil fjölgun innflytjenda yrði vandamál og að ríkisstjórnin sem öllu ræður Skorar á llluga Jökulsson að ræða stjórnmál , yi W við sig en ekki konu sína fff 5 v> Umrœðan Guðjón A. Kristjánsson aðhefðist ekkert í málinu. Stefna Frjálslynda flokksins í þessum málum er skýr og hefur verið áréttuð af miðstjórn flokksins. Við erum flokkur frjálslyndis og trú- frelsis sem ber virðingu fyrir fólki hvaðan svo sem það er. Allir tals- menn Frjálslynda flokksins hafa tekið þetta fram og eru sammála þessu. Nú er það þannig minn kæri Illugi að sá sem setur fram skoðanir ræður því ekki alltaf hvernig þær eru túlk- aðar. Mér brá þegar nokkrir Sam- fylkingarmenn í prófkjörsbaráttu gripu þessi ummæli okkar á lofti og veittust að okkur gjörsamlega að til- efnislausu. Best hefði verið að taka upp harða vörn fyrir launþega á al- mennum vinnumarkaði sem búast má við að settir verði í varnarstöðu á næstu misserum vegna þess mikla fjölda erlendra starfsmanna sem hingað eru komnir og halda áfram að koma til landsins. Illugi, ég ítreka það að ákall okkar sl. vor var um aðgerðir, umræðan nú vakti ríkisstjórnina. Ríkisstjórnin hefur nú brugðist við af því að við kröfðumst aðgerða. Veittar hafa verið íoo milljónir til íslensku- náms, fyrirvari um inn- flutning vinnuafls nýju þjóðanna sem ganga inn í ES á næstunni var nýttur og boðaðar eru aðgerðir ríkisstjórnarinnar og vinnumarkaðarins. Við frjálslynd erum stolt af því að hafa haft þessi áhrif. Heldur þú Illugi að þetta hefði verið gert hefði þjóðin ekki svarað varnaðar- orðum okkar með þeim krafti sem hún gerði? í framtíðinni bið ég þig um að stíla pólitísk skrif þín á mig en ekki konu mína. Illugi, hvernig heldur þú að umræðan hefði þróast hefði strax verið tekið undir varnaðarorð okkar og bent á að hér væri hreyft mikil- vægu máli þar sem ríkisstjórnin hefði sofið á verðinum? Þá hefði umræðan þróast í þann farveg sem við vildum láta hana þróast, til aðgerða í stað upphrópana. Ábyrgðin er þeirra sem vilja kæfa eðlilega lýðræðislega umræðu en ekki okkar sem viljum standa vörð um velsæld í landinu, íslenska tungu og ís- lenskan menningararf hvort heldur það er vin- sælt eða óvinsælt. Ég bendi þér á grein nafna þíns Gunnarssonar í Fréttablaðinu 12 nóv. sl. Hann veit að það er ekki vandalaust verkefni að taka við þúsundum atvinnuleitenda sem ekki skilja íslensku og oft ekki ensku heldur, inn á vinnumarkað- inn á einu ári. Með kveðju, Guðjón A. Kristjánsson. Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. Já, ennþá sannast það; Islendingar styðja hvalveiðar Skoðanakönnunin í Fréttablað- inu á laugardag um hvalveiðar er tíðindarík. Hún leiðir í ljós að stuðningur við hvalveiðar er mjög afgerandi hjá íslensku þjóðinni. Við vissum að stuðningur við hval- veiðar hefur verið mikill. Andstæð- ingar hvalveiða töldu á hinn bóginn að slíkur stuðningur væri eingöngu við prinsippið; réttinn til hvalveiða. Dæmið myndi snúast við þegar til stykkisins kæmi. Þeir hafa reynst hafa á röngu að standa, eins og í flestu öðru í þessum málflutningi. Afstaða þjóðarinnar er skýr. Islendingar vilja hvalveiðar. íslendingar styðja ákvörðunina. Hún nýtur stuðnings alls almennings í landinu. Fjölmiðlar fóru hamförum Vel hefði mátt ímynda sér að af- staða fólks hefði breyst. Alveg frá fyrsta degi ákvörðunarinnar um hvalveiðar hafa áhrifamiklir fjöl- miðlar gengið fram fyrir skjöldu í andstöðu sinni við ákvörðun mína frá 17. október. Morgunblaðið fór hreinum hamförum í andstöðu sinni í leiðurum og við blasti öllum hvernig fréttir mörkuðust af afstöðu blaðsins. Blaðið hefur verið í hreinu og samfelldu önuglyndiskasti í rit- stjórnargreinum Sigurjóns M. Eg- ilssonar og leyndi því heldur ekki í efnistökum sínum í blaðinu. Stöð 2 birti daglega neikvæðar fréttir í heila viku vegna hvalamálsins og reyndi ekki einu sinni að leita eftir gagnstæðum sjónarmiðum, þar til ég fékk tækifæri til þess að svara fyrir mig með rækilegum hætti í ís- landi í dag. Fréttablaðið birti á hinn bóginn fréttir þar sem fram komu gagnstæð sjónarmið og raddir mun fleiri fengu að heyrast. Rödd sjávarútvegs- íns heyrðist ekki Þá var það athyglisvert að sjónar- mið okkar helstu atvinnugreinar, sjávarútvegsins, fengu alls ekki að heyrast í þessari hvalaumræðu í fjölmiðlum. Mætti þó ætla að þessi Afstaða almenn- áL. * ingserskýren fjölmiðlar tala öðrum rómi Einar K. Guöfinnsson sjónarmið væru jafn gild og önnur og rúmlega það. Hins vegar er mér til efs að finna megi hvalaskoðun- arfyrirtæki sem ekki var dregið fram á völlinn til þess að láta í sér heyra íþessari umræðu. Sjónarmið sjávarútvegs voru sniðgengin. Sjón- armiðum andstæðum hvalveiðum var gert hátt undir höfði. Athyglisvert var einnig að í um- ræðum komu bæði Samfylking og Vinstri grænir fram sem einarðir andstæðingar hvalveiðanna og ákvörðunar minnar. Hvergi kom fram í þessum flokkum annað sjónarmið, þó vel væri vitað að slík afstaða væri mjög til staðar innan þeirra. Frambjóðendur í prófkjörum skrifuðu greinar af mikilli heift og reiði gegn þessari ákvörðun. Þarna beittu tveir áhrifa- miklir stjórnmálaflokkar sér í raun gegn hvalveiðum. Alitsgjafar, aflagðir spunadokt- orar og sjálfskipaðir skoðanamiðl- arar fóru fram í heilum herskörum gegn þessari ákvörðun á blogg- síðum og í fjölmiðlum. Almenningur talar skýrum rómi Éinmitt í ljósi þessa er það þeim mun ánægjulegra að sjá og heyra í þessari skoðanakönnun hversu einörð sjónarmið almennings eru. Gegn straumi fjölmiðlaumræð- unnar fer almenningur og styður sjónarmið um sjálfbærar veiðar, rétt okkar til nýtingar auðlindar- innar og lætur ekki sveigja sig af braut sinni. Það eru örugglega mikil vonbrigði fyrir allt það fólk og þá fjölmiðla sem það stýrir að skynja algjört áhrifaleysi sitt. Og stjórnmálamennirnir sem tóku völdin í þessari umræðu í flokkum sinum hljóta nú að hugsa sinn gang. Um leið er þetta hvatning til þess mikla fjölda fólks sem starfar innan Vinstri grænna og Samfylkingar og styður hvalveiðar að láta nú til sín taka. Skoðanakönnunin leiðir í ljós að það á mikla samsvörun innan flokka sinna og hjá öllum almenn- ingi í landinu. Það fólk sem talið hefur sig af- bragð annarra - elítu - samfélags- ins og hefur reynt að hafa vit fyrir almenningi í þessu máli hugsar von- andi sinn gang og reynir að virða sjónarmið þess þorra þjóðarinnar sem lætur síbylju áróðurs ekki hrugga við vel ígrunduðum skoð- unum sínum. Á undanförnum vikum, frá því að ákvörðunin var tekin þann 17. okt- óber sl„ hef ég fundið gríðarlegan stuðning við ákvörðun mína. Þetta hefur verið uppörvandi og sannar- lega er gott að finna svo mikinn og víðtækan stuðning fólks; meðal ann- ars fólks sem haft hefur samband og vikið sér að mér úti á götu til þess að láta í ljósi jákvæða afstöðu sína. En merkilegt er að sjónarmið þessa fólks hafa átt afskaplega torveldan aðgang að fjölmiðlaumræðunni. Höfundur er sjávarútvegsráðherra. Rafgeymar 'j ^ v Dekkjaþjónusta www.hasso.is Car-rental / Bílaleiga ... 1 1 1 I I >i ' _l II f J * sf~ f r.i ' I III Vetrardekk - Heilsarsdekk - nagladekk - loftboludekk Betri verð1 Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.