blaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 24
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 blaöiö
Þarftu betri bíl?
Bílasamningur // Bílalán // Einkaleiga \
LYSING.IS // 540 1500
Gúmmívinnustofan
SP dokk
POlAft
""" VETRARDEKK
JEPPLINGADEKK
POLAR RAFGEYMAR
GÚMM
Skipholti 35 105
Sími: 553 1055
www.gummivi
Opið: Mán - fös
Verðdæmi:
Spindilkúla Golf "98 1637 kr.
Spyrna Opel Astra "98 6027 kr
iw.kistufell.com
24 I BlLAR
+
Ökunámskeið
ungra ökumanna
, , J i
1 1 ^ - 1
erfið skilyrði Þátttakendurá námskeiðun-
um fá meðal annars tækifæri til að prófa
ölvunargleraugu og upplifa akstur við
erfið skilyrði.
í ljósi tíðra umferðarslysa að
undanförnu hafa hinir ýmsu aðilar
efnt til áróðursherferða með það
fyrir augum að stemma stigu við
hraðakstri á götum úti. Sjóvá For-
varnahús lætur ekki sitt eftir liggja
í baráttunni, en það hóf á dögunum
námskeiðahald fyrir unga ökumenn.
Þörfin fyrir markvissa fræðslu fyrir
unga ökumenn hefur sjaldan verið
meiri og því var afráðið að setja
námskeiðin, sem eru um fimm
klukkustunda löng, af stað.
Að sögn Einars Guðmundssonar,
forstöðumanns Sjóvár Forvarna-
húss, hafa námskeiðin mælst vel
fyrir hjá ungum ökumönnum og all-
flestir hafa bæði gaman og gott af.
„í rauninni erum við að end-
urvekja námskeið sem Sjóvá stóð
fyrir í 9 ár, en árangurinn af því
starfi var mjög góður. Hjá þeim
rúmlega 6000 ökumönnum sem
sótt hafa námskeiðin má sjá að
tjónum hefur fækkað um 5000 og
1100 færri einstaklingar slasaðir en
hjá samanburðarhópnum. Einnig
er það greinilegt að þeir sem valdið
hafa tjónum eftir námskeiðin hafa
að meðaltali valdið minni tjónum
þar sem færri einstaklingar slas-
ast,” segir Einar. Hann segist þess
fullviss að námskeiðin komi til
með að skila góðum árangri og að
þátttakendur verði meðvitaðri um
hættur umferðarinnar. „Árangur-
inn er sláandi góður. Þetta er mjög
mikilvægt í ljósi allra hræðilegu
slysanna sem verið hafa í sumar og
haust hjá unga fólkinu, en i kjölfar
alls þessa ákváðum við að fara út í
námskeiðin aftur. Við erum að sjá
að tjónatíðnin lækkar allt að þre-
falt hjá krökkunum, en við erum
með kennitölur hvers og eins og
fylgjumst vel með. Þá er greinilegt
að krakkarnir átta sig betur á hvar
hætturnar eru í umferðinni og við
hvaða aðstæður óhöppin gerast.”
Lifandi framsetning og
virkir þátttakendur
Námskeiðin, sem eru samstarf
Forvarnahúss og Umferðarstofu,
eru haldin víðsvegar um landið og
gefst öllum eldri en 17 ára færi á að
taka þátt. Einar segir námskeiðin
bæði skemmtileg og fræðandi, en
lagt er upp með að gera framsetning-
una lifandi og hvetja ungmennin til
virkrar þátttöku. „Við miðum aðal-
lega við 17-20 ára aldurinn, en að
sjálfsögðu eru allir velkomnir. Til
dæmis var námskeið á Selfossi í lið-
inni viku, þar sem 60 manns tóku
þátt og þar af einn þrjátíu ára. Það
er því allur gangur á þessu, þó svo
að við stílum einna helst inn á byrj-
endur í umferðinni,” segir Einar
og bætir við að aðsókn sé almennt
mjög góð. Þá skemmi ekki fyrir að
námskeiðið kosti ekkert, auk þess
sem þátttakendur fái ýmislegt fyrir
sinn snúð að námskeiði loknu. „Það
hefur verið fín aðsókn hjá okkur
bæði í Reykjavík og úti á landi.
Okkur var nú reyndar ljóst að ef við
viljum fá fleiri en bara „góðu krakk-
ana”, ef svo má að orði komast, þá
þyrftum við að hafa nokkurskonar
gulrót til að draga hina að. Þess
vegna var ákveðið að bjóða lægri
tryggingar hjá Sjóvá fyrir þátttak-
endur, en það virðist líka draga að.”
Einar tekur sérstaklega fram
að allir séu velkomnir og að vonir
standi til aukinnar þátttöku „Við
viljum alltaf fá fleiri til okkar og
ég hvet krakka til að koma. Þetta er
bæði lærdómsríkt og mjög skemmti-
legt í alla staði. Við erum til dæmis
að láta krakkana prófa ölvunargler-
augu, veltibíl, hraðavigt og fleira
sem þau hafa gott af að kynnast. Sá
sem er með mér, Sigurður Helgason,
er algjör snillingur í að ná til þessa
hóps og krakkarnir hlusta með mik-
illi athygli. Miðað við matsblöðin
sem við höfum látið þau gera eftir
námskeiðin eru þau mjög ánægð
með fyrirkomulagið og það virðist
vera að við náum vel til þeirra.”
Aukin slysatíðni hjá ungum
ökumönnum síðustu tvö árin
Aðspurður um slysatíðni meðal
ungra ökumanna segir Einar að sið-
ustu tvö árin hafi hallað verulega
undan fæti. Á árunum 1999-2003
var stöðug fækkun slysa meðal þessa
aldurshóps, en nú er svo komið að
vandamálið er meira en áður.
„Þetta hefur farið mjög vaxandi
síðustu tvö árin og því ákváðum við
að bregðast við því. Þetta er reyndar
mismunandi eftir árgöngum, en
það sem kom hvað mest á óvart er
að það eru 18-19 ára krakkarnir sem
eru með mestu tjónsaukninguna,
en ekki þau sem eru 17 ára og ný-
komin með bílpróf. Ég held að öku-
kennsluferlið sé orðið mun betra
en áður og æfingaakstur ásamt
aukinni fræðslu skilar verulegum
árangri. En eflaust má gera betur,”
segir Einar og bendir á að fyrir liggi
frumvarp þess efnis að herða reglur.
„Það er verið að tala um að tak-
marka tímann á því hvenær megi
keyra, svo sem á nóttunni, og eins
hversu margir farþegar mega vera í
bílunum. En það má auðvitað ekki
gleyma því að stór hluti er að standa
sig vel og það er kannski grátlegt að
takmarka þetta svona rosalega hjá
öllum. Ég myndi fremur mælast til
. þess að auka löggæsluna og herða
viðurlög hjá þeim sem brjóta af sér.”
Að síðustu bendir Einar á
að unga fólkið sé ekki eitt um hrað-
akstur í umferðinni. Þetta eigi við
um alla ökumenn, óháð aldri, og
að kominn sé tími á að fólk meti
ökulag sitt og velti hættunum fyrir
sér. „I námskeiðunum erum við að
einblína svolítið á að fólk einblíni á
eigið ökulag og skoði aðeins hvernig
það er að keyra. Svo má auðvitað
taka alla þætti með í reikninginn,
svo sem þennan mikla hraða sem
er í þjóðfélaginu og reyna að sporna
við honum. Mikil spenna meðal
fólks skilar sér í því að við þurfum
að fá allt strax, flýta okkur hraðar
og fara svolítið geyst. Þetta endar
auðvitað með hraðakstri, slysum og
svo koll af kolli.”
NámskeiðiniReykjavíkeruhaldin
í Forvarnahúsinu í Kringlunni 1 og
geta þátttakendur skráð sig á www.
forvarnahusid.is eða www.us.is. Á
landsbyggðinni eru námskeiðin
haldin í framhaldsskólunum.
halldora@bladid.net
Sigurbíllinn í rally til sýnis
Félagarnir Borgar Ólafsson og Jón
Bjarni Hrólfsson báru sigur úr býtum
í tvö þúsund flokknum á Islands-
mótinu í rally í sumar á Ford Focus.
Sigurbíllinn, sem er af 2000-árgerð,
kom til landsins í vor frá Bandaríkj-
unum, en þar var hann sérsmíðaður
sem rallbíll. Bíllinn var endurbættur
með tilliti til aðstæðna hérlendis, en
meðal annars var gírkassinn gerður
beintenntur auk annarra endurbóta.
Þessa dagana er bíllinn til sýnis í
sal Brimborgar á Bíldshöfða, en þar
má berja augum þennan skemmti-
lega bíl sem færði þeim Borgari og
Jóni sigur í fimm af sex keppnum
sumarsins. Vélin í bílnum er 2.0
lítra af gerðinni Zetec og í honum
er gírkassi frá R&D Motorsport.
Fjöðrunin er frá KW í Þýskalandi mynd bílsins er bíllinn sem Carlos
og bremsurnar eru þær sömu og í Sainz ók í heimsmeistarakeppn-
Ford Focus ST. Þess má geta að fyrir- inni í rally á árunum 2000-2002.