blaðið - 14.11.2006, Page 26
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 blaöiö
Þarftu breiðari bíl?
Bílasamningur // Bílalán // Einkaleiga
LYSING.IS // 540 1500
Jeppadekkin ffrá
Meirapróf- Nýir timar
Nýlegir kennslubílar sem uppfylla
Euró 2 mengunarstaðal, lærðu í nútímanum
-
• •
OKU
SKOUNN
IMJODD
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Næsta námskeið hefst 15. nóvember
Fáanleg í flestum stærðum fyrir
15,16,17 og 18" felgur
Fjallasport
•4x4 specialist ■
Viðarhöfða 6 - Sími 577 4444
26 I BÍLAR
AUKIN ÞÆGINDI
Það felast óneitantega aukin þæg
indi í þessu nýja fyrirkomulagi
fyrírtækisins á varahlutaverslun.
(Z U
Vj ,S
' ÍÍ: fÍN
Varahlutaverslun
opnuð á Netinu
Fyrirtækið Stilling hf. opnaði á
dögunum nýja heimasíðu sem gerir
fólki kleift að fjárfesta í varahlutum
fyrir bíla á Internetinu. Heima-
síðan, sem ber heitið Partanet.is, er
um þessar mundir einungis opin
fyrir verkstæði og bílaumboð, en
til stendur að opna síðuna fyrir al-
menningi í desember.
Að sögn Bjarna Ingimars Júlíus-
sonar, framkvæmdastjóra Partanets,
er heimasíðan byggð á erlendri hug-
myndafræði, þó svo að fyrirtækið
hafi sérsniðið verslunina að þörfum
íslensks markaðar. „Við erum búnir
að forrita þetta alveg frá grunni og
laga þetta að okkar markaði. Ferlið
sem slíkt hefur tekið okkur um tvö
ár, en þetta er strax farið að borga sig.
Við byrjuðum að taka inn tilrauna-
viðskiptavini í sumar og viðtökurnar
voru frábærar. Menn eru farnir að
nota þetta í stað þess að hringja
eða mæta á staðinn,” segir Bjarni.
„Þarna tengjum við saman upplýs-
ingar frá bíla- og varahlutaframleið-
endum og erum með um tíu milljón
vörunúmer sem við höfum aðgang
að. Kerfið er mjög yfirgripsmikið og
í raun allir varahlutir sem hugsast
getur fáanlegir.”
Gagnagrunnurinn upp-
færður daglega
Á heimasíðunni geta kaupendur
slegið inn númerið á bílnum sínum,
en kerfið finnur þá alla varahluti
sem til eru á lager fyrir bílinn.
Með hverri vöru birtast myndir
með upplýsingum um mál, verð
og fleira sem fylgja þarf vörunni.
Varan er svo pöntuð og sótt í næstu
verslun eða send til viðkomandi.
áður en viðkomandi kemur.” Lagt
er upp með að gagnagrunnurinn
verði uppfærður daglega, en slíks
er þörf þegar þróun á bílum og bún-
aði er eins hröð og raun ber vitni.
Bjarni segir þetta skipta miklu
máli, enda mikilvægt að vera stöð-
ugt með það nýjasta á markaðnum
fyrir hvern bíl.
„Þetta hefur nú verið þannig að
það eru kannski 30 tölvubækur
Þú pantar bara vöruna og hún er tilbúin
i versluninni áður en þú kemur að sækja hana.
„Þetta eru náttúrlega rosaleg þæg-
indi og mun eflaust falla í góðan
jarðveg. Aðallega sparar þetta
tíma og fyrirhöfn, en flestir kann-
ast eflaust við leiðinlegan biðtíma
og önnur óþægindi, svo sem hæga
afgreiðslu og fleira sem gerir vart
við sig ef varan finnst ekki á lager.
Þessu viljum við sporna við og gera
eins aðgengilegt og mögulegt er,”
segir Bjarni.
„Þú pantar bara vöruna og hún
er tilbúin í versluninni áður en þú
kemur að sækja hana. Pöntunin fer
bara um leið og allt tekið saman
á hverri stöð og uppfærðar einu
sinni á ári jafnvel. Það gengur eig-
inlega ekki lengur þar sem þessi
markaður er farinn að breytast
mikið og þróunin ör. Nú er hægt að
fá allar upplýsingar og allt það nýj-
asta á vefnum og í raun má segja að
við séum að opna lagerinn fyrir við-
skiptavini, sem hefur ekki tíðkast
hingað til í þessum geira.
Ég allavega hvet alla til að sækja
um aðgang að þjónustunni á parta-
net.is, en fólk fær svo tilkynn-
ingu um hvenær þetta hefst fyrir
almenning.”
Bíllinn seldur í góðu stándi
• Þriföu bílínn vel að innan sem utan.
Bíllinn þarf að líta vel ut og vera vel þrifinn. Það
er ekki nóg að skella sér á næstu bílaþvottastöð
og láta þvo hann vel að utan en hafa ógrynni
ruslþréfa og kókdósa inni I bílnum. Láttu taka bíl-
inn vel í gegn á bilaþvottastöð, auk þess að láta
bóna hann, eða gerðu þér glaöan dag einhvern
sunnudaginn og gerðu það sjálf/ur. Það má allt-
af gera þetta skemmtilegra með því að hækka I
útvarpinu og stytta þannig tímann.
• Lagaðu skemmdir sem auðveldlega má
gera fyrir litinn kostnað
Minniháttar skemmdir eins og skrámur, Ijós
eða sprungu í rúðum má yfirleitt laga auð
veldlega og það þarf ekki að vera
kostnaðarsamt. Smávægilegir
kvillar á bílnum geta orð-
ið til þess að kaupand-
inn býður mun minna
en ella og því getur
stundum borgað sig
að setja smá pening I
viðgerðir áður en bíllinn
er sýndur.
• Kafðu dekkin i lagi
Það er yfirleitt best að eiga tvo umganga af
dekkjum þegar kemur að því að selja, enda vilja
kaupendur eiga bæði sumar- og vetrardekk und-
ir nýja bílinn. Fallegar felgur skemma auðvitað
ekki, en mestu skiptir að dekkin séu fremur ný-
leg og óslitin.
• Lökkun smávægilegra skrámna
Það getur borgað sig að láta lakka bílinn á verk-
stæði. Litlar bungur og aðrir annmarkar geta
vaxið mögulegum kaupanda i augum og hon-
um fundist bíllinn
minna virði
og jafn-
vel minna áhugaverður. Gott er að fara á næsta
verkstæði og athuga hvað má laga fyrir litla
fjárhæð. Ef það er innan viðráðanlegra marka
á hikstalaust aö þiggja slíka viðgerð.
• Pappírar og önnur skjöl i lagi
Það er mikilvægt að halda vel utan um alla
pappíra sem bílnum fylgja, svo sem smurbók,
skráningarskírteini og fleira sem kaupandi vill
fá. Þegar fenginn er nýr bíll borgar sig að hafa
öll skjöl á sama stað og passa þau vel. Einnig
getur virkað betur aö hafa blööin heil og fín, en
ekki samanbrotin og skítug.
• Vertu heiðarleg/ur við söluna
Það er mikilvægt að selja bílinn eins og
hann er, en ekki eftir þvi hvernig
þú „myndir vilja hafa hann”. Það
er aldrei gott að Ijúga til um
ástand bílsins eða segja
sögu bils sem ekki er sönn.
Slíkt borgar sig aldrei og
verður eingöngu til trafala í
framtíðinni.