blaðið - 14.11.2006, Qupperneq 34
34 I BÍLAR
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 blaöiö
Hár aldur íslenskra bifreiða áhyggjuefni
Innflutningur á bifreiðum hefur
minnkað ef borið er saman við árið
í fyrra. Á árinu 2005 voru nýskráðir
bílar 20.875 en það sem af er árinu
hafa 18.472 bílar verið nýskráðir.
Þetta gefur til kynna samdrátt í inn-
flutningi þó svo að enn séu um tveir
mánuðir eftir af árinu.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, segir
þó að þessi innflutningur hafi dreg-
ist miklu minna saman en menn
bjuggust við. „Samdrátturinn hjá
umboðunum er frekar lítill en þetta
er mjög áberandi á þessum svokall-
aða gráa markaði." Með gráum
markaði er átt við einkaaðila og
smærri fyrirtæki sem eru ekki vott-
aðir söluaðilar af bílaframleiðanda
heldur kaupa bílana notaða og flytja
þá svo inn sjálfir. Á síðasta ári voru
nýskráðir 5.062 notaðir bílar en það
sem af er árinu hafa 2.589 bílar verið
nýskráðir. Þetta er samdráttur um
næstum helming og Özur bendir á
að nóvember og desember hafi ekki
hingað til verið flokkaðir sem góður
tími fyrir bílainnflutning svo að
ólíklegt verður að teljast að þessar
tölur breytist mikið.
Áhyggjuefni er að þrátt fyrir
frekar mikinn innflutning á bílum
er meðalaldur bifreiða óvenjulega
hár miðað við önnur lönd. Allt frá ár-
inu 2001 hefur meðalaldur íslenskra
bifreiða verið rúm 9 ár og á árinu
2005 var meðalaldurinn 9,5 ár. Þetta
segir Özur að sé mikið áhyggjuefni.
,Eftir því sem bifreið eldist þá veik-
ist burðarvirkið og bíllinn mengar
meira. Framleiðendur keppast nú
við að framleiða sparneytnari, ör-
uggari og umhverfisvænni bíla en
fólk er hreinlega að geyma það of
lengi að endurnýja bílinn sinn.“
Hann segir að vörugjöld af bif-
reiðakaupum þjóðarinnar séu
helsti orsakavaldurinn fyrir því
að fólk endurnýjar seint bilinn
sinn. „Margar þjóðir eru með mun
lægri eða þá engin vörugjöld." özur
segir að þessi vörugjöld nemi um 53
prósentum af kaupverði bifreiðar.
.Gjöldin hér eru næstum jafn há og
í Danmörku og þar eru þau mjög
há, þar eru flestir annað hvort á reið-
hjólum eða gömlum druslum."
ÖRYGGI
Á ÖLLUM
EGOstöðvum
ÍVETURf
EGO býður viðskiptavinum sínum ekki aðeins ódýrt ^
eldsneyti, heldur líka aukið öryggi með nýjum rúðuvökvadælum og nýjum
loftjöfnunarbúnaði á öllum stöðvum. Það kemur sér vel í vetrarfærðinni.
Nýi búnaðurinn auðveldar þér að fylgjast með loftþrýstingi, fínstilla
hann og jafna með það að markmiði að ökutækið sé sem best búið
undir akstur við misjafnar aðstæður og ójafn þrýstingur valdi ekki óþarfa
eyðslu. Þannig getur þú bæði sparað eldsneyti og aukið öryggi þitt
og farþeganna.
Þín er ábyrgðin - þinn er ávinningurinn!
ALLT AÐ
10%
SPARNAÐUR
Viðurkenning Orkuseturs
EGO fær sérstaka viðurkenningu fyrir tölvustýrða
mælingu og loftjöfnun á hjólbörðum á öllum stöðvum.
Reynslan sýnir að réttur loftþrýstingur getur sparað
eldsneytisnotkun um allt að 10%
auk þess að auka öryggi í umferð.
Upplysingasskjár sem symr valinn
og mældan lotfþrýsting í pundum
PREm.um
Loftþrystmgur ákveðmn með
stjórntökkum.
ATH. Velja skal loftþrýsting sem
framleiðandi bifreiðar mælir með
©
©
Sigurður Ingi Friðleifsson,
framkvœmdarstjóri Orkuseturs.
Orkusetur
Minna selst af nagladekkjum
en áður Fólk treystir nagladekkj-
um samt betur þegar illa viðrar.
Minna af nöglum
Það sem af er vetrinum hefur
sala á nagladekkjum dregist
saman. Menn í dekkjabrans-
anum segja að salan hafi
aðeins dregist saman en þó sé
salan enn góð. Helstu ástæð-
urnar fyrir minni sölu munu
vera þær að fólk er í síauknum
mæli að treysta á heilsársdekk
en svo spilar tíðarfarið mikið
inn í. Hlöðver Sigurðsson hjá
ísdekk segir að á meðan viðri
eins nú þá sé fólk að kaupa
mun meira af heilsársdekkj-
unum en um leið og gerir
harðan vetur muni fólk rjúka
til og kaupa sér nagladekk.
„Þegar kemur mikill snjór og
hálka þá er það bara staðreynd
að fólk treystir nagladekkjunum
betur.“
Hann segir þó að heilsárs-
dekkin séu alltaf að verða betri
og betri og sé það jafnvel bara
tímaspursmál hvenær heilsárs-
dekk munu leysa nagladekkin
af hólmi.
Markvisst hefur verið reynt
undanfarin ár að draga úr
notkun nagladekkja til þess
að reyna að minnka viðhalds-
kostnað á vegum og götum
landsins en einnig til að draga
úr svifryksmengun. Naglarnir
á dekkjunum rífa upp malbikið
á götunum og myndast þá
rykagnir sem geta valdið heilsu-
farsvandamálum. Læknar
segja að um 5 prósent þjóðar-
innar séu sérstaklega viðkvæm
fyrir áhrifum svifryks og hafa
jafnvel heyrst sögur af fólki
sem treystir sér ekki út úr hús i
þegar mikil svifryksmengun f r.
Jón Stefánsson hjá Sólningu
segir að vissu.ega hafi sala á
nagladekkjum dregist lítillega
saman en þó hafi fyrirtækið
aukið innflutnlng sinn á nöglum.
Flestöll naglaciekk sem eru
seld á íslenskum markaði
koma ónegld til landsins.
Dekkjaverkstæði og heildsalar
flytja síðan sérstaklega inn
nagla sem eru notaðir til að
negla dekkin. Vegna misvís-
andi merkinga í tollskrám er
erfitt að gera sér grein fyrir
því hvort heildarinnflutningur
á nöglum hafi aukist eður ei.
Þessir tilteknu naglar deila
nefnilega tollskrárnúmeri með
venjulegum byggingarnöglum
og því er lítið að marka þær
tölur. Fleiri innfluttir naglar
gætu einfaldlega bent til þess
að íslensk ungmenni séu dug-
legri við að byggja sér kofa
heldur en árin á undan.