Bændablaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | fimmtudagur 14. maí 2009
Á starfsstöð Landbúnaðarhá-
skóla Íslands á Möðruvöllum í
Hörgárdal hafa um árabil verið
stundaðar rannsóknir í naut-
griparækt og jarðrækt og hefur
LbhÍ rekið þar tilraunabú.
Áherslur í rannsóknum á starfs-
stöðinni að Möðruvöllum hafa
að mestu flust frá nautgriparækt
yfir í jarðrækt á umliðnum árum
og þarfirnar því breyst að mörgu
leyti. Engu að síður er talið mjög
verðmætt fyrir staðinn og skól-
ann að búskap sé haldið þar
áfram.
Búrekstur á staðnum auðveld-
ar rekstur rannsóknaverkefna. auk
þess sem svigrúm er þá til stað-
ar til að færa áherslur aftur yfir í
rannsóknir í nautgriparækt þegar
henta þykir. Með hliðsjón af fram-
ansögðu leitaði LbhÍ eftir samstarfi
við Búnaðarsamband Eyjafjarðar
(BSE), Búnaðarsamband
Suður-Þingeyinga (BSSÞ)
og Búnaðarsamband Norður-
Þingeyinga (BSNÞ) um rekstur
starfsstöðvarinnar á Möðruvöllum.
Þessar umleitanir hafa nú leitt
til þess að búnaðarsamböndin
hafa stofnað einkahlutafélagið
Möðruvelli ehf. er mun taka við
rekstri búsins næstu árin.
Meginmarkmið með aðkomu
búnaðarsambandanna þriggja að
rekstri kúabús á Möðruvöllum er að
tryggja áframhaldandi búrekstur og
rannsóknastarfssemi á staðnum og
skapa þannig aðstöðu fyrir starfs-
menn LbhÍ og samstarfsmenn hans,
bæði utan lands og innan, til rann-
sókna sem tengjast landbúnaði og
umhverfismálum í víðum skilningi.
Markmiðið er einnig að tryggja að
arður af búrekstri skili sér til upp-
byggingar og eflingar rannsókna
á Möðruvöllum og styrki þannig
rannsóknastarfssemi í landbúnaði
á Norðurlandi. Þá mun búrekstur
Möðruvalla ehf. sömuleiðis tryggja
áframhaldandi upplýsingasöfn-
un á búinu á Möðruvöllum en þar
er löng hefð fyrir mjög nákvæmri
skráningu upplýsinga í búrekstri
sem hafa nýst vel til búrekstrarat-
hugana.
Sameiginlegur bæk lingur Ferðaþjónustu
bænda, Opins landbúnaðar og Beint frá býli
Út er kominn bæklingurinn
„Upp í sveit 2009“ en þar eru
birtar upplýsingar um bæi í
Ferðaþjónustu bænda, Beint
frá býli og í Opnum landbún-
aði. Þetta er í fyrsta sinn sem
þessir þrír aðilar vinna saman
að kynningarstarfi á gistingu,
mat og afþreyingu í sveitinni.
Bæklingurinn er prentaður í 35
þúsund eintökum og verður brátt
fáanlegur um allt land á helstu
almenningsstöðum, verslunum
og þjónustumiðstöðvum.
Innan vébanda Ferðaþjónustu
bænda eru 140 bæir um allt land
sem bjóða upp á gistingu, máltíð-
ir og afþreyingu. Í bæklingunum
er hægt að finna allar upplýsingar
um bæina og fróðleik sem nýtist á
ferðalaginu.
Opinn landbúnaður er á vegum
Bændasamtakanna en hann geng-
ur út á að opna býlin fyrir gestum
og kynna íslenskan landbúnað. Nú
eru alls 34 bæir sem starfa undir
merkjum Opins landbúnaðar en
í fyrra komu alls um 37 þúsund
manns í heimsóknir á bæina. Mælst
er til þess að gestir hringi á undan
sér þegar þeir heimsækja bæina í
Opnum landbúnaði.
Beint frá býli stígur nú sín
fyrstu skref í kynningarstarfi en
36 bæir í félaginu kynna það sem
þeir hafa á boðstólum í bæklingn-
um. Vöruframboðið er fjölbreytt en
meðal þess sem hægt er að kaupa
er reykt sauðakjöt, andaregg, dún-
sængur, rabarbaraafurðir, ís, silung
og nestiskörfur fyrir ferðamenn.
Fréttir
Þórhallur Bjarnason garðyrkjubóndi á Laugalandi
í Borgarfirði stendur hér við spennustöð sem Rarík
reisti á landi sem hann lét fyrirtækinu endurgjalds-
laust í té. Rafmagnið í þessari spennustöð kemur
úr grein frá Vatnshömrum en frá Laugalandi ligg-
ur línan áfram yfir Norðurá til Bifrastar. Það sér-
kennilega við þessa leið rafmagnsins er að verðið á
því lækkar við að fara yfir ána. Íbúar í skólaþorp-
inu Bifröst greiða lægra verð fyrir hverja kílóvatt-
stund en Þórhallur.
Skýringin sem dreifandi rafmagnsins, Rarík, gefur
á þessu er sú að Þórhallur búi í dreifbýli en íbúar á
Bifröst í þéttbýli. Raforkunotkun á Bifröst samsvarar
því að þar búi um 250 manns að staðaldri. Þórhallur
kaupir hins vegar rafmagn af Rarík sem samsvarar
notkun allra íbúa Borgarness (fyrirtæki ekki meðtalin)
en þeir eru 1960 talsins.
Þórhallur segir að það breyti engu þótt á það sé
bent að hjá honum sé aðeins einn mælir til að lesa á.
Það hefur heldur ekkert að segja þótt rafmagnsnotkun
í gróðrarstöð hans hafi aukist um helming á örfáum
árum. Hann býr og starfar í dreifbýli og skal því greiða
hærri taxta en þéttbýlisbúar, hvað sem tautar og raular.
Hvar skyldi réttlætið í þessari verðlagningu vera?
Treystir sér einhver til að svara því?
–ÞH/Ljósm. Áskell
Býr Sérajón í þéttbýli, en Jón ekki?
Laus pláss á Hólum
Nokkur pláss eru enn laus í
sumarhúsum Bændasamtaka
Íslands á Hólum í Hjaltadal.
Þeim sem áhuga hafa á að
leigja húsin í sumar er bent
á að hafa samband við skrif-
stofu BÍ í síma 563-0300.
Jón Bjarnason, oddviti Vinstri-
hreyfingarinnar græns fram-
boðs í Norðvestur-kjördæmi,
er nýr sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra. Hann tók við
lyklavöldum í ráðuneytinu á
Skúlagötu um síðustu helgi úr
hendi Steingríms J. Sigfússonar
fráfarandi ráðherra sem nú ein-
beitir sér að fjármálaráðuneyt-
inu. Jón Bjarnason sagði við til-
efnið ætla að gera allt sitt til þess
að standa undir þeim væntingum
sem þjóðin ber til þessara mik-
ilvægu atvinnuvega á erfiðum
tímum.
Jón Bjarnason er 65 ára gam-
all og búfræðikandidat frá Land-
búnaðarháskólanum í Ási í Noregi.
Hann kenndi við Bændaskólann á
Hvanneyri á árunum 1970-1974,
var bóndi í Bjarnarhöfn árin 1971-
1982. Lengst af var Jón skólastjóri
Bændaskólans á Hólum í Hjaltadal
eða frá árinu 1981 til 1999 þegar
hann gerðist þingmaður fyrir
Vinstri hreyfinguna grænt fram-
boð. Hann hefur setið í ýmsum
nefndum á vegum þingsins, s.s.
í fjárlaganefnd, samgöngunefnd,
landbúnaðarnefnd, sjávarútvegs-
nefnd, viðskiptanefnd og efnahags-
og skattanefnd.
Víst er að mörg verkefni bíða
nýs ráðherra, ekki síst þar sem
róttækar hugmyndir að breyt-
ingum hafa verið kynntar á
kvótakerfi sjávarútvegsins. Rætt
verður við Jón Bjarnason í næsta
Bændablaði.
Jón Bjarnason er nýr sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
Vel fór á með þeim fóstbræðrum Steingrími J. Sigfússyni og Jóni
Bjarnasyni þegar sá síðarnefndi tók við lyklavöldunum í ráðuneyti sjávar-
útvegs og landbúnaðar á sunnudagskvöldið var. mynd | TB
Ásmundur Einar
Daðason eini
bóndinn á þingi
Ásmundur Einar Daðason,
sauðfjárbóndi á Lambeyrum í
Dölum og frambjóðandi Vinstri-
hreyfingarinnar græns framboðs
í Norðvesturkjördæmi, var eini
bóndi landsins sem náði kjöri inn
á Alþingi Íslendinga í kosning-
unum sem fram fóru 25. apríl.
Enginn bóndi átti þar sæti fyrir.
Á tímabili á kosninganótt leit
hins vegar út fyrir að Arndís Soffía
Sigurðardóttir, ferðaþjónustubóndi
í Smáratúni í Fljótshlíð, kæmist inn
á þing en hún skipaði annað sætið
á lista Vinstri grænna í Suðurkjör-
dæmi. Það fór hins vegar svo að
Vinstri grænir
náðu aðeins inn
einum manni
og hún er því
varaþingmaður.
Sigurgeir Sindri
Sigurgeirsson,
formaður Lands-
samtaka sauð-
fjárbænda og bóndi í Bakkakoti,
er sömuleiðis varaþingmað-
ur en hann skipaði þriðja sæti
á lista Framsóknarflokks í
Norðvesturkjördæmi.
Jafnframt því að vera eini
bóndinn sem komst inn á þing er
Ásmundur Einar yngstur þeirra
þingmanna sem nú voru kjörnir,
26 ára gamall. Ásmundur er for-
maður félags sauðfjárbænda í
Dalasýslu og að auki í varastjórn
Landssamtaka sauðfjárbænda.
Síðasti Dalamaðurinn sem sat á
þingi var Friðjón Þórðarson, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra og þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, sem
sat til ársins 1991.
Rætt verður við Ásmund í
Bændablaðinu á næstunni í tilefni
af þingmennsku hans.
-smh
Einkahlutafélag tekur við búrekstri á Möðruvöllum
Smalahunda-
deild stofnuð
í Árnessýslu
Stofnuð hefur verið Smala-
hundadeild Árnessýslu
(SDÁ). Tilgangur deildarinnar
er að efla þjálfun, keppni og
fræðslu um smalahunda. Stofn-
fundurinn fór fram á Hesta-
kránni og var vel sóttur. Hægt
er að gerast félagi með því að
hringa í Bjarna í síma 862-
4917 eða í gegnum tölvupóst-
inn 801haholt@live.com. Allt
áhugafólk um smalahunda er
hvatt til að skrá sig. MHH
Ull í fat
2009
Áætlað er að ullarvinnslu-
keppnin Ull í fat fari fram á
Hvanneyri laugardaginn 18.
júlí. Keppnin er haldin a.m.k.
þriðja hvert ár og þátttak-
endur eru ullarvinnslufólk
alls staðar að af landinu sem
safnar í litla hópa. Hóparnir
hafa haft að lágmarki þrjá
liðsmenn, auk liðsstjóra sem
hvetur liðið til dáða.
Hugmyndin er erlend en
á nú um 14 ára langa sögu á
Íslandi, því fyrsta keppnin var
haldin 1995. Það voru hópar
frá Ullarselinu og Þingborg
sem komu henni á koppinn, en
síðan hefur hópum sem taka
þátt fjölgað. Stundum hefur
keppnin hafist á því að kind
er rúin og unnið beint úr ull-
inni, eða spunnið úr kembdri
ull. Sá hópur sem sigrar keppn-
ina heldur hana næst og býr til
reglurnar hverju sinni. Hópur
frá Ullarselinu sigraði síðustu
keppni árið 2007 og því heldur
Ullarselið á Hvanneyri keppn-
ina á Hvanneyri í ár. Verkefnin
hafa verið af ýmsum toga í
gegnum árin, og má nefna
peysur, sjöl, strandföt, lamb-
húshettu og júgurpoka fyrir
kýr! Það er því ekki nóg að
hafa bara hraðan á, því hönn-
un, vandvirkni og útsjónarsemi
skiptir líka höfuðmáli.
Að þessu sinni verður
keppnin haldin í samvinnu við
Landbúnaðarsafn Íslands, sem
heldur upp á 60 ára afmæli
Ferguson-traktorsins. Af því
tilefni er hugmynd að verkefni
hópanna að hanna og fram-
leiða sessu í sæti á gömlum
Fergusontraktor, og á hana skal
letra stafinn F.
Allir eru velkomnir að taka
þátt! Nánari upplýsingar koma
síðar en endilega látið vita af
ykkur svo hægt sé að búa til net
með netföngum.
Áhugasamir láti vita á ull@
ull.is sem allra fyrst.