Bændablaðið - 14.05.2009, Side 10
10 Bændablaðið | fimmtudagur 14. maí 2009
Ingvar Guðni Ingimundarson
frá Vatnsenda í Villingaholts-
hreppnum hinum forna lét
draum sinn rætast árið 2000
þegar hann stofnaði sína eigin
vélsmiðju á hlaðinu heima hjá
sér. Áður hafði hann starfað hjá
Vélsmiðju KÁ á Selfossi.
Ingvar er vélsmiður að mennt
og hefur alltaf haft mikinn áhuga
á hverskonar smíði, enda er þetta
greinilega í genunum, því afi hans,
Ingvar Kristján Jónsson í Villinga-
holti, smíðaði bæði úr járni og tré
og langafi Ingvars, Jón Gestsson,
var líka mjög laghentur smiður
og smíðaði meðal annars Vill-
ingaholtskirkju. Ekki er laust við
þennan áhuga úr föðurættinni
heldur en Garðar Eymundsson,
föðurafi hans, er húsasmíðameist-
ari og Ingimundur Bjarnason,
langafi Ingvars, var járnsmið-
ur. Ingimundur Bergmann, faðir
Ingvars, er svo vélfræðingur. Eigin-
kona Ingvars er Eydís Rós Eyglóar-
dóttir og eiga þau saman dótturina
Þórunni Evu, sem er eins og hálfs
árs gömul.
16 km frá Selfossi
Vélsmiðja Ingvars Guðna (VIG) er
staðsett 16 km austan við Selfoss
eða í Flóahreppi. Ingvar Guðni er
fæddur og uppalinn á Vatnsenda
en foreldrar hans, þau Þórunn
Kristjánsdóttir og Ingimundur
Bergmann Garðarsson, eru með
kjúklingabú á jörðinni. Vélsmiðjan
er í bragga á hlaðinu. VIG hefur frá
upphafi lagt áherslu á þjónustu við
bændur, verktaka og í raun alla þá
sem þurfa að láta smíða hvaðeina
úr málmum. Grunnurinn að VIG
var í raun lagður með framleiðslu á
vönduðum hliðum fyrir sumarhúsa-
eigendur en framleiðslan á hlið-
unum hófst sumarið 1998 í smáum
stíl og hefur haldist allar götur
síðan. Það hefur verið stefna VIG
frá upphafi að leysa nánast hvaða
verk sem viðskiptavinurinn óskar.
Gott að vera í sveitinni
„Já, það er mjög gott að vera með
starfsemina í Flóahreppi og draum-
ur að geta verið á hlaðinu heima
hjá sér. Það hefur verið nóg að
gera enda hefur starfsemin vaxið
frá ári til árs. Ég var fyrst bara einn
en núna erum við tveir að smíða,
ég og mágur minn, Hörður Ársæll
Sigmundsson frá Leifsstöðum
í Austur-Landeyjum, og Eydís
konan mín sér um bókhaldið, sem
er afar mikilvægt starf. Það eina
sem ég er ekki sáttur við er net-
tengingin hjá okkur, hún er mjög
slöpp og oft erfitt að vera í góðu
sambandi við umheiminn í gegnum
tölvuna. Jú, svo er það orkukostn-
aðurinn, en hér er ekki hitaveita og
fyrirtæki á köldum svæðum fá enga
niðurgreiðslu til hitunar. Annars
brosum við bara og erum bjartsýn,“
sagði Ingvar Guðni þegar hann var
spurður hvernig gengi að reka vél-
smiðjuna í sveitinni.
Leysum málin
„Það hefur aldrei verið sérstakt
markmið hjá mér að reka stóra
smiðju heldur fyrst og fremst að
skila góðri vinnu. Hvort held-
ur er í grófum viðgerðum á úr sér
gengnum vélavögnum eða mun
fíngerðari hlutum, eins og hrærivél-
arþeytara. Einnig smíðum við hina
ýmsu hluti úr fægðu, ryðfríu stáli.
Það gildir einu, við leysum málin.
Smiðjan hjá mér er mjög vel tækj-
um búin enda nauðsynlegt að vera
vel græjaður, þannig að maður geti
leyst flókin og fjölbreytt verkefni,“
bætir Ingvar Guðni við.
Þvottasnúrur og kerrur
Á meðal framleiðsluvara hjá
Ingvari Guðna eru hlið, vegristar,
gjafagrindur, lamir, rennubönd,
hliðslár, kerrur, handrið, hesthúsa-
innréttingar og þvottasnúrur, sem
slegið hafa í gegn á fjölmörgum
heimilum. Fyrirtækið leggur einn-
ig stund á hverskyns sérverkefni
svo sem viðgerðir, felgubreikk-
anir, smíði á stálgrindum, renni-
smíði og yfirleitt alla stálsmíði og
viðgerðir.
Björt framtíð
„Já, ég sé ekki annað en að fram-
tíðin sé björt þrátt fyrir að það blási
aðeins á móti um þessar mund-
ir vegna efnahagsástandsins. Ég
ætla fyrst og fremst að reyna að
halda í horfinu með fyrirtækið og
bæta kannski eitthvað í ef ástandið
lagast. Reyndar er ég að svipast um
eftir góðum starfskrafti, allavega í
afleysingar í sumar. Verkefnastaðan
er góð eins og staðan er í dag og ég
treysti á að svo verði áfram,“ sagði
Ingvar Guðni brosandi í lokin og
sneri sér að vinnunni í bragganum.
Hægt er að kynna sér starfsemi vél-
smiðjunnar á heimasíðunni: www.
vig.is
Viðtal og myndir:
Magnús Hlynur Hreiðarsson
Í september 2003 keypti Skipa-
lyftan hf. í Vestmannaeyjum
rekstur Vélsmiðju KÁ á Selfossi
og stofnaði nýtt fyrirtæki, Vél-
smiðju Suðurlands ehf. Fyrir-
tækið er rekið á traustum grunni,
sem nær allt aftur til ársins 1939.
Á þessum langa tíma hefur starf-
semin tekið töluverðum breyting-
um. Í dag er þjónusta fyrirtæk-
isins á breiðum grunni varðandi
hefðbundna starfsemi vélsmiðju;
verktöku, nýsmíði, viðgerðir og
ýmiss konar viðhald, ekki síst
fyrir bændur og búalið.
Á Selfossi hefur aðallega verið
sinnt stærri verkum, s.s. upptektum
á vatnsaflstúrbínum, viðgerðum
og viðhaldi á tækjum og búnaði
í virkjunum, smíði á brúarbitum
fyrir Vegagerðina og fjölmörgum
öðrum stórum sem smáum verk-
um í viðgerðum og nýsmíði. Á
Hvolsvelli hefur verið rekin öflug
þjónusta við bændur og framleidd
landbúnaðartæki og áfram verður
boðið upp á virka og öfluga þjón-
ustu í viðgerðum og nýsmíði.
„Já, það er nóg að gera hjá okkur
og við sjáum bara fram á bjarta
tíma þó það blási á móti í efnahags-
lífi landsins um þessar mundir. Við
vinnum mikið fyrir bændur, bæði
varðandi nýsmíði og viðhald ýmiss
konar. Við finnum að bændur vilja
sækja gömlu, góðu tækin sín sem
hefur verið lagt og láta gera við
þau, sem er hið besta mál. Við erum
t.d. mikið í því þessar vikurnar að
endursmíða eldri haugdælur, þar
sem þær eru orðnar gríðarlega dýrar
og uppseldar á flestum stöðum og
menn í vandræðum hvað þetta varð-
ar,“ segir Magnús Haraldsson, yfir-
landbúnaðarsmiður fyrirtækisins á
Hvolsvelli. „Ég segi stundum að við
smíðum allt frá saumnálum upp í
eldflaugar, okkur er ekkert óviðkom-
andi,“ bætir Magnús við og hlær.
Leiðandi í þjónustu við bændur
Vélsmiðja Suðurlands hefur verið
leiðandi í þjónustu við bændur um
allt land, t.d. með gjafagrindur og
allt sem tengist fóðrun. Fyrirtækið
hefur t.d. smíðað fjóra valtara síð-
ustu mánuði sem kornbændur nota
mikið, auk þess að setja upp fóður-
kerfi, sem reynst hafa vel. Þá er fyr-
irtækið með pípulagningaþjónustu
á Hvolsvelli, sem notið hefur mik-
illa vinsælda. Á Selfossi starfa sjö
starfsmenn og fimm á Hvolsvelli.
Heildarlausn á einum stað
„Fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög
og einstaklingar eru hvött til að
hafa samband við okkur varð-
andi fyrirhugaðar framkvæmdir.
Vélsmiðjan hefur innan sinna raða
starfsmenn sem geta tekið að sér
skipulag, undirbúning, úrvinnslu
og framkvæmd verka, þ.e. heildar-
lausn á einum stað. Til staðar er
góð aðstaða, öflugur tækjabúnaður
og faglegt starfsfólk með mikinn
metnað til að þjóna viðskiptavin-
um okkar sem best. Okkar mark-
mið er eftir sem áður að sinna
öllum okkar viðskiptavinum á
sem bestan hátt með vönduðum
vinnubrögðum, skilvirkri þjónustu
og hagstæðum viðskiptum,“ sagði
Magnús að lokum.
Viðtal og myndir:
Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Vélsmiðja Ingvars Guðna á Vatnsenda í Flóahreppi:
Nóg að gera þrátt fyrir kreppu
– þjónustar bændur, verktaka og einstaklinga með alla almenna vélsmíði
Ingvar Guðni inni í einni af fjölmörgum gjafagrindum sem hann hefur
smíðað í gegnum árin. Bak við hann er vörubíllinn sem er notaður til að
flytja vörurnar frá Vatnsenda, en Ingvar þjónar bændum og búaliði út um
allt land.
Vélsmiðja Suðurlands á Selfossi og Hvolsvelli:
„Þjónustum allt frá saum-
nálum upp í eldflaugar“
3
#+
~ #-
búnaðarsmiður fyrirtækisins á Hvolsvelli
Magnús er verkstjóri á Hvolsvelli
og yfirlandbúnaðarsmiður fyrir-
tækisins. Hann er alltaf kátur og
hress og segir að starfsmenn Vél-
smiðjunnar leysi öll mál sem komi
upp. Hann samdi meðfylgjandi
vísu þegar blaðamaður heimsótti
hann til að fá upplýsingar um fyrir-
tækið:
Sumar, haustið, vor og vetur
verður fátt hér talið,
allt þetta sem enginn getur
okkur þá er falið.
Kátir starfsmenn Vélsmiðju Suðurlands. Frá vinstri: Skúli Sigurbergsson,
Magnús Haraldsson, Hilmar Skarphéðinsson, Margrét Jónasdóttir, fram-
kvæmdastjóri og Gunnar Svanur Einarsson, framleiðslustjóri. Öll fram-
leiðsla Vélsmiðju Suðurlands á tækjum fyrir atvinnulífið er byggð á íslenskri
hönnun og smíði. Unnið er eftir gæðastöðlum til að tryggja hámarksgæði.
Ingvar Guðni þarf oft að setjast
fyrir framan tölvuna og vinna ýmis
mál þó eiginkona hans, Eydís Rós,
sjái um bókhaldið fyrir fyrirtækið.
Þau eiga þá heitu ósk að fá betri
nettengingu í sveitina.
Hér er Ingvar Guðni að vinna við
logsuðu á verkstæðinu sínu.
Starfsmaður Ingvars Guðna, Hörð-
ur Ársæll Sigmundsson frá Leifs-
stöðum í Austur-Landeyjum.