Bændablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 13
13 Bændablaðið | fimmtudagur 14. maí 2009
Ég hef hitt garðyrkjubændur sem
hafa lýst því að ef raforkuverð
væri með eðlilegum hætti væri
staða þeirra í raun betri en áður var.
Ferðaþjónustan virðist sömuleiðis
búa við það að eftirspurnin er víða
um land meiri nú en á undanförn-
um árum. Landsmenn hafa lagt
vaxandi áherslu á að kaupa íslenskt
og ferðast innanlands í stað þess
að fara utan. Ég held þess vegna
að byggðir landsins standi betur
að vígi en höfuðborgarsvæðið og
landbúnaðurinn nýtur þess. Mér
hefur fundist að undanförnu sem
ég búi í tveimur heimum. Annars
vegar eru það þessir gríðarlegu erf-
iðleikar og hins vegar samræður
mínar við fólk sem lýsir sóknarfær-
um og bjartsýni. Það er ánægjulegt
að finna sóknarkraftinn og viljann
til að nýta sér öll tækifæri."
– Ný ríkisstjórn hefur lýst því
yfir að sækja skuli um Evrópu-
sambandsaðild. Bændur hafa lýst
þeirri skoðun sinni að það gæti
orðið greininni gríðarlegt högg.
Hver er þín skoðun á því að sótt
verði um aðild og deilir þú þessum
ótta bænda?
„Sú afstaða sem Evrópusam-
bandið hefur haft til sameiginlegr-
ar nýtingarstefnu í landbúnaði og
sjávarútvegi hefur verið ein ástæða
þess að Íslendingar og reyndar líka
Norðmenn hafa tekið þá afstöðu
að standa utan sambandsins þó
að samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið hafi tengt okkur
mjög náið við það. Í samninga-
viðræðum mun koma í ljós hvort
Evrópusambandið lítur á þessi mál
að einhverju leyti á nýjan hátt. Það
sem skapar okkur fyrst og fremst
vanda er spurningin hvort lítil hag-
kerfi, sem ætla sér virka þátttöku
í hinu alþjóðlega umhverfi, geti í
ljósi þeirrar alþjóðavæðingar sem
einkennir efnahagslíf veraldarinn-
ar – og ég tel litlar líkur á að það
muni breytast mikið í komandi
framtíð – búið við sjálfstæða mynt.
Það er lykilspurningin sem knýr
áfram þessa umræðu; gjaldmið-
ilinn og aðkoma Íslands að fjár-
málakerfi veraldarinnar, hvernig
getum við varið hagsmuni okkar í
þeim efnum. Það gæti verið kostur
að einangra hagkerfið og að loka
það að verulegu leyti af en ég efast
um að það sé mikil samstaða meðal
landsmanna um slíkt. Ég held að
þorri þjóðarinnar vilji áfram taka
þátt í alþjóðlegum samskiptum um
leið og menn treysta sínar rætur og
njóta þess að vera Íslendingar. Því
blasir við okkur sú spurning hvern-
ig við komum okkar myntkerfi
fyrir. Ég held að í ljósi þessa alls sé
mikilvægt að árétta það grundvall-
aratriði, að það er þjóðin sem á að
hafa síðasta orðið í þessu máli. Ég
hef ítrekað það og mun gera áfram.
Hvorki einstakar atvinnugreinar né
stjórnmálamenn eiga að ráða þessu
máli til lykta heldur þjóðin sjálf.
Það er sá leiðarvísir sem ég mun
fylgja sem forseti.“
Ættum að geta náð okkur hratt
á strik
– Hvaða vonir og væntingar hefur
þú fyrir íslenskan landbúnað og
íslenska þjóð á næstu misserum?
„Við höfum orðið fyrir miklu
höggi, þjóðin öll, einkum þeir sem
hafa misst sína atvinnu og hluta af
sínum tekjum og eignum í kjölfar
bankahrunsins. Á hinn bóginn
búum við Íslendingar að mikilvæg-
um auðlindum sem ættu að gera
okkur kleift að ná okkur hraðar og
betur upp úr þessum öldudal held-
ur en margar aðrar þjóðir. Þar á ég
við gæði landsins sem skila okkur
öflugum landbúnaði og kraftmikilli
ferðaþjónustu sem hvort tveggja
styrkir efnahag landsins. Okkur
hefur líka tekist að varðveita sjáv-
arauðlindir betur en flestar þjóðir.
Við búum yfir miklum orkuauð-
lindum sem gríðarleg eftirspurn er
eftir og eigum öfluga sveit vísinda-
manna og tæknimanna. Við eigum
tækniiðnað sem hefur verið að
spjara sig mjög vel. Síðast en ekki
síst eigum við mjög vel menntaða
þjóð, unga kynslóð sem hefur feng-
ið betri menntun og þjálfun heldur
en nokkur kynslóð önnur. Þegar
þetta er allt lagt saman eigum við
drjúgan efnivið til gagnsóknar
og endurreisnar sem ætti að gera
okkur kleift að ná góðri viðspyrnu
á nokkrum árum, einkum ef heims-
kreppan verður ekki dýpri en útlit
er fyrir nú um stundir.“
Bændablaðið óskar forsetanum
til hamingju með afmælið.
fr
Veggspjald af íslenska hundinum
Tvær stærðir eru í boði af spjaldinu af
íslenska fjárhundinum, 88 sm X 61 sm og
A3.
Verð er kr. 1.500 af stærri gerðinni og
kr. 900 af litlu spjöldunum.
Að auki bætist við sendingarkostnaður.
Einnig eru fáanleg stór veggspjöld af
sauðfé, nautgripum og hrossum þar sem
fram koma helstu litir og litaafbrigði
íslensks búfjár.
Hringdu í síma 563-0300 eða
sendu tölvupóst á netfangið
jl@bondi.is til þess að panta
veggspjald. Hægt er að greiða
með greiðslukorti eða fá sendan
greiðsluseðil.
Ný veggmynd af íslenska fjárhundinum fæst nú hjá
Bændasamtökunum. Alls eru 27 fjölbreyttar ljósmyndir af
hundum á öllum aldri í glæsilegu umhverfi.
www.bondi.is
GÓÐ KAUP
SP-302B, stærðir 90x90 sm
og 96x96 sm. sturtuklefi
SP-902B, stærð 107x107 sm.
sturtuklefi
SP-609A, stærð 130x130 sm.
sturtuklefi m/baði
SP-20SN, stærð 123x123 sm
Infra rauður saunaklefi
Saunaofnar ýmsar gerðir
GODDI.IS
Auðbrekku 19, 200 Kóp.
S. 5445550
Möguleiki á að taka reykrör
upp úr vél eða aftur úr henni.
Öryggisgler fyrir eldhólfi.
Trekkspjald fylgir.
Kerran er á 12" (30,5cm)
felgum. Burðargeta 530 kg. -
eigin þyngd 66 kg.
Sumarbústaður í landi Hallkelshóla í Grímsnesi til sölu,
byggður eftir 1960 en hús endurnýjað að fullu árið 1996.
Bústaðurinn er skráður 29,9 fm, klæddur að innan og utan og
er stór verönd á tvo vegu. Gróin lóð er kringum bústaðinn sem
stendur á 0,6 h. leigulandi. Ekki er rafmagn í bústaðnum en
sólarsella ásamt köldu vatni og gasvatnshitara.
Uppl. í símum
661-7159 og 483-4159