Bændablaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 23
23 Bændablaðið | fimmtudagur 14. maí 2009
Dagana 30. apríl-2. maí sl.
hélt European Focal Point for
Animal Genetic Resources
(ERFP) sitt fyrsta málþing hér
á landi. Um er að ræða sam-
starfsvettvang Evrópuþjóða
um verndun fjölbreytileika í
erfðaefni búfjár í samvinnu við
Búfjárræktarsamband Evrópu
(EAAP) og Matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Áður var slíkt samstarf hafið á
Norðurlöndum undir merkjum
Norræna genbankans.
Málþingið byggðist ann-
ars vegar á faglegri dagskrá um
ýmis efni sem tengjast verndun
erfðaefnis búfjár með nýtingu og
hinsvegar með kynnisferðum á
Vesturland og Suðurland til að
skoða íslensku landnámskynin og
kynnast íslenskum landbúnaði í
víðari skilningi. Veigamikil liður í
dagskránni var heimsókn á fjárbú,
hrossabú og kúabú í Andakíl
(Hestur, Miðfossar og Hvanneyri)
sem Emma Eyþórsdóttir dósent við
Landbúnaðarháskóla Íslands skipu-
lagði. Að öðru leyti skipulagði dr.
Ólafur R. Dýrmundsson, lands-
ráðunautur hjá Bændasamtökum
Íslands, málþingið fyrir hönd
Íslands en hann hefur verið fulltrúi
landsins í ERFP allt frá 1995. Þá
leiðsagði Ólafur hópnum í kynn-
isferðunum.
Ólafur segir að hugmyndina að
málþinginu megi rekja tæp tvö ár
aftur í tímann, til samtals við starfs-
systur hans frá Tékklandi. „Þegar
ég var að ræða um nýtingu gamalla
búfjárkynja við dr. Veru Matlova
frá Tékklandi á fundi ERFP – sem
haldinn var á undan ársfundi EAAP
í Dublin síðla sumars 2007 – fædd-
ist þessi hugmynd og ég ræddi
hana við Andreas [Georgoudis
framkvæmdastjóri ERFP]. Þegar
við hittumst aftur á fundi í Litháen
í haust var þetta afráðið og okkur
til mikillar ánægju fengust mjög
góðar undirtektir og ég varð aldrei
var við neina erfiðleika þrátt fyrir
bankahrunið og það kreppuástand
sem nú ríkir. Erlendu gestirnir gistu
á Hótel Sögu þar sem fagfundurinn
var líka haldinn, og voru mjög
ánægðir á alla hátt en flestir voru
að heimsækja landið í fyrsta skipti.
Fáeinir voru lengur og brugðu sér á
hestbak.“
Íslenska ræktunarstarfið
fær góða einkunn
Ólafur segir að erlendu gestunum
hafi litist vel á íslenska búféð.
„Þeim þótti athyglisvert hve mark-
vissar kynbætur tengdar bættri
meðferð hafa skilað góðum árangri
og hve vel hefur tekist að varðveita
margvíslega eiginleika sem jafnvel
eru ekki lengur þekktir í öðrum
búfjárkynjum. Þeim þótti við vera
góð fyrirmynd um verndun sam-
fara nýtingu,“ sagði Ólafur og bætti
síðan við: „Þetta eru að sjálfsögðu
þjóðargersemar sem okkur ber að
varðveita og komi til samninga
um aðild að Evrópusambandinu á
hiklaust að leita viðurkenningar á
sérstöðu þessara erfðaauðlinda og
nýtingu þeirra, m.a. vegna fæðu-
öryggis sem nú er að verða stórmál
í heiminum.“
Fyrstu árin var starfi ERFP stýrt
frá Frakklandi en nú er skrifstofan
í Þessalóníku í Grikklandi, þar sem
dr. Andreas Georgoudis prófessor
heldur um stjórnvölinn. Formaður
framkvæmdanefndar ERFP er dr.
Asko Maki-Tanila, prófessor frá
Finnlandi. Norðurlöndin, og þar
með Ísland, hafa verið þáttakendur
frá upphafi.
Skipulagningin fór fram í sam-
vinnu við Andreas og Christinu
Ligda á ERFP skrifstofunni í
Grikklandi. Þáttakendur voru 35
að tölu frá 22 Evrópulöndum.
Ólafur veitir fúslega nánari
upplýsingar um málþingið (ord@
bondi.is) en erindin hafa verið sett
inn á heimasíðu ERFP (www.rfp-
europe.org). -smh
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200
www.velfang.is velfang@velfang.is
ÖRFÁ EINTÖK EFTIR
Fr
um
Orkuboltinn –
frá TAARUP
Kúlu- og rúllulegur
www.falkinn.is- Það borgar sig að nota það besta
Flans- og búkkalegur
Hjólalegusett
Nála- og línulegur
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Legur í vélar og farartæki
Keilulegur
TRAUSTAR
VÖRUR...
...sem þola álagið!
3 stærðir áleggshnífar
Verð frá 47.000 + vsk
Verð 77.000 + vsk
Verð 112.000 + vsk
Hakkavélar
Grænmetisskurðarvél
mismunandi skurðarskífur
Erfðaauðlindir búfjár á Íslandi
– Verndun landnámskynja með nýtingu vekur athygli
Erlendu þátttakendurnir ásamt Ólafi R. Dýrmundssyni og Ingibjörgu
Pétursdóttur frá BÍ við Bláa lónið í lok ERFP málþingsins (Ljósm.C.Ligda).
!" #!" $
%%%$!" $
& !' (
)**
+
,
!(" -
.,//' (
!+) (($
Áratuga þjónusta við íslenskan landbúnað
Bændur og Búalið
Erum með vönduð og sterk Tamningagerði sem hægt er
að setja saman á auðveldan hátt. Grindurnar eru í þriggja
metra einingum og því auðvelt að velja sér stærð Tamn-
ingagerða.
- Framleiðum einnig ýmsar gerðir af gjafagrindum fyrir
allan búpening
- Kornvalsa með möguleika á margskonar drifbúnaði
- Afrúllara fyrir heyrúllur
- Innréttingar og stalla í hesthús
Nánari uppl. í síma 487-8136 eða 482-1980
Póstfang: vs-magga@simnet.is