Bændablaðið - 14.05.2009, Page 26
26 Bændablaðið | fimmtudagur 14. maí 2009
Ég hef stundum til gamans í pistlum þessum, til að
brjóta upp fræðslunuddið, rifjað upp kynni mín af
minnisstæðu fólki frá uppvaxtarárunum.
Hann hét Árni Halldór Jónsson og bjó síðari hluta
ævinnar í litlu bárujárnsklæddu timburhúsi sem hann
byggði sjálfur á Grjótgarði á Þelamörk.
Hann var þekktur undir nafninu Árni smiður, enda
hagur á tré og byggði meðal annars ásamt bróður
sínum Franklín mörg íbúðarhús og útihús víðsvegar í
Glæsibæjarhreppi og nærsveitum.
Árni smiður hafði ekki réttindi sem slíkur og lík-
lega, ef ég man rétt, ekki Franklín heldur.
Engu að síður byggðu þeir bræður í friði og ró fyrir
öllum stéttarfélögum og byggingafulltrúum fjölda húsa
eins og áður sagði, t.d. Ytri-Brennihól, Hamar og svo
auðvitað Grjótgarð, a.m.k þann hluta sem steyptur er
sem viðbygging við eldra húsið sem varð eldi að bráð
fyrir allmörgum árum.
Leiðir fjölskyldu minnar og Árna smiðs lágu saman
er hann varð ráðsmaður á Ytra-Brennihóli og varð
Árni fljótlega órjúfanlegur hluti fjölskyldunnar en
hann var alla tíð einstæðingur og giftist hvorki né eign-
aðist afkomendur.
Hann var því eins og afi í sveitinni okkar systkina
enda afar barngóður og bráðskemmtilegur karl.
Hann var að byrja að eldast um það bil sem ég fer
að muna eftir honum, fæddur 1885 á Laugalandi rétt
vestan Grjótgarðs.
Eftir að hann byggði sér litla húsið sitt við túngarð-
inn á Grjótgarði, þar sem við vorum öllum stundum
á sumrin, tengdumst við krakkarnir honum órjúfanleg-
um böndum og þótti okkur gott að kíkja við hjá gamla
manninum og ekki skemmdi nú að hann átti ætíð
Síríus suðusúkkulaði sem hann stakk að okkur og oft
sagði hann okkur sögur eða leyfði okkur að dunda með
sér við lagfæringar á húsgögum eða smíðum á ýmsum
nytjahlutum.
Verst að ég hafði það ekki í mér að smíða, er með
tíu þumalfingur þegar kemur að hamri og sög, svo leið-
beiningar Árna smiðs skiluðu sér ekki hvað mig varð-
aði en hins vegar kenndi hann Bjössa bróður mínum að
smíða varpkassa og skjólhús fyrir dúfurnar sínar.
Ég man vel að Árni reykti pípu og notaði tóbak sem
hét Gruno með afar sérstakri lykt sem er mér minn-
isstæð enn í dag, en Gruno fæst ekki lengur, held þetta
hafi verið hálfgerður ruddi en var ódýrt og oft kallað
verkamannatóbak.
Þeim gamla þótti heldur ekki slæmt að fá sér neðan
í því en þoldi það illa, þurfti lítið til að finna á sér en sá
var gallinn að þá gerðist hann oft sorgmæddur og bað
okkur þá margoft fyrirgefningar á sjálfum sér.
Síðan næstu mínútuna var hann farinn að leika á als
oddi og allar fyrri raunir gleymdar.
Hann var þá einnig afar hræddur við nágranna sinn
sem fékk sér stundum neðan í því líka og hafði þá
gjarnan hátt. Þessi nágranni var í raun prýðis maður að
öllu jöfnu, svolítið óheflaður og vildi engum illt, en vín
fór illa í hann eins og fleiri og þá var svona háreysti í
honum og þegar sú var raunin varð Árni gamli smiður
óskaplega hræddur, læsti öllum dyrum og lét fara lítið
fyrir sér.
Árni flutti tímabundið til okkar inn á Akureyri þegar
heilsan fór að bila en lést á sjúkrahúsinu á Akureyri á
vordögum 1963 þegar ég var að verða 15 ára. Vorum
við mikið hjá honum síðustu dagana og nokkrum
dögum áður en hann lést rétti hann mér gamlan skó-
kassa og sagði: „Diddi minn, nú fer Árni gamli að
kveðja og ég vil að þú eigir þessi frímerki, vinurinn
minn,“ og gamli maðurinn táraðist þegar hann strauk
mér yfir kollinn í síðasta sinn.
Blessuð sé minning Árna smiðs, eins mesta góð-
mennis sem ég hef kynnst um ævina.
Kæru lesendur.
Gleðilegt sumar! Já, það er komið
sumar í það minnsta á almanakinu
þótt enn sjáist einn og einn grámað-
ur snjóskafl hér og hvar og hita-
stigið rétt skriðið yfir frostmark.
Í þessum skrifuðu orðum bleytir
vorrigningin upp í gróðrinum í
Eyjafirðinum og hjálpar þannig til
við undirbúning sumarsins. Þannig
er að minnsta kosti gott að líta á
norðan rigningarsuddann þegar
sumarlöngunin nær yfirhöndinni
og það rignir í þremur gráðum. En,
svo verður það sennilega þannig
að áður enn við vitum af þá kemur
sumarið á sinn íslenska hátt, nær
alveg vorlaust og við gleymum
því um leið hvað við vorum búin
að bíða lengi eftir því. Á okkar
örstutta vori er ýmislegt sem hægt
er að sýsla og þarf að gera til þess
að undirbúa garðinn og leik okkar
og störf þar í sumar, já og plönt-
urnar, og stytta okkur biðina. Ég
spjallaði við Ingibjörgu Leifsdóttur,
garðyrkjufræðing hjá Sólskógum
við Akureyri, og fræðir hún okkur
í þessum pistli um þau verk sem
hægt er að ganga í núna þessar vik-
urnar í garðinum, helstu vorverkin.
Hreinsa beð
Um leið og snjóa leysir er fínt
að hefjast handa við að hreinsa til
í beðum. Það þarf að taka saman
laufblöð og aðrar jurtaleifar og gott
að skella þeim beint á safnhauginn
eða að setja þau undir runnabeð.
Gott er að kippa þá upp fyrstu ill-
gresisplöntunum ef þær eru komn-
ar af stað. Svo þarf að tína rusl og
koma því á viðeigandi stað ef fólk
er ekki búið að því!
Undirbúa matjurtarbeðin
Hægt er að byrja undirbúning á
matjurtabeði um leið og frost er
farið úr jörðu. Áður enn það gerist
er meira segja gott að dreifa hús-
dýraáburði, hrossaskít eða öðru
slíku yfir tilvonandi matjurtargarð-
inn. Þegar frost er svo alveg farið
úr jörðu þá er hafist handa við að
stinga upp garðinn. Þá tekur maður
sér stungugaffal í hönd og stingur
upp garðinn og snýr og veltir mold-
inni við. Um leið blandast húsdýra-
áburðurinn saman við. Síðan er
yfirborð garðsins jafnað út þannig
að garðurinn er tilbúinn til notk-
unar þegar farið er að planta út.
Undirbúa sumarblómabeð
Það er auðvitað alltof snemmt
að planta út sumarblómum alveg
þangað til hætta á frostum og hret-
um er liðin hjá, sem er ekki fyrr enn
síðast í maí eða byrjun júní norð-
anlands. En það er hægt að byrja
að undirbúa sumarblómabeðin,
bæði með því að hreinsa úr þeim,
bera í þau áburð og stinga upp.
Eins er gott að plana beðin aðeins
og fara að pæla í því hvaða plöntur
fólk langar að vera með og hvern-
ig það vill raða þeim saman, bæði
upp á blómgunartíma, lit, stærð og
annað slíkt sem þarf að taka tillit
til. Þau sem ekki hafa fyrir mánuði
eða meira sáð fyrir sumarblómum
eru orðin of sein með það og verða
að nálgast þau á næstu gróðrarstöð
þegar þar að kemur, eða sem sagt
eftir um mánuð.
Safnhaugurinn
Núna er mjög gott að moka úr
safnhaugnum þeim hluta sem til-
búinn er sem molta og moka henni
í beðin, bæði fjölæringa, sumar og
matjurtabeð, eftir því hvað fólk á
mikið af þessu og er með af beðum.
Svo þarf að moka til í haugnum, því
sem eftir verður og nýtist seinna,
það þarf að hreyfa við því og snúa.
Færa til tré
Núna er góður tími til þess að
færa til tré ef það var á dagskrá.
Mikilvægt er að gera þetta áður
enn tréð fer alveg af stað í vexti um
sumarið. Gott er að hafa rótarstung-
ið það haustinu áður. Þá er stungið
í hring í kringum tréð dálítið frá því
og djúpt niður þannig að ræturnar
skerist í sundur. Um vorið er tréið
svo stungið alveg upp og fært á
nýjan stað. Þar er það gróðursett á
sama hátt og gert er að öllu jöfnu
þegar gróðursett er.
Flutningur fjölæringa
Marga fjölæringa er gott að taka
upp núna eða um leið og frost er
farið úr jörðu. Svo er þeim skipt
ef það þarf að gera eða færðir til
og komið fyrir á nýjum stað. Það
er einmitt gott að gera þetta eins
snemma og jarðvegurinn leyfir og
það áður enn plönturnar fara að
gera sig í sumrinu.
Sá fyrir grænmeti
Fyrir þau sem forrækta eigið græn-
meti, þá er mjög gott að sá fyrir
grænmeti núna, fólk er þó svona að
verða í seinna fallinu fyrir kálteg-
undir en gott er að sá fyrir salati í
byrjun maí. Kannski eitthvað fyrr
sunnan heiða. Og svo þarf að leggja
kartöflur til spírunar. Það er líka
hægt að sá fyrir kryddjurtum núna
sem þá eru tilbúnar til neyslu eitt-
hvað seinna um sumarið.
Klippingar
Í rauninni er allt í lagi að klippa
flestar tegundir allt árið um kring.
Það er samt best að klippa flestar
tegundir á veturna eða áður enn
vöxtur kemst í plönturnar að vori.
Gott er að fjarlægja dauðar grein-
ar ef einhverjar eru. Blátoppinn
og aðrar algengar limgerðisplöntur
má líka klippa núna og hefur sums
staðar ekki verið hægt fyrr þar sem
snjór hefur legið að plöntunum.
Það er hins vegar gott að taka svo
pásu í klippingum yfir mitt sumarið
þegar plönturnar eru í fullum vexti.
Nema ef þarf að halda aftur af eða
gefa runnum form sem spretta
hratt, eins og er með víði.
Framkvæmdir fyrirhugaðar
Þau sem ætla sér að fara í einhverj-
ar frekari framkvæmdir í garðinum
í sumar geta byrjað að spá frekar í
þær, til dæmis ef á að byggja pall,
gera safnhaug eða runnabeð. Svo er
hægt að byrja framkvæmdirnar!
Gangi ykkur vel í vorverkunum
og njótið útiverunnar sem og for-
ræktunar enda garðverkin í vorinu
ekkert nema besta heilsurækt, hreyf-
ing og ferskt loft eftir inniveruna.
Garðverkin í vorinu
Ingibjörg Leifsdóttir garðyrkjufræðingur við Sólskóga á Akureyri fjallar í
pistlinum um helstu vorverkin. Hér stendur hún við spengilegar tómata-
plöntur sem njóta forsmekksins að sumrinu í gróðurhúsi á meðan við
bíðum óþreyjufull eftir sumrinu utandyra.
Kristín Þóra Kjartansdóttir
sagnfræðingur og garðyrkjunemi
kristinkj@gmx.net
Gróður og garðmenning
Kristján Gunnarsson
mjólkureftirlitsmaður
HEYRT Í SVEITINNI