Bændablaðið - 14.05.2009, Síða 28
28 Bændablaðið | fimmtudagur 14. maí 2009
3 8 4
5 7 9
5 3 4 8
2 6
6 9 7 4
1 6 3
1 5 4
8 2 5 6
4 9 1
7
2 4
6 1 3 7
8 2
9
1 7 9
5 9 6 8
1 4 6
9 8
7 9 5
3 7 1
2 8 7 3
6 2 4
9 5 4
2 5
3 4 7
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóðrétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Gómsætt og gott við sauðburðinn
Sigríður Bergvinsdóttir er flest-
um kartöfluunnendum þessa
lands kunn, enda hefur hún verið
iðin við að halda merkjum kart-
aflna á lofti og ýmsum möguleik-
um sem þær búa yfir í matargerð.
Sigríður er ekki eingöngu mikil
mataráhugamanneskja heldur
hefur hún mikla unun af hvers
konar útivist og ákvað að deila
með lesendum tveimur vorupp-
skriftum sem upplagt er að útbúa
og taka með sér í nesti hvert sem
er nú eða hafa við hendina í sauð-
burðinum.
„Mig langaði að hafa uppskrift-
irnar í voranda og eitthvað sem við
getum tekið með okkur sem nesti við
hvers konar tilefni, í reiðtúrinn eins
og ég gerði, hjólatúrinn, göngutúrinn
eða bara út í kartöflugeymslu eða
hafa við hendina við sauðburðinn.
Ég hef alltaf verið mikil nestismann-
eskja, hef það frá uppvaxtarárunum
í sveitinni. Það var oft útbúið sér
nesti og skroppið í skógarferð, eða
haft með sér í veiðiferðina. Nú svo
var nú alltaf nesti tekið með út í kart-
öflugarð, það var nú ákaflega gott
að gæða sér á heitu kakó og smurðu
brauði þegar kaldir haustdagar herj-
uðu á kartöflufólkið. Það er nú bara
þannig að ef á að fara í góðan reið-
túr, veiðiferð, snjósleðaferð eða bara
gönguferð er nestið alltaf útbúið.
Þessar uppskriftir er gott að útbúa
og eiga í ísskáp eða frysti og grípa
í þegar miklar annir eru eða þegar
gesti ber að garði,“ segir Sigríður.
Kartöflupestó
2 dl matarolía
200 g kartöflur, soðnar
1 búnt basilika
handfylli af klettakáli eða spínati
70 g pistasíukjarnar eða hvers konar
möndlur eða hnetur
2 hvítlauskgeirar
2 msk. parmesanostur
salt
pipar, nýmalaður
Aðferð:
Setjið allt nema kartöflurnar í mat-
vinnsluvél og maukið vel. Stappið
kartöflurnar þegar þær eru orðnar
kaldar og setjið saman við. Setjið
í krukkur og geymið í kæli. Þetta
pestó er virkilega gott ofan á brauð
og kex en líka er hægt að smyrja því
ofan á alls konar grillmat, bæði kjöt,
fisk og kjúkling og láta grillast með.
Einnig er gott að maka pestóinu
á grillmatinn daginn áður en á að
grilla hann, skafa það svo af þegar
grillað er og setja svo aftur á þegar
búið er að snúa grillmatnum við á
grillinu og láta grillast með síðustu
mínúturnar.
Kartöflubitar
Botn:
100 g smjör
3 msk. kakó
200 g hafrakex
100 g kókosmjöl
50 g möndlur
1 egg
1 tsk. vanilludropar
Krem:
50 g smjör
1 msk. mjólk
200 g flórsykur
200 g kartöflur , soðnar og kældar.
½-1 tsk. piparmyntudropar
grænn matarlitur
Hjúpur:
100 g suðusúkkulaði
Aðferð:
Botninn: Bræðið smjörið og hrær-
ið kakó saman við, myljið kexið og
blandið kókosmjöli, hökkuðum möndl-
um, eggi, vanilludropum og kakósm-
jörinu saman við. Þrýstið mulningnum
vel ofan í kökumót eða álbakka, um
20x30 cm. að stærð, Kælið í ísskáp í
örlítinn tíma.
Kremið: Mýkið smjörið í hrærivél og
þeytið mjólk og flórsykur saman þar
til blandan verður jöfn og bætið vel
stöppuðum kartöflum út í. Bætið pip-
armyntudropum og grænum matarlit
saman við, smyrjið kreminu ofan á
botninn og kælið aftur í svolitla stund.
Hjúpurinn: Bræðið súkkulaðið og
smyrjið ofan á kremið. Látið súkkul-
aðið stífna en skerið í ferninga áður
en það verður alveg hart.
ehg
MATUR
Þorgrímur og Helga á
Erpsstöðum í Miðdölum í
Dalasýslu hófu búskap vorið
1997, með 24 kýr og geldneyti,
30 ær og 10 hross. Þau keyptu af
þeim heiðurshjónum Gunnhildi
Ágústdóttur og Hólmari Pálssyni,
sem höfðu þar búið frá því um
1975. Þau byggðu jörðina upp á
þeirra tíð, hlöðu 1978, sambyggt
fjós og fjárhús 1982-83 og íbúðar-
hús 1984. Fjósið var einstæðufjós
og um 300 kinda fjárhús, en uppúr
1990 stækkuðu þau fjósið, hættu
með kindurnar og breyttu stærsta
hluta fjárhússins í kálfafjós.
Býli?
Erpsstaðir í Dalabyggð.
Staðsett í sveit?
Í Miðdölum í Dalasýslu.
Ábúendur?
Þorgrímur Einar Guðbjartsson (40)
og Helga Elínborg Guðmundsdóttir
(39).
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Börnin eru Guðbjört Lóa (16),
Gunnlaug Birta (15), Einar Björn
(10), Guðmundur Kári (10) og
Hólmfríður Tania (5) . Íslenski
hundurinn okkar hann Spotti hefur
fylgt okkur í nær 10 ár, honum er
allt fyrirgefið eins og sveitungar
okkar vita. Svo eigum við hana
Týru og 5 splunkunýja hvolpa.
Börnin eiga svo 3 naggrísi, Kalla
kanínu og 7 kindur (en það er sam-
eign með afa).
Stærð jarðar?
Alveg nógu stór og rúmgott
nágrenni!
Tegund býlis?
Hér á Erpsstöðum er reynt að nýta
það sem landið býður upp á við-
komandi landbúnaði og öðru sem
fer ágætlega með; s.s. ferðaþjón-
usta, móttaka skólahópa, tökum
börn í sveit (fullbókað næstu 18
árin ), uppgræðsla, heimavinnsla
ofl .
Fjöldi búfjár og tegundir?
60 kýr, 90 nautgripir og 6 hestar,.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Göngum til verka upp úr kl. 7.
Dýrunum sinnt og hugað að inn-
setningu á heyi fyrir hádegi. Í
vetur höfum við verið að byggja
upp heimavinnsluna, með
búskapnum og hefur það tekið
drjúgan tíma. Reynum að vera
kominn inn um kl. 19 og gerum
sem minnst eftir kvöldmat, nema
þegar bjarga þarf verðmætum.
Börnin fara öll með skólabíl til
Búðardals í leik og grunnskóla kl.
08 og eru komin heim kl 15:30
en þrisvar í viku stunda þau flest
íþróttir og annað félagsstarf eftir
skóla og er þá heimkoma ekki
fyrr en um kl. 18. Helga er í
40% starfi á Hjúkrunarheimilinu
Fellsenda og Þorgrímur er í fullu
starfi (segir frúin) utan bús sem
sveitarstjórnarmaður.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Þorgrími finnst skemmtilegast að
mjólka og það hefur ekki breyst
með tilkomu nýju tækninnar,
hinsvegar er afskaplega leiðinlegt
að vinna utandyra í rigningu.
Annars er allt skemmtilegt þegar
vel gengur og allra best að vinna
úti í góðu veðri.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5
ár?
Förum með bænir á kvöldin og
yfirleitt hefur morgundagurinn
endað á annan hátt en fyrirætlanir
voru uppi um!
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda?
Þorgrímur er mikill „Bjartur í
sumarhúsum“ þegar kemur að
félagsmálum bænda og tekur
ekki mikinn þátt í þeim, s. s.
búgreinafélögum, búnaðarfélag-
inu og öðru slíku en Helga hins
vegar hefur tekið þátt í þeirri
starfsemi, verið í stjórnum ofl.
Okkur finnst of mikill tími og
peningar fara í að halda utan um
þennan pakka og skila oft litlu og
ef einhverjum verður á að gagn-
rýna þá starfsemi, þá eru forsvars-
menn bændafélaganna mun betri í
vörn en sókn.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Ef við leyfum okkur að lifa í sátt
við það sem við höfum í höndun-
um, landið og lífið, þá mun land-
búnaði vegna vel, hér eftir sem
hingað til. Okkur var ekki spáð
löngum lífdögum á Erpsstöðum
fyrir 12 árum er við keyptum
jörðina, en hér erum við enn!!!
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara?
Innflutningi á ferðamönnum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ostur, smjör og súrmjólk
(…og piparsósa fyrir karlinn).
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Grjónagrautur og súrt slátur.
Reyndar líka pitza og svo skorar
ísinn okkar, „Kjaftæði", hátt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Öll þau óhöpp sem orðið hafa á
bænum og enginn meiðst, eins og
þegar dóttir okkar ók ofan í skurð
og vinnumaðurinn gerði það líka
daginn eftir. Enginn meiddist og
vélarnar eru enn nothæfar.
Bærinn okkar
Erpsstaðir, Miðdölum
Þorgrímur Einar Guðbjartsson og
Helga Elínborg Guðmundsdóttir.
Börnin fimm á Erpsstöðum.
Sigríður með syni sínum Svani
Berg í hesthúsunum að gæða sér
á kartöflupestóinu og kartöflubit-
unum.