Bændablaðið - 10.03.2011, Síða 21
21Bændablaðið | fimmtudagur 10. mars 2011
Lyngháls 3 / Lónsbakki Akureyri / www.lifland.is / sími: 540 1100
Hjólbörur
og
fóðurvagnar JFC hjólbörur 255 L sturtanleg plastskúffa
63.920 kr
JFC fóðurvagn
250 L og 255 L skúffa
49.920 kr
Skeifunni 5 U 581 3002
Akureyri
462 3002
Egilsstöðum
471 2002
HÁGÆÐA
TRAKTORSDEKK
GSM magnarar virka þannig að loftnet
er sett utan á húsið, bílinn eða bátinn,
annað loftnet inni í húsið, bílinn eða bátinn
og allir fá þá notið mögnunarinnar.
Er GSM samandið lélegt ?
Erum með GSM magnara fyrir bílinn,
bátin,vinnuna, heimilið og sumabústaðinn
Verð frá 38.537
Dalvegi 16b s: 5542727
Kornuppskera í Rússlandi náði
áður óþekktum lægðum á síð-
asta ári en þá dróst hún saman
um þriðjung miðað við meðal-
tal síðustu ára. Samdrátturinn
varð í allri kornrækt og auk þess
í annarri jarðyrkju á meðan kjöt-
framleiðsla jókst.
Ástæðuna má rekja til gríðarlegra
þurrka síðasta sumar í Rússlandi og
höfðu þeir áhrif á flestar greinar
jarðyrkju. Samkvæmt opin-
berum tölum var hveitiuppskera
í Rússlandi 41,5 milljónir tonna
í fyrra en það er samdráttur um
32,8 prósent frá árinu áður. Hveiti
er um 64 prósent af allri kornrækt
í Rússlandi.
Kartöfluframleiðsla dróst saman
um 32,1 prósent og fór niður í 21,1
miljón tonna og sykurrófnaupp-
skeran dróst saman um tæp ellefu
prósent. Grænmetisframleiðsla
dróst saman um tæp tíu prósent.
Hins vegar jókst kjötframleiðsla
nokkuð eða um 10,5 milljónir
tonna. Eggjaframleiðsla jókst um
tæp 3 prósent á meðan mjólkur-
framleiðsla minnkaði um rúm tvö
prósent.
Heimild: Landsbygdens folk
Kornuppskera í Rússlandi hrundi