Bændablaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | fimmtudagur 10. mars 2011
Lánatryggingasjóður kvenna var
endurvakinn á þriðjudaginn 8.
mars og staðfest með undirskrift
Katrínar Júlíusdóttur iðnaðar-
ráðherra, Guðbjarts Hannessonar
velferðarráðherra og Jóns Gnarr,
borgarstjóra. Hlutverk sjóðsins
er að styðja konur til þátttöku og
nýsköpunar í atvinnulífinu með
veitingu ábyrgða á lánum.
Áherslur sjóðsins eru
eftirfarandi:
Að styðja við bakið á konum sem
eiga og reka smærri fyrirtæki.
Að stuðla að því að auka hlut
kvenna sem eigendur og stjórn-
endur fyrirtækja.
Að auka aðgengi kvenna að fjár-
magni til fyrirtækjareksturs.
Að fjölga störfum og stuðla að
nýnæmi í atvinnulífi.
Að veita ráðgjöf og stuðning við
konur sem fá lán og gefa þeim
kost á handleiðslu og stuðningi.
Að hvetja jaðarhópa kvenna til
þátttöku í atvinnulífinu, svo sem
innflytjendur.
70 milljóna króna eignir
Eignir sjóðsins nema rúmum 70
milljónum króna. Í áætlunum er gert
ráð fyrir að samtals verði unnt að
veita ábyrgðir fyrir allt að fimm-
faldri stofnfjárhæð sjóðsins, eða um
350 milljónum króna.
Upphaflega stofnaður 1997
Lánatryggingasjóður kvenna var
upphaflega stofnaður árið 1997 sem
tilraunaverkefni félagsmálaráðu-
neytis, iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytis og Reykjavíkurborgar til
þriggja ára. Verkefnið var framlengt
um nokkur ár en árið 2005 var hætt
að veita ábyrgðir úr sjóðnum.
Haustið 2008 ákváðu stofnaðilar
að kanna stöðu og starfsgrundvöll
sjóðsins. Farið var yfir starfsemi
hans frá upphafi og aflað upplýsinga
um atvinnumál kvenna, stöðu þeirra
gagnvart lánastofnunum og aðgangi
að lánsfé. Einnig voru skoðaðar
svipaðar aðgerðir erlendis, meðal
annars hjá Evrópusambandinu
og í Danmörku. Niðurstaðan var
sú að enn sem fyrr væri brýnt að
styðja konur við stofnun og rekstur
fyrirtækja á sviði nýsköpunar og
því hefur sjóðurinn nú verið endur-
vakinn.
Vinnumálastofnun annast
daglegan rekstur
Velferðarráðherra skipaði stjórn
lánatryggingasjóðs kvenna á þriðju-
daginn í samræmi við reglur sjóðs-
ins en verkefni hennar er að móta
lánareglur í samráði við stofnaðila.
Fulltrúi ráðherra er Steinunn Valdís
Óskarsdóttir formaður, Jón Steindór
Valdimarsson, fulltrúi iðnaðarráð-
herra og Sigrún Elsa Smáradóttir,
fulltrúi Reykjavíkurborgar.
Vinnumálastofnun mun annast
umsýslu og daglegan rekstur sjóðs-
ins og verður nánara fyrirkomulag
kynnt síðar á heimasíðu stofnunar-
innar.
Er þetta draumurinn?
HÝSI-MERKÚR ehf. - Völuteigur 7, Mosfellsbæ - Sími 5346050
hysi@hysi.is / www.hysi.is
Dalvegi 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Hagstæðustu kaupin - New Holland rúllubindivélar
Rúlluvél:
• Stærð baggahólfs 120x120 cm, rúmmál 1,35 m2 • 2 m breið sópvinda
• 15 hnífar • Netbindibúnaður • Sjálfvirkt smurkerfi á drifkeðjum
• „Bale Command“ stjórntölva á íslensku, auðveld í notkun
• Drifskaft með tvöföldum hjörulið og átaksöryggi
• Dekk 19,0/45-17 (2 hásingar á sambyggðri vél)
Pökkunarvél:
• Alsjálfvirk pökkunarvél • Pakkar með 2 x 750 mm plastrúllum
• Stillanleg strekking • Auðveldur stjórnbúnaður
New Holland BR6090 COMBI sambyggð rúllubindi- og pökkunarvél
Verð kr. 6.950.000,- án vsk.* (kr. 8.722.250,- m/vsk.)*
New Holland BR6090RC stök rúllubindivél
Verð kr. 3.515.000,- án vsk.* (kr. 4.411.325,- m/vsk.)*
* Verð miðast við gengi EUR 160
Gerið góð kaup núna
því tilboðið gildir
aðeins út mars mánuð
Lánatryggingasjóður
kvenna endurvakinn
Ætlað að styðja konur til þátttöku
og nýsköpunar í atvinnulífinu með
veitingu ábyrgða á lánum