Bændablaðið - 10.03.2011, Qupperneq 25

Bændablaðið - 10.03.2011, Qupperneq 25
25Bændablaðið | fimmtudagur 10. mars 2011 Lánatryggingasjóður kvenna var endurvakinn á þriðjudaginn 8. mars og staðfest með undirskrift Katrínar Júlíusdóttur iðnaðar- ráðherra, Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra og Jóns Gnarr, borgarstjóra. Hlutverk sjóðsins er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með veitingu ábyrgða á lánum. Áherslur sjóðsins eru eftirfarandi: Að styðja við bakið á konum sem eiga og reka smærri fyrirtæki. Að stuðla að því að auka hlut kvenna sem eigendur og stjórn- endur fyrirtækja. Að auka aðgengi kvenna að fjár- magni til fyrirtækjareksturs. Að fjölga störfum og stuðla að nýnæmi í atvinnulífi. Að veita ráðgjöf og stuðning við konur sem fá lán og gefa þeim kost á handleiðslu og stuðningi. Að hvetja jaðarhópa kvenna til þátttöku í atvinnulífinu, svo sem innflytjendur. 70 milljóna króna eignir Eignir sjóðsins nema rúmum 70 milljónum króna. Í áætlunum er gert ráð fyrir að samtals verði unnt að veita ábyrgðir fyrir allt að fimm- faldri stofnfjárhæð sjóðsins, eða um 350 milljónum króna. Upphaflega stofnaður 1997 Lánatryggingasjóður kvenna var upphaflega stofnaður árið 1997 sem tilraunaverkefni félagsmálaráðu- neytis, iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytis og Reykjavíkurborgar til þriggja ára. Verkefnið var framlengt um nokkur ár en árið 2005 var hætt að veita ábyrgðir úr sjóðnum. Haustið 2008 ákváðu stofnaðilar að kanna stöðu og starfsgrundvöll sjóðsins. Farið var yfir starfsemi hans frá upphafi og aflað upplýsinga um atvinnumál kvenna, stöðu þeirra gagnvart lánastofnunum og aðgangi að lánsfé. Einnig voru skoðaðar svipaðar aðgerðir erlendis, meðal annars hjá Evrópusambandinu og í Danmörku. Niðurstaðan var sú að enn sem fyrr væri brýnt að styðja konur við stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði nýsköpunar og því hefur sjóðurinn nú verið endur- vakinn. Vinnumálastofnun annast daglegan rekstur Velferðarráðherra skipaði stjórn lánatryggingasjóðs kvenna á þriðju- daginn í samræmi við reglur sjóðs- ins en verkefni hennar er að móta lánareglur í samráði við stofnaðila. Fulltrúi ráðherra er Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður, Jón Steindór Valdimarsson, fulltrúi iðnaðarráð- herra og Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Reykjavíkurborgar. Vinnumálastofnun mun annast umsýslu og daglegan rekstur sjóðs- ins og verður nánara fyrirkomulag kynnt síðar á heimasíðu stofnunar- innar.  Er þetta draumurinn? HÝSI-MERKÚR ehf. - Völuteigur 7, Mosfellsbæ - Sími 5346050 hysi@hysi.is / www.hysi.is Dalvegi 6-8 201 Kópavogur Sími 535 3500 www.kraftvelar.is kraftvelar@kraftvelar.is Hagstæðustu kaupin - New Holland rúllubindivélar Rúlluvél: • Stærð baggahólfs 120x120 cm, rúmmál 1,35 m2 • 2 m breið sópvinda • 15 hnífar • Netbindibúnaður • Sjálfvirkt smurkerfi á drifkeðjum • „Bale Command“ stjórntölva á íslensku, auðveld í notkun • Drifskaft með tvöföldum hjörulið og átaksöryggi • Dekk 19,0/45-17 (2 hásingar á sambyggðri vél) Pökkunarvél: • Alsjálfvirk pökkunarvél • Pakkar með 2 x 750 mm plastrúllum • Stillanleg strekking • Auðveldur stjórnbúnaður New Holland BR6090 COMBI sambyggð rúllubindi- og pökkunarvél Verð kr. 6.950.000,- án vsk.* (kr. 8.722.250,- m/vsk.)* New Holland BR6090RC stök rúllubindivél Verð kr. 3.515.000,- án vsk.* (kr. 4.411.325,- m/vsk.)* * Verð miðast við gengi EUR 160 Gerið góð kaup núna því tilboðið gildir aðeins út mars mánuð Lánatryggingasjóður kvenna endurvakinn Ætlað að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með veitingu ábyrgða á lánum

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.