Bændablaðið - 10.03.2011, Page 36
36 Bændablaðið | fimmtudagur 10. mars 2011
Tækni og tæki
Pallbíll er eitthvað sem allir hafa
einhvern tíman not fyrir, ég rakst
á einn fyrir nokkru á hreint frá-
bæru verði. Það er Kia K2900
sem fæst á tilboði fyrir aðeins
1.590.000 krónur fyrir utan
virðisaukaskatt.
Askja er með umboðið fyrir Kia
og hefur verið að bjóða litla pallbíla
undanfarið á hlægilegu verði, Kia
K2900 og hafa verið í boði þrjár
útfærslur af þessum bíl. Sökum hag-
stæðs verðs er aðeins ein tegundin
eftir sem er 2.9 King Cab disel bein-
skiptur 5 gíra með 125 hestafla vél.
Mjög lipur
Ég brá mér upp í Öskju og fékk að
prófa bílinn í dagspart fyrir nokkru.
Það fyrsta sem ég tók eftir var
hversu hægt var að leggja mikið á
bílinn í beygjum og fyrir vikið gerir
þetta bílinn mjög lipran á bílaplön-
um og við þröngar aðstæður. Það
var blautur snjór yfir flestum hliðar-
götum þennann dag og því aðstæður
til prufuaksturs ekki þær bestu fyrir
akstur á tómum og óhlöðnum pall-
bíl, en 75% tregðulæsingin kom á
óvart og í tvígang komst ég þangað
sem ég var fyrirfram búinn að
ákveða að væri vonlaust á tómum
bílnum á sumardekkjunum. Sé bíll-
inn notaður mikið í snjó og hálku er
gott pláss til að setja keðjur á bílinn
að aftan. Krafturinn í vélinni skilar
bílnum vel áfram og upptakið er
mjög gott, frekar stutt á milli gíra,
en það tekur ekki nema um 100
metra að klára gírana úr einum og
upp í fimm sé maður grimmur á
gjöfinni.
Full þröngt fyrir þrjá
Bíllinn er skráður fyrir tvo farþega,
en plássið er ekki mikið fyrir þrjá
fullvaxna Íslendinga, en fyrir tvo
er plássið gott, þá er hægt að setja
bakið í miðjunni niður og kemur
þá þetta fína borð fyrir kaffið og
nestisboxið. Fyrir aftan sætin er
ágætis pláss fyrir farangur (þó er
varla pláss þar fyrir reiðhnakk, en
ætti að vera nægilegt pláss fyrir
meðalstærð af smalahundi og jafn
vel kæmust tveir hundar þar fyrir).
Tekur fjórar heyrúllur
Eins og fyrr segir var boðið upp á
þrjár mismunandi gerðir af bíln-
um, en þessi sem ég ók er með
tæplega þriggja metra löngum palli
(L 2.860x1.630B) sem má hlaða á
1450 kg (ætti að fara vel með fjórar
heyrúllur), en hæðin upp á pallinn
er 76cm. sem er þægilega lágt upp á
að hlaða bílinn með handafli (skjól-
borðin á hliðunum og að aftan eru
niðursetjanleg).
Þar sem bíllinn er með 12 tommu
dekk að aftan og 15 tommu að
framan eru tvö varadekk undir bíln-
um aftarlega. Diselolíutankurinn er
um 50 lítra, en uppgefin eyðsla á
hundraðið er 10,2 lítrar. Dráttargeta
bílsins er 1400 kg, en ég mæli ein-
dregið með því að það séu a.m.k.
200 kg aftarlega á pallinum ef verið
er með kerru aftan í bílnum eða
verið að draga annað ökutæki.
Gríptu gæsina
Askja hefur verið með bílinn á til-
boði og eru aðeins eitt eða tvö eintök
eftir á þessu tilboði, en miðað við
verðlag og gengi gjaldmiðla get ég
ekki séð að svona verð komi til með
að sjást nokkurn tíma aftur og því
ætti að vera í lagi að enda þetta með
setningunni: Gríptu gæsina á meðan
færi gefst.
Kia pallbíll á hlægilegu verði
Varadekkin eru aftast undir pallinum.
Nýr Kia K2900 fæst á tilboði á tæplega 1,6 milljónir króna fyrir utan
virðisaukaskatt.
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Gott pláss fyrir tvo með kaffiborð á
milli sín og ágætis pláss fyrir aftan
sætin.
Mælaborðið er ósköp venjulegt, ekk-
ert bruðl, bara það nauðsynlegasta
þar.
Verð:
(tilboð) 1.590.000
+ vsk
Lengd: 5120 mm
Breidd: 1740 mm
Hæð 1995 mm
Hestöfl: 125
Vél:
2,900cc CRDI turbo
disel intercooler 4cl.
Dekk,
framan
195-15
aftan
500-12
hleðsludekk
Helstu mál Kia K2900:
Bændur á Vesturlandi á loðnuvertíð
Hér er loðnuhrygnan skorin, hrognin eru skilin frá og fara í hreinsun en
hratið fer beint í bræðslu. Starfsfólkið sem vinnur að frystingu og pökkun. Myndir | smh
Í frystihúsi HB Granda á Akranesi
sér nú fyrir endann á vel heppn-
aðri loðnuvertíð. Unnið er hörðum
höndum við vinnslu loðnuhrogna
og frystingu og eru 80 manns að
störfum allan sólarhringinn á tví-
skiptum 16 tíma vöktum. Sem fyrr
fjölmenna sauðfjárbændur víðsveg-
ar af Vesturlandi á Skagann til að
vinna úr verðmætunum og blandast
þar hópi heimamanna, en um árabil
hafa bændur vikið frá daglegum
bústörfum í nokkrar vikur á þessum
árstíma og skellt sér á vertíð.
Þegar blaðamaður heimsótti gamla
Heimaskagahúsið var farið að sjá fyrir
endann á vertíðinni. Andinn í hópnum
var góður enda á boðstólum kræsileg
terta sem hafði verið gerð af því tilefni
að búið var að frysta 1.000 tonn af
hrognum. Arnar Eysteinsson, sauð-
fjárbóndi í Stórholti í Dölum, fer fyrir
bændahópnum (og fylgifiskum) en
hann hefur verið á loðnuvertíðum frá
2001. Upphafið rekur hann til ársins
2000 þegar hann byrjaði að vinna hjá
fyrirtækinu Djúpakletti í Grundarfirði,
sem á þeim tíma sá um landanir úr
frystitogurum Haraldar Böðvarssonar
á Akranesi ásamt því að manna loðnu-
vertíðirnar. „Við komum þá fjórir úr
Dölunum og tókum þátt í löndunum,
m.a. úr Helgu Maríu og Höfrungi III,
og unnum á loðnuvertíðunum. HB
Grandi hætti samstarfi við Djúpaklett
eftir vertíðina 2005 og árið eftir báðu
þeir mig um að útvega svona 6-7 karla
í loðnuvertíðina, síðan hefur fólkinu
sem er á mínum vegum fjölgað jafnt
og þétt. Núna er fjöldinn um 50 og
það kemur víða að; Snæfellsnesi,
Dölum, Borgarfirði, Reykhólasveit
og Akranesi – af öllu Vesturlandi má
segja. Að auki er innanbúðarfólk frá
fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi,
um 30 manns, líka við hrognavinnsl-
una,“ segir Arnar.
Vinnslan á Akranesi afkastar um
170 til 180 tonnum af hrognum á
sólarhring. Það samsvarar vinnslu
úr um 1.500 tonna loðnufarmi.
Frystigetan er hins vegar 100 tonn
á sólarhring. Þegar hrognavertíðin
er í hámarki og vel veiðist eru fersk
loðnuhrogn því send landleiðina frá
Akranesi, sem er í næsta nágrenni
við loðnumiðin, til Vopnafjarðar til
frystingar og pökkunar. Auk þess
sigla skip HB Granda þangað með
afla til hrognatöku.
/smh
Þúsund tonna markinu náð. Arnar
fær sér sneið.
Hrognunum pakkað.
Á Eyrinni, þar sem hrognin eru þurrkuð.