Bændablaðið - 16.05.2012, Qupperneq 2
Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 20122
Á dögunum gáfu Bændasamtök
Íslands út bækling með nafninu
Tollar og íslenskur landbúnaður.
Eins og nafnið gefur til kynna
er í bæklingnum fjallað um það
tollaumhverfi sem íslenskur land-
búnaður býr við en einnig dregin
upp sú sviðsmynd sem skapast
myndi, væru tollar afnumdir.
Í ljósi umsóknar Íslands um
aðild að Evrópusambandinu
(ESB) er sú spurning gríðarlega
mikilvæg en ein meginstoða
Evrópusamstarfsins er frjálst
flæði vöru milli aðildarlanda ESB,
án tolla.
Ísland áskilur sér rétt til að taka
upp tollverndarmál í samningum
Samráðshópur um utanríkisvið-
skipti/utanríkistengsl og tolla-
mál vegna aðildarumsóknarinnar
hefur fjallað um athugasemdir
Bændasamtakanna.
Í bréfi frá formanni samráðshóps
um utanríkisviðskipti/utanríkistengsl
og tollamál, þar sem athugasemdum
við drög að samningsafstöðu er
svarað, kemur fram að í drögum
að samningsafstöðu í umræddum
köflum sé lögð skýr áhersla á mikil-
vægi tollverndar í íslenskri landbún-
aðarstefnu.
Bent er á að í samningsafstöðu
Íslands í 11. kafla, sem fjallar um
landbúnaðarmál, sé gerður fyrirvari
sem tengi viðræður um þann kafla
við viðræður um utanríkisviðskipti
og tollamál. Með því áskilji Ísland
sér rétt til að taka upp tollverndarmál
í landbúnaði áður en viðræður um
utanríkisviðskipti og tollamál verði
til lykta leidd.
Af svarinu að dæma má því ætla
að samninganefnd Íslands gagnvart
ESB ætli sér að fylgja varnarlínum
Bændasamtakanna í þessum efnum
og gera kröfu um að Ísland geti, ef
af aðild verður, eftir sem áður lagt
tolla á innfluttar búvörur.
Tollaumhverfi og
landbúnaðarstefna
Í bæklingi Bændasamtakanna er,
auk tollaumhverfis, fjallað um land-
búnaðarstefnu stjórnvalda og dregin
upp mynd af þeim alþjóðasamn-
ingum sem Ísland er aðili að hvað
varðar viðskipti með landbúnaðar-
vörur. Einkum er þar horft til ESB
og Alþjóða viðskiptastofnunarinnar,
WTO.
Afnám tolla myndi ryðja
innlendri framleiðslu út
Í bæklingnum er það rakið að ef af
afnámi tolla á búvörur yrði myndi
fjársterkum aðilum reynast auðvelt
að ryðja innlendri framleiðslu af
markaði í ýmsum vöruflokkum.
Fyrst myndi verða vart við slíka
samkeppni í vöruflokkum þar sem
afurðir hafa stuttan framleiðslutíma,
hátt hlutfall breytilegs kostnaðar við
framleiðslu og gott geymsluþol. Þar
má nefna egg, osta, kartöflur og
ýmsar garðyrkjuafurðir. Fleiri vöru-
flokkar myndu svo fylgja í kjölfarið.
Sú innlenda framleiðsla sem
myndi standa eftir yrði takmörkuð
og mjög erfitt yrði að halda úti stoð-
þjónustu fyrir landbúnaðinn undir
þeim kringumstæðum. Þá myndi
reynast erfitt að reka ýmsar afurða-
stöðvar vegna þess hversu veikar
greinar stæðu að þeim.
Krafist heimildar til
álagningar tolla
Bændasamtökin hafa lagt áherslu á
það í varnarlínum þeim er þau hafa
sett fram vegna aðildarumsóknar-
innar að í samningum við ESB
verði sú krafa gerð að áfram verði
heimild til að leggja tolla á búvörur
frá löndum ESB.
Nú er unnið að drögum að
samningsafstöðu í köflum 29 og
30 í löggjöf ESB í aðildarviðræð-
unum, en þeir kaflar fjalla um utan-
ríkisviðskipti/utanríkistengsl og
um tollamál. Bændasamtökin hafa
gert athugasemdir við þau drög sem
liggja fyrir, m.a. hvað varðar tolla.
Meðal annars er bent á að skýra
fyrirvara skorti varðandi sjálfstæðar
heimildir Íslands í tollamálum land-
búnaðarins. Samtökin krefjast þess
að í samningaviðræðunum verði
krafist heimildar fyrir Ísland til að
leggja tolla á allar innfluttar búvörur
frá ESB og frá þriðju ríkjum.
Fimmtudagurinn 14. júní er
alþjóðlegur prjónadagur og af
því tilefni ætlar prjónakonan
Hafdís Bára Steinarsdóttir frá
Stokkseyri að halda daginn
hátíðlegan á Selfossi.
„Mig langar að fá konur til að
hittast og prjóna saman og þannig
deila áhugamáli sínu. Ég hef stað-
ið fyrir prjónakaffi á Stokkseyri
á fimmtudagskvöldum ásamt
vinkonu minni. Þar hefur verið
fín mæting, um 15 konur sem
koma reglulega og mikill áhugi
er fyrir prjónaskapnum. Sjálf er
ég mikil áhugamanneskja um að
prjóna og búin að fara á nokkur
námskeið. Ég er búin að fá for-
svarsmenn prjónablaðsins Lopa
og Bands til að koma á alþjóðlega
prjónadaginn og vonast einnig
til að fá kynningu frá Ístex og
prjónablaðinu Tinnu,“ segir
Hafdís Bára en haldið verður
upp á daginn í Bæjargarðinum
á Selfossi við ráðhúsið. /ehg
Heldur alþjóðlegan prjónadag á Selfossi
Fréttir
Tollvernd í landbúnaði verður tekin
upp í samningaviðræðum við ESB
- Samkvæmt bréfi formanns samráðshóps um utanríkisviðskipti/utanríkistengsl og tollamál
Fyrirhugað er að halda þrjú
námskeið á þremur stöðum
um miðjan júní, Stóra Ármóti,
Hvanneyri og á Akureyri.
Námskeiðin hefjast kl. 10.00
fyrir hádegi og þeim lýkur kl.
18.00.
Skráning:
Þeir sem óska eftir að sækja
fyrirhuguð námskeið eru vin-
samlegast beðnir að skrá þátt-
töku til Bændasamtaka Íslands
fyrir 1. júní. Unnt er að skrá
þátttöku í síma 563 0300 eða
með tölvupósti til bella@bondi.
is
Bændasamtök Íslands.
Námskeið:
Gæðastýring í
sauðfjárrækt
Sérgreinadýralækni Matvæla-
stofnunar (MAST) blöskrar sá
mikli fjöldi dýraverndarmála sem
upp hefur komið í vetur og segist
ekki hafa vitað verra ástand frá því
hann tók við stöðunni árið 2009. Þá
sé mikið áhyggjuefni hversu seint
mál berist inn á borð stofnunar-
innar en oft sé komið í algjört óefni
þegar tilkynnt sé um slæma með-
ferð dýra. Hann leggur áherslu á
að það sé skylda allra sem viti af
brotum af þessu tagi að láta þar til
bær yfirvöld vita.
Í lok aprílmánaðar var tæplega
50 kindum af tveimur bæjum á
Austurlandi lógað vegna vanfóðr-
unar. Áður hafði viðlíka fjölda verið
lógað á bæjunum af sömu ástæðu.
Þá kom upp slæmt mál á bæ á
Vesturlandi, auk fleiri mála sem ekki
hafa verið talin jafn alvarleg.
Kært í 22 málum á árunum 2007
til 2010
Í frétt sem birtist í Bændablaðinu í
febrúar á síðasta ári var greint frá
því að MAST hefði á árabilinu 2007
til og með 2010 lagt fram 22 kærur
vegna brota á dýraverndarlögum,
lögum um búfjárhald og aðbúnaðar-
reglugerðum. Miklum mun fleiri
mál hafa hins vegar komið upp á
umræddu tímabili. Meðal annars er
tekið dæmi um að á árinu 2009 hafi
verið lagðar fram tvær kærur, en þau
dýraverndarmál sem hafi komið til
kasta héraðsdýralækna sama ár hafi
að minnsta kosti verið 72 talsins.
Í ársskýrslu MAST fyrir árið
2011, sem nýlega er komin út, er til-
tekið að 26 mál er varða dýravelferð
hafi komið upp hjá héraðsdýralækn-
um á síðasta ári. Er listinn þó ekki
tæmandi, enda er málafjöldinn það
ekki hjá sumum embættunum. Til
að mynda er tekið svo til orða þegar
farið er yfir málin í Suðurumdæmi:
„Nokkur afskipti voru höfð vegna
útigangs búsmala, einkum hrossa.“
Þá eru ótalin þau mál sem komu
upp varðandi aðbúnað gæludýra í
umdæmum héraðsdýralæknanna.
„Ótrúlegt ástand“
Þorsteinn Ólafsson sérgreinadýra-
læknir MAST, sem hefur umsjón
með heilbrigði, velferð og aðbúnaði
nautgripa, sauðfjár og geita, segir að
sér blöskri þau horfóðrunarmál sem
hafi komið upp síðasta vetur.
„Þetta er bara ótrúlegt ástand.
Það hafa komið upp tvö ljót mál
á Austurlandi, mjög svæsið mál á
Vesturlandi og svo höfum við fengið
ábendingar um fleiri mál. Þar hefur
ekki verið um að ræða að nauðsyn-
legt hafi verið að skera fé en bændum
hefur verið veitt tiltal. Þetta á ekki
bara við um sauðfé, við höfum séð
grindhoraðar folaldsmerar sem eru
vanfóðraðar, aðbúnaður hrossa hefur
víða ekki verið í lagi og við höfum
jafnvel séð dæmi um þetta hjá naut-
gripum.“
Þorsteinn segir að erfitt árferði
síðasta sumar og minni eða lakari
hey séu ekki skýringin í þessum til-
fellum sem hafi komið inn á borð
Matvælastofnunar. „Það hafa verið
til nægjanleg hey á þessum stöðum
og þegar þau hafa verið tekin til
rannsóknar hefur það verið staðfest.
Væntanlega er skýringanna að leita í
öðrum þáttum, svo sem óreglu, þung-
lyndi eða einhvers konar verkkvíða
hjá fólki.“
Hugsanlega verið að fara betur
ofan í málin
Þorsteinn segir að síðasti vetur sé sá
versti í þessum efnum frá því hann
tók við sem dýralæknir sauðfjár-
sjúkdóma árið 2009. „Ein skýring
sem ég get látið mér detta í hug er að
eftir að dýralæknakerfinu var breytt
og héraðsdýralæknar fóru eingöngu
að sinna eftirlitshlutverki, þá hafi
þeir meiri tíma og betri tök á því að
sinna þessum málum og eftirfylgni
við þau. Ég vil meina að nú sé verið
að fara betur ofan í þessi mál, eftir
þessa breytingu.“
Skylda allra að tilkynna
Þorsteinn segir það mikið áhyggju-
efni að tilkynningar um illa meðferð
húsdýra berist seint til yfirvalda.
„Þrátt fyrir að fólk ætti að vita af
þessu, nágrannar, ættingjar eða aðrir,
þá eru þessi mál iðulega komin í
algjört óefni þegar við fáum tilkynn-
ingar um þau. Búfjáreftirlitsmenn
uppgötva þetta oft í vorskoðunum
en þá er staða mála oft orðin svo
slæm að of seint er að bæta ærnar
fyrir burð.
Þetta er samfélagslegt mein og
bændur sjálfir verða að standa vakt-
ina í þessum efnum. Við hjá stofnun-
inni gefum ekki upp nein nöfn ef
okkur berast tilkynningar um svona
mál. Það er skylda allra að tilkynna
svona til héraðsdýralækna eða til
Matvælastofnunar.“ /fr
Dýralækni blöskrar mikill
fjöldi dýraverndarmála
– Síðasti vetur sá versti í mörg ár og áhyggjuefni hversu seint mál eru tilkynnt til yfirvalda
Þorsteinn Ólafsson.
Hafdís Bára Steinarsdóttir.
Á dögunum var skýrsla gefin út
sem sýnir fram á að ekki er hag-
kvæmt að lýsa á kvöldin og yfir
nótt í vetrarræktun tómata –
þegar raforkukostnaður bænda
er lægri – samanborið við hefð-
bundinn lýsingartíma að degi til.
Í rannsókninni, sem skýrslan
lýsir, eru áhrif ferns konar lýsingar
könnuð á vöxt, uppskeru og gæði
vetrarræktaðra tómata. Afar lítið
náttúrulegt ljós á veturna er einn
helsti vandinn við vetrarræktun í
gróðurhúsum á Íslandi og því þörf
á tilbúinni lýsingu.
Rannsóknin fór þannig fram að
tómatar voru ræktaðir undir svoköll-
uðum háþrýstum natríumlömpum
í fjórum klefum með mismunandi
meðferð í hverjum klefa. Könnuð
voru áhrif þess að lýsa yfir nótt, auka
lýsingu eftir því sem leið á vaxtartím-
ann, taka mið af birtustigi utanhúss
og svo var einn klefinn með þeirri
lýsingaraðferð sem tíðkast alla jafna.
Söluhæf uppskera af tómötum
reyndist um 15% minni af plöntum
sem fengu lýsingu á kvöldin og um
nætur miðað við hefðbundinn lýs-
ingartíma. Að nota minna ljós á fyrri
stigum ræktunarinnar – eftir útplönt-
un – leiddi til sambærilegrar upp-
skeru og með hefðbundinni lýsingu,
og sömuleiðis sú aðferð að draga úr
lýsingu í samræmi við sólargeislun.
Niðurstöður skýrslunnar leiða í
ljós að raforkukostnaður myndi lækka
lítillega með nætur- og kvöldlýsingu
og skila um 18% minni framlegð en
við hefðbundna lýsingu. En lýsing þar
sem tillit er tekið til fjölda klasa og
sólargeislun sparar um 6% og skilar
sá sparnaður um 9% meiri framlegð
miðað við hefðbundna lýsingu.
Það var Landbúnaðarháskóli
Íslands sem hafði umsjón með rann-
sókninni, sem var gerð í tilrauna-
gróðurhúsinu á Reykjum og unnin
í samvinnu við garðyrkjuráðunauta
Bændasamtaka Íslands, ylræktar-
bændur, Martens Trädgårdsstiftelse
og HAMK University of Applied
Sciences í Finnlandi.
Skýrslan er aðgengileg á slóðinni
www.lbhi.is/lisalib/getfile.aspx?ite-
mid=5457. /smh
Rannsóknarverkefni um
vetrarræktun tómata:
Lýsing á kvöldin
og yfir nótt
er óhagkvæm