Bændablaðið - 16.05.2012, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 2012 7
þessum þætti verða
birtar vísur Hjálmars
Freysteinssonar læknis
frá Akureyri, hverjar
hann flutti á hagyrðingakvöldi
Karlakórs Eyjafjarðar 4. apríl sl.
Birgir spyr hvað Hjálmar hafi til
dæmis eldað konu sinni á konu-
daginn. Sjálfur kveðst Birgir hafa
eldað Rósu sinni lambakótelettur
sl. 40 ár. Hjálmar forðast að upp-
lýsa neitt um eldhúsverk sín
þennan dag:
Fyrst kótelettur í tískunni tolldu
á tyllidögum um árabil,
og ennþá er Rósa ofar moldu
er ástæðulaust að breyta til.
Ein af spurningum Birgis gekk
efnislega út á nýafstaðinn megr-
unarkúr Jónínu Leósdóttur maka
forsætisráðherrans okkar. Í nýút-
kominni bók Jónínu er nokkuð
fjallað um þetta ferli. Því spyr
Birgir: Hvað finnst þér Hjálmar
um þetta efni?:
Átakanlega er soltin sú,
og svipurinn orðinn grettur.
Heimsækja‘ana þyrftir þú
með þínar kótelettur.
Birgir og Rósa eiga sér sumarhús
í Krossavík við Þistilfjörð. Dvelja
þar löngum yfir sumarið, en halda
heim er haustar. Einmitt sl. haust
gegndi Hjálmar heilsugæslu þar
austurfrá í afleysingum. Birgir
spyr því hvernig hafi gengið? :
Norðausturhornið ég heimsótti enn,
þeir haustdagar voru ei leiðigjarnir.
Þar sá ég eintóma sómamenn,
-sumargestirnir voru farnir.
Hjálmar tjáði sig eins og hinir hag-
yrðingarnir um hina miklu augn-
aðgerð sem Birgir var nýkominn
úr:
Að Birgir komist meir til manns
margur trúi ég voni,
því nú er annað auga hans
úr iðnaðarsílikoni.
Þegar svo Birgir spyr Hjálmar
hvað hann haldi að Petra,
kona Árna ,sé að bardúsa úti í
Vínarborg, svarar hann:
Petra fær að vera í Vín
í vellystingum daga og nætur,
meðan karlakórinn grætur.
Ákaft flytur söngverk sín
og suma daga þannig lætur,
að henni þyki Árni bara sætur.
Að endingu spyr Birgir út í kvik-
myndina um Bakka-Baldur:
Minna Ármann ætti að flakka
ekki er vafi á því.
Í fyrra elti hann Baldur frá Bakka
burt til Hawaii.
Hawaii er stórfínn staður
en stundum er svo heitt
að eiginlega enginn maður
ætti að klæðast neitt.
Í heila viku þeir horfðu bara
á háfætt meyja val,
sem var langtum léttklæddara
en líðst í Svarfaðardal.
Er Ármann beitt sig hafði hörðu
og hulið part af sér,
Hawaiidætur hrifnar störðu
á hestinn sem var ber.
Í sínum eigin svitamekki,
seinast fréttist að,
hrossið drapst- en Ármann ekki;
ergilegt var það.
Umsjón: Árni Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Í
Mikill fjöldi ungra og efnilegra
knapa tók þátt í sýningunni
Æskan og hesturinn sem fram
fór í Top Reiter reiðhöllinni á
Akureyri nýverið. Sýningin er
haldin árlega norðan heiða, til
skiptis á Akureyri og í Skagafirði.
Fjöldi barna og ungmenna
frá hestamannafélögum víða að
af Norðurlandi tók þátt í sýn-
ingunni. Börn og ungmenni úr
Létti á Akureyri, Þyt í Vestur-
Húnavatnssýslu, Hring á Dalvík,
Funa í Eyjafirði, Léttfeta, Stíganda
og Svaða í Skagafirði, Glæsi á
Siglufirði og Grana á Húsavík og
Þjálfa í Suður Þingeyjarsýslu tóku
þátt í sýningunni og var mikið í hana
lagt.
Teymt er undir yngstu þátttak-
endunum, enda eru þeir ekki háir í
loftinu, en elstu þátttakendurnir eru á
unglingsaldri, 16 til 17 ára. Fjölmörg
atriði voru á dagskránni, hvert öðru
skemmtilegra og var mikið í þau lagt,
vandað til búninga og
hestar voru skreyttir.
Andrea Margrét
Þorvaldsdóttir for-
maður hestamanna-
félagsins Léttis á
Akureyri segir að
börnin hafi gaman af
og þau leggi mikinn
metnað í sýningar-
atriðin. „Þau stóðu
sig mjög vel og þetta
var góð sýning. Þetta
verkefni, Æskan og
hesturinn snýst einmitt
um það að bjóða upp á
áhugavert og skemmti-
legt starf fyrir krakkana
og lofa þeim að njóta
sín,“ segir Andrea.
/MÞÞ
Sýningin Æskan og hesturinn í Top Reiter reiðhöllinni á Akureyri:
Mikill metnaður hjá unga fólkinu
Glæsileg ungmenni á sýningunni Æskan og hesturinn á Akureyri. Myndir/ Elfa Ágústsdóttir