Bændablaðið - 16.05.2012, Page 12
Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 201212
Fréttir
Gíslavaka í Húnaveri 9. júní
Í Svartárdalnum, sveitinni hans
Gísla Ólafssonar, verður efnt til
samkomu í Húnaveri laugardaginn
9. júní kl. 14. Þar verða ljóð hans
kveðin, sungin og lesin og Kristján
Eiríksson íslenskufræðingur hjá
Árnastofnun flytur erindi um
Gísla og verk hans. Kvenfélagið
selur kaffi gegn hóflegu gjaldi
og sama gildir um aðgangseyri.
Menningarsjóður Norðurlands
vestra styrkir samkomuna.
Gísli Ólafsson varð kunnur af
vísnagerð á unga aldri. Vísur hans
um lækinn og hlýjuna heima á
Eiríksstöðum urðu fljótt fleygar og
eru enn kveðnar á kvæðamannaþing-
um. Hann lýsti hlutskipti Kolfinnu
sem Hallfreður yfirgaf uns hann birt-
ist henni aftur í selinu á Laxárdalnum.
Skáldið Gísli reið einnig um nótt
upp Norðurárdal þar sem bærinn á
Kirkjubæ var hruninn og burtu allt og
við það ljóð samdi Pétur Sigurðsson
frá Geirmundarstöðum magnað lag.
Búskapur Grettis í Drangey og aftur-
ganga Jónasar í Gjánni fengu líka sín
ljóð.
Lækurinn, 3. og 5. vísa.
Bæ ég lítinn byggði þar
og blómum utan skreytti.
Yfir tún og engjarnar
oft ég læknum veitti.
Æskan hverfur, yndi dvín
allt er líkt og draumur.
Áfram líður ævin mín
eins og lækjarstraumur.
Höfundur G.Ó.
Gísli gaf út nokkrar ljóðabækur,
samdi og flutti skemmtiljóð á sam-
komum og fær mjög vandaða og
bjarta lýsingu hjá Hannesi Péturssyni
skáldi frá Sauðárkróki í nýrri minn-
ingabók hans, Jarðlag í tímanum.
Gísli stofnaði ungur fjölskyldu
en eftir nokkurra ára búskap heima
í Dölunum flutti hann út á Blönduós
og síðar norður á Sauðárkrók þar sem
hann bjó síðan.
Á Eyvindarstöðum í Blöndu-
dalshólasókn bjuggu Gísli Ólafsson
og Elísabet Pálmadóttir, eignuðust
þau 22 börn á árunum 1844-1871 og
urðu sum nafnkennd. Þrír bræður fóru
til Ameríku, Kristján kaupmaður á
Krókinn, Guðmundur varð húsmað-
ur á Skeggsstöðum, Sigríður bjó á
Æsustöðum, Ósk á Eyvindarstöðum
en elsti bróðirinn Ólafur var bóndi á
Eiríksstöðum og þar ólst upp Gísli
sonur hans og alnafni afa síns á
Eyvindarstöðum.
Gísli Ólafsson.
María Dís Ólafsdóttir er einungis
17 ára gömul og nemandi við
Verkmenntaskólann á Akureyri
en hefur gefið út sitt fyrsta prjóna-
blað, Ölduna, með 24 fjölbreyttum
uppskriftum. María Dís, sem
kemur frá bænum Fjöllum 1 í
Kelduhverfi, notar íslenska ull í
allar uppskriftirnar.
„Mér hefur alltaf fundist gaman
að búa til hluti og get eytt tímunum
saman í eitthvert föndur. Svo þegar
mig vantaði eitthvað að gera yfir
sjónvarpinu fann ég prjónana mína á
ný eftir nokkurra ára hlé, en ég lærði
að prjóna áður en ég fór í grunnskóla.
Fyrst var ég nú bara að drepa tímann
en svo þegar ég varð betri og betri
fór ég að sjá meiri tækifæri. Eftir tuð
í ættingjum skráði ég mig í hand-
verksfélag, þá var ég 15 ára gömul.
Þar hef ég selt vörurnar mínar í tvö
sumur og stefni á það þriðja. Félagið
heitir Heimöx og er með lítið hús
í Ásbyrgi. Í Heimöx eru á milli 30
og 40 félagar og skiptumst við á að
afgreiða,“ segir María Dís.
Nýjar aðferðir við prjónaskapinn
Fyrstu uppskriftina gerði María Dís
þegar íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta var að keppa á Evrópumótinu
í byrjun árs 2010.
„Þá var ég rétt að verða 15 ára
og afi minn nýbúinn að eiga afmæli.
Afi var mjög spenntur fyrir leikj-
unum og mig langaði að gefa honum
eitthvað til að sýna stuðning sinn
við Ísland. Þá byrjaði ég að hanna
Íslandshúfurnar. Hann var mjög
ánægður með húfuna sína og þorir
varla að nota hana ef einhver skyldi
stela henni,“ útskýrir María Dís og
segir jafnframt:
„Fleiri uppskriftir bættust hægt
og rólega í hópinn en haustið 2011
langaði mig að fá eina af þeim birta.
Ég fékk ekki góðar móttökur við því.
Ekki var séns á að selja eina og eina
uppskrift í prjónablöð. En mér fannst
ég hafa eitthvað gott í höndunum og
vildi nýta það. Þá sagði ég við sjálfa
mig: „Ég geri þetta þá bara sjálf.“
Eftir það fór allur minn frítími í að
prjóna og hanna uppskriftir, setja
þær upp í tölvunni og taka myndir í
blaðið. Það liðu sex mánuðir frá því
ég fékk hugmyndina að því að gera
mitt eigið blað þar til það var tilbúið
í prentun. Oft sat ég í 10 klukkutíma
á dag prjónandi fyrir framan sjón-
varpið, en þess á milli fékk ég vini
mína og ættingja til að sitja fyrir í
prjónuðum fötum. Engin uppskrift
var fullkláruð þegar ég fékk þessa
hugmynd en nú eru þær orðnar 24.
Allar uppskriftirnar eru úr íslenskri
ull og nota ég flísefni með sumum
þeirra. Ég nota mikið nýjar aðferðir
sem herbergisfélagi minn kenndi
mér. Það er ekki víst að allir kannist
við þessar aðferðir en leiðbeiningar
um þær fylgja í blaðinu.“ /ehg
Sautján ára Verkmenntaskólanemi á Akureyri í blaðaútgáfu:
Fyrsta prjónablaðið orðið að veruleika
Hér má sjá Íslandshúfurnar góðu, sem María Dís gerði upprunalega fyrir
afa sinn fyrir tveimur árum.
Sýnishorn af prjónaðri pokapeysu
fyrir ungbarn.
Forsíðan á fyrsta tölublaiði Öld-
unnar.
María Dís Ólafsdóttir er 17 ára gömul og gaf á dögunum út sitt fyrsta prjónablað með 24 uppskriftum.
Í fjárhúsinu hjá Þorsteini Loga
Einarssyni í Egilsstaðakoti í
Flóahreppi að þar fæddist þrífætt
lamb og vottaði ekki fyrir fjórða
fætinum.
Þessi vansköpun virðist þó ekki
hafa áhrif á lambið að öðru leyti
sem þrífst mjög vel, fær mjólk frá
móðurinni og leikur sér í fjárhúsinu.
Þorsteinn Logi er með um 330 fjár
og er rúmlega helmingurinn borinn
hjá honum í nýju og glæsilegu ferða-
þjónustufjárhúsi. Þar tekur hann á
móti hópum sem vilja kynnast lífinu
í sveitinni og þeim undrum sem þar
gerast. Heimasíða búsins er www.
egilsstadakot.is og hægt er að hafa
samband við Þorstein í síma 867-
4104 eða senda tölvupóst á thor-
steinn82@simnet.is. /MHH
Þrífætt lamb í
Egilsstaðakoti