Bændablaðið - 16.05.2012, Side 18
18 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 2012
Rannsóknir á íslenskum garð- og landslags-
plöntum og uppbygging Yndisgarða
Stöðugt vex framboð á ýmiss
konar tegundum og yrkjum garð-
plantna sem landsmenn eiga kost
á að rækta í görðum sínum. Mikið
af því sem í boði er er innfluttar
plöntur, sem margar hverjar eiga
litla framtíð fyrir sér því þær hafa
ekki það harðgerði og aðlögunar-
hæfni sem þarf til að vaxa og
dafna í okkar rysjótta veðurfari.
Því getur töluverð áhætta fylgt því
að kaupa plöntur af tegundum og
yrkjum sem lítil eða engin reynsla
er af í ræktun hérlendis.
Verkefnið Yndisgróður, sem rekið
er á vegum Landbúnaðarháskóla
Íslands, hefur síðan 2008 miðað að
því að rannsaka garð- og landslags-
plöntur sem reynst hafa best í ræktun
hér á landi og henta til notkunar í
þéttbýli sem og dreifbýli, við sjávar-
síðuna og inn til landsins.
Ótal tegundir og yrki hafa verið
tekin til ræktunar á þeim ríflega
hundrað árum sem liðin eru síðan
að Schierbeck landlæknir og Einar
Helgason garðyrkjuráðunautur hófu
tilraunir í garðyrkju á ofanverðri
nítjándu öld. Ýmislegt hefur verið
reynt, margt hefur lifað og dafnað en
sýnt sig endast illa eða verið leyst af
hólmi af nýjum, nytsamlegri yrkjum
sem eru bæði fallegri, harðgerðari
og nytsamari fyrir það hlutverk sem
þeim er ætlað í uppbyggingu garða
eða skjólbelta, svo eitthvað sé nefnt.
Yndisgarðar
Til að komast að því hvaða yrki eru
vænlegust til ræktunar með tilliti
til harðgerði, fegurðar og nytsemi
hefur Yndisgróður byggt upp söfn á
sex stöðum um landið; á Blönduósi,
í Sandgerði, Fossvogi í Kópavogi,
Laugardal í Reykjavík, á Hvanneyri
og Reykjum í Ölfusi. Veðurskilyrði
eru misjöfn á milli þessara staða og
gefur það okkur mikilvæga reynslu.
Yndisgörðum er ætlað þríþætt
hlutverk. Í fyrsta lagi að varðveita
úrval íslenskra garð- og lands-
lagsplantna, í öðru lagi að rann-
saka harðgerði og gæði plantna
og í þriðja lagi að vera sýningar-
reitir fyrir fagfólk og almenning.
Garðarnir hafa verið unnir í góðri
samvinnu við viðkomandi sveitar-
félög, sem leggja til land, vinnu við
gerð garðanna og umhirðu þeirra.
Jafnframt hafa garðplöntustöðvar í
Félagi Garðplöntuframleiðenda og
Reykjavíkurborg lagt til allar plöntur
sem gróðursettar hafa verið.
Nú eru liðin 4 ár frá því að
Yndisgróður gróðursetti fyrstu plönt-
urnar, strax eru komnar vísbendingar
um hvaða plöntur standa sig betur
en aðrar á hverjum stað og því til-
valið fyrir fólk að skoða garðana og
sjá hvað það getur ræktað í sínum
garði. Hægt er að nálgast lista og
uppdrætti af söfnunum á heimasíðu
Yndisgróðurs, http://yndisgrodur.
lbhi.is/, en auk þess eru plönturnar
merktar í görðunum. Yndisgarðar eru
öllum opnir og við hönnun þeirra
var leitast við að gera notalega garða
með fjölbreyttum og fallegum gróðri,
þar sem fólk getur skoðað gróðurinn
og notið útiveru.
Stærsta safn Yndisgróðurs
Yndisgarðurinn á Reykjum í Ölfusi er
stærsta safn Yndisgróðurs og gegnir
því mikilvæga hlutverki að varðveita
fjölda gamalreyndra íslenskra yrkja
sem því miður eru mörg hver að falla
úr ræktun. Gróðursetning á Reykjum
hófst sumarið 2008. Garðurinn á
Reykjum sýnir hvað getur þrifist
vel í efri byggðum á Suðurlandi og í
nýjum og ógrónum hverfum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Yndisgarðurinn á Blönduósi er
staðsettur við suðurenda íþrótta-
svæðis bæjarbúa og hófst vinna við
garðinn sumarið 2009. Garðurinn
hefur það hlutverk að sýna hvaða
plöntur henta vel til notkunar á
kaldari svæðum norðanlands og
jafnvel austanlands. Yndisgarðurinn
á Blönduósi hefur stöðugt komið á
óvart því plönturnar þar hafa flestar
komið vel til og er garðurinn mjög
fallegur.
Yndisgarðurinn í Sandgerði er
í námunda við framtíðar útivistar-
svæði bæjarbúa, ,,Gryfjuna”, sem er
staðsett norðan og ofan við bæinn.
Yndisgarðurinn getur því orðið
skemmtileg og áhugaverð viðbót
við útivistarsvæðið. Byrjað var að
gróðursetja í garðinn sumarið 2009.
Aðstæður í Sandgerði eru mjög erf-
iðar bæði hvað varðar jarðveg, veð-
urfar og seltu. Garðurinn í Sandgerði
gefur til kynna hvaða plöntur geta
þrifist við ströndina sunnan- og
vestanlands.
Yndisgarðurinn í Fossvogi er
staðsettur á vel grónu svæði vestan
við Gróðrarstöðina Mörk, þar sem
veðurskilyrði eru heldur betri en í
flestum öðrum Yndisgörðum. Þar
hafa m.a. verið gróðursettar við-
kvæmari tegundir og má ætla að
plöntur í Fossvogi gefi til kynna
hvað þrífst vel í grónari hverfum á
höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdir
við garðinn hófust í september 2010.
Þann 21. júlí 2011 var
Rósagarðurinn í Laugardal vígður
formlega. Jóhann Pálsson, fyrrum
garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar
og rósaræktandi, fagnaði 80 ára
afmæli sínu þennan sama dag. Því
gafst gott tilefni til þess að heiðra
Jóhann fyrir einstakt ræktunarstarf
í gegnum tíðina. Í Rósagarðinum
eru yfir 140 yrki hinna ýmsu rósa,
sem gróðursettar hafa verið á síð-
ustu þremur árum. Garðurinn er
staðsettur við Sunnuveg norðan
við Grasagarðinn. Rósagarðurinn
í Laugardal er samvinnuverkefni
Yndisgróðurs, Reykjavíkurborgar og
Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands.
Yndisgarðurinn á Hvanneyri
er nýjasti garðurinn, byrjað var
að gróðursetja í hann síðastliðið
sumar og mun því áfram haldið
nú í vor. Garðurinn er fyrst og
fremst skólagarður fyrir nemendur
Landbúnaðarháskóla Íslands en er til
sýnis fyrir allan almenning, rétt eins
og aðrir Yndisgarðar. Á Hvanneyri er
einnig ætlunin að koma upp trjásafni.
Plöntuleit
Í plöntuleit á heimasíðu verkefnis-
ins er hægt að leita eftir tegundum
og yrkjum plantna af lista sem
Yndisgróður mælir með til ræktunar
hér á landi. Þarna má fá gagnlegar
upplýsingar um t.d. útlit, notkun, þol
og kröfur plantna. Þar að auki eru
myndir af öllum plöntum.
Yndisgróður hvetur fólk og
opinbera aðila til að kaupa plöntur
sem valdar hafa verið fyrir íslenskar
aðstæður til notkunar í einkagarðinn,
opin svæði í þéttbýli, útivistarsvæði
og í skjólbelti. Ávinningurinn er betri
árangur í ræktun, minni umhirðu-
kostnaður, minni hætta á sjúkdómum
og fallegri og harðgerari plöntur.
Samson Bjarnar Harðarson og
Anna Sif Ingimarsdóttir
Landbúnaðarháskóla Íslands
samantekt um japanskvisti í safninu.
Ígulrós eða ‚Skotta‘ er harðgert og blómsælt íslenskt rósayrki. Hér sést hún
30 harðger rósayrki.
Hélurifs og kirtilrifs í garðinum á Reykjum, frábærir runnar til að þekja beð
og sem undirgróður í trjábeltum.
Skrautreynir eða ‚Glæsir‘ er smávax-
ið, salt- og vindþolið tré sem þrífst
vel í öllum görðum Yndisgróðurs, hér
í garðinum á Blönduósi.
Gultoppur eða ‚Kristmann‘ er stórvaxinn, gulblómstrandi runni sem sómir
sér jafnt í görðum og skjólbeltum, hér í garðinum í Sandgerði þarf hann að
þola saltrok.