Bændablaðið - 16.05.2012, Page 25
25Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 2012
Gamanleikurinn „Í gegnum tíð-
ina“ hefur verið sýndur við góðar
undirtekir hjá Leikdeild Eflingar
í Reykjadal undanfarnar vikur,
en sýningum lauk nú í vikunni
og höfðu þá vel á annað þúsund
manns séð leikritið. Verkið er fjöl-
skyldusaga með gamansömu ívafi
sem spannar tímbilið frá 1950-
1980 og inn í söguþráðinn fléttast
þekkt dægurlög frá þessu tímabili.
Höfundur verksins er Hörður
Þór Benónýsson, sem fléttar bráð-
skemmtilegum texta saman við
17 vinsæl lög frá þessum tíma,
en tónlistarstjóri í sýningunni er
Pétur Ingólfsson tónlistarkennari á
Laugum. Alls tóku 34 leikarar þátt
í sýningunni, þar af þriggja manna
hljómsveit og þá voru um 20 manns
við ýmis störf að tjaldabaki.
Nemendur setja svip sinn
á sýningar
Nemendur við Framhaldsskólann
á Laugum hafa undanfarin ár sett
sterkan svip á sýningar Leikdeildar
Eflingar, en þeir hafa átt þess kost
að taka þátt í leiklistarstarfinu og fá
námseiningar fyrir, enda mikill og
góður skóli að taka þátt í leiklistar-
starfi. Eldri og reyndari leikarar eru
svo til taks að leiðbeina þeim yngri,
hvetja og hrósa.
Ákveðnar fjölskyldur í Reykjadal
hafa í nokkra ættliði sett mark sitt á
starfsemi félagsins, úr þeirra röðum
hafa komið leikstjórar, leikarar, höf-
undar, söngvarar og dansarar sem
glatt hafa heimamenn og gesti þeirra
í áraraðir. Í seinni tíð hafa svo konur
úr Kvenfélagi Reykdæla selt kaffi og
vöfflur með rjóma fyrir sýningar og í
hléi og hefur það komið sér vel fyrir
fjáröflun þess.
Aðalbjörg Pálsdóttir í Vallakoti
hefur starfað með Leikdeild ung-
mennafélagsins Eflingar í hálfa
öld og segir að saga leiklistar í
Reykjadal í Þingeyjarsýslu eigi
sér langa sögu, en félagið sýnir
jafnan í Breiðumýri, félagsheimili
Reykdælinga. Þar var fyrst sett upp
eiginlegt leiksvið árið 1935, þegar
byggt var við húsið. Framtakið
hleypti nýju blóði í ungmennafélaga,
sem árið eftir settu upp gamanleik-
inn Frænku Charleys eftir Brandon
Thomas. Fleiri létu til sín taka á
leiksviðinu, settar voru upp sýningar
hjá Héraðsskólanum á Laugum,
Karlakór Reykdæla, Lestrarfélaginu,
Kirkjukór Einarsstaðasóknar og
Kvenfélaginu. Leiklistarstarf skaut
því snemma rótum í frjósaman jarð-
veg í Reykjadal. /MÞÞ
Merkileg og löng saga leiklistar í Reykjadal:
Leiklist skaut snemma rótum
í frjóan jarðveg
Þáttaskil urðu í starfsemi
Leikdeildar Eflingar þegar
Ingibjörg Steinsdóttir var
ráðin til starfa og setti upp
þrjá einþáttunga árið 1952;
Á Bessastöðum skulda
ég ekki neitt eftir Pál H.
Jónsson, Kvennabúrið og
Vekjaraklukkuna. Árið
eftir setti hún upp verkið
Landabrugg og ást. Frá
þeim tíma hefur leikdeildin
sett upp leikrit nánast árlega.
Hér verða nokkur nefnd:
Aðalbjörg Pálsdóttir leik-
stýrði Aumingja Hönnu árið
1960, Ingunn Jensdóttir leik-
stýrði verki Jökuls Jakobssonar,
Kertalogi árið 1976, Deleríum
Búbónis eftir Jónas og Jón
Múla var sýnt í leikstjórn Maríu
Sigurðardóttur árið 1993,
Fiðlarinn á þakinu var sýndur í
leikstjórn Arnórs Benónýssonar,
Reykdælings sem tekið hefur
saman og leikstýrt fjölda verka
fyrir félagið.
Tvívegis hafa verkefni
Leikdeildar Eflingar verið valin
til sýninga i Þjóðleikhúsinu sem
besta áhugaleiksýningin, fyrst
Síldin kemur og Síldin fer eftir
systurnar Iðunni og Kristínu
Steinsdætur sem var sett upp
árið 2001 og árið 2004 var það
frumsamið verk eftir heima-
manninn Hörð Þór Benónýsson
og Jóhannes Sigurjónsson,
Húsvíking. Sú sýning gekk mjög
vel, var sýnd 35 sinnum og hlaut
góðar viðtökur.
Þáttaskil 1952
Úr gamanleiknum „Í gegnum tíðina“. Hér eru síldarstúlkur í síld á Sigló klárar
í slaginn. Myndir / Aðalheiður Kjartansdóttir.
Bítlastrákar (hljómsveitin Hljómar) og hrifnar bítlagellur.
Guðríður (sú elsta) er kona Gísla bónda í Gröf, þarna er hún að fara í heyskap
með vinnukonunum.
Triowrap, 75cm breitt, 1.500m langt kr. 11.650
ATH. Ofangreind verð eru án