Bændablaðið - 16.05.2012, Qupperneq 31
31Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 2012
Vélabásinn
Can-Am Outlander T3 Max 650 dráttarvél:
Hvenær er fjórhjól fjórhjól og
hvenær er fjórhjól dráttarvél?
Í síðustu viku kom til landsins fjór-
hjól af gerðinni Can-Am, skráð
sem dráttarvél. Fyrir vikið er það
á mun lægra verði en hefðbundin
fjórhjól og er ekki skoðunarskylt
eins og venjuleg ökutæki. Því má
16 ára unglingur með dráttarvél-
arökuréttindi keyra það
Fjórhjólið/dráttarvélin heitir Can-
Am Outlander T3 Max 650 og er með
649,6 rúmsentimetra vél sem á að
skila 61 hestafli (45kW). Mér bauðst
að prófa hjólið hjá Ellingsen og þar
sem hjólið er skráð sem traktor og
kemst ekki nema upp í 40 km hraða
setti ég það á kerru, ók upp undir
Vífilfell og prófaði í gömlu moto-
crossbrautinni sem þar er.
Hentar ekki sem leiktæki
Dráttarvél er ekki skemmtilegasta
leikfang til leiks í motocrossbraut,
en ég náði að skemmta mér ágæt-
lega í þessum þrem hringjum sem
ég ók í brautinni (úthaldið leyfði
ekki meira). Miðað við önnur fjór-
hjól sem ég hef keyrt er fjöðrunin
mýkri á þeim venjulegu, en þar sem
þetta fjórhjól er aðallega ætlað til
vinnu er svo sem eðlilegt að það sé
ekki það hentugasta í svona braut.
Hámarkshraði er eins og áður segir
aðeins 40 km á klukkustund og sé
reynt að fara hraðar kokar mótorinn
og vart verður við gangtruflanir. Þær
hætta strax og komið er aftur niður
í 40.
Upplagt í girðingarvinnu
Gott spil er framan á hjólinu sem
bæði er hægt að stjórna með takka
á stýrinu og einnig handstýringu
með tveggja metra kapli, sé maður
að vinna með spilið við hliðina
á hjólinu – upplagt til að strekkja
girðingarstrengi í girðingarvinnu.
Geymsluhólf eru tvö undir böggla-
bera að aftan og er annað þeirra
vatnshelt. Bögglaberar eru bæði að
aftan og framan og má setja 45 kg á
þann fremri og 90 kg á hinn aftari.
Mikil dráttargeta
Sökum mikils burðarþols að aftan
er hægt að panta pall á hjólið/
traktorinn sem aukabúnað. Can-
Am getur dregið 500 kg kerru án
bremsubúnaðar, en 750 kg kerru
með bremsubúnaði.
Hjólið kemur með hlífum fyrir
framan hendurnar, sem er mjög gott
til að verja mann fyrir kulda, bleytu
og grjótkasti. Í stýrinu er takki til að
stilla stýristjakkinn (3 stillingar), en
ég áttaði mig ekki á því fyrr en eftir
prufuaksturinn þegar starfsmenn
Ellingsen sögðu mér frá þessum
munaði. Það þýddi að sjálfsögðu
einn aukahring í nágrenni Ellingsen
og ég vandaði mig sérstaklega við að
keyra á töluverðri ferð á kantstein-
ana. Þessi búnaður er klár snilld,
engin högg upp í hendurnar og stýrið
fislétt. Hefði ég áttað mig á þessum
búnaði í motocrossbrautinni hefði
úthaldið sennilega gefið mér þrjá
aukahringi í brautinni.
Ósáttur við sæti og hraðatakmörk
en verðið er hagstætt
Tvennt var ég ósáttur við. Annars
vegar sætið, en ég tel betra að
vera með venjulegt sæti eins og
er á flestum fjórhjólum; þó svo
að tækið sé skráð sem traktor er
engin skylda að vera með traktors-
sæti. Hámarkshraðinn mætti vera
meiri en 40 km. (Hugsanlega hægt
að auka hann eitthvað með því að
stækka dekkin um þrjú númer, nægt
er plássið, en ekki segja nokkrum
manni frá því.) Hafa ber þó í huga
að þetta tæki er nú einu sinni drátt-
arvél og kostar um 700.000 krónum
minna en sambærilegt fjórhjól á fjór-
hjólatollum. Dráttarvélin Can-Am
Outlander T3 MAX 650 EFI kostar
2.490.000 krónur, en sambærilegt
fjórhjól frá Can-am á fjórhjólagjöld-
um er á bilinu 3.100.000-3.200.000
krónur.
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Ný bætiefni fyrir eldsneyti, PD-5,
voru í fyrsta sinn kynnt með
formlegum hætti utan Bretlands,
á fréttamannafundi sem Kemi
ehf. boðaði til á Hilton Reykjavík
Nordica 3. maí sl. Er efnið sagt
byltingarkennt og ólíkt öðrum
bætiefnum. Það byggi ekki á olíu-
grunni eins og þúsundir annarra
eldsneytisbætiefna sem fyrir eru á
markaðnum, heldur sé uppistaðan
vatn, ensím og örverur.
Um er að ræða þrjár mismunandi
gerðir af PD-5 en þessi umhverfis-
vænu bætiefni eru sögð draga veru-
lega úr útblástursmengun og jafn-
framt úr notkun eldsneytis. Prófanir
sem gerðar hafa verið hér á landi
staðfesta 6-13% eldsneytissparnað.
Efnið er nú komið í sölu á Íslandi og
er m.a. verið að gera tilraunir með
PD-5 á dráttarvélar.
Umhverfisvænt og dregur úr
eyðslu
„Reynslan sem fengist hefur á Íslandi
eykur okkur bjartsýni á að PD-5 verði
fyrr en seinna jafn sjálfsagt og elds-
neyti á allar vélar og tæki sem brenna
jarðefnaeldsneyti. Sparnaðurinn er
mikill en minni mengun er enn mikil-
vægari,“ segir Jón Viðar Óskarsson,
framkvæmdastjóri Kemi ehf. Hann
lýsti á fundinum þeim fjölda tilrauna
sem Kemi hafi látið gera hérlendis
áður en ákveðið var að semja við
Fuel-Tec um að taka PD-5 bætiefnið
í sölu. Fyrirfram hafi menn verið
fullir efasemda í ljósi fjölda vafa-
samra bætiefna sem hafa komið fram
á sjónarsviðið á liðnum áratugum.
Mjög nákvæm úttekt hafi því verið
gerð á vélum varðandi eyðslu og
annað áður en tilraunir hófust með
efnið.
20 millilítrar í 40 lítra tank
Hlutfall íblöndunarefnis í eldsneyti
er mjög lágt eða 0,05%. Á venjuleg-
an fólksbíl (bensín eða dísil) með 40
lítra tank er aðeins ráðlagt að blanda
20 millilítrum af PD-5. Efnið fæst
í 200 millilítra umbúðum og eins
í 5 lítra umbúðum. Kostnaður við
meðhöndlun á hverjum lítra af elds-
neyti með PD-5 er frá 6,5-7 krónum
á lítra með virðisaukaskatti. Segir
Jón Viðar að á móti sparist, miðað
við eldsneytisverð í dag, um 20-30
krónur á hvern lítra.
Hrifinn af fagmennsku í
Véltækniskólanum
Egill Guðmundsson, skólastjóri
Véltækniskóla Íslands, staðfesti í
samtali við Bændablaðið að nem-
endur skólans hafi gert tilraunir
með áhrif bruna á vélar sem keyrðar
voru á dísilolíu blandaðri þessu efni.
Niðurstöður úr þeim tilraunum hafi
verið verið mjög jákvæðar.
Aaron McVitty, framkvæmda-
stjóri tæknisviðs Fuel-Tec, lýsti
á kynningunni í fyrri viku yfir
mikilli hrifningu sinni af þætti
Véltækniskólans í þessum tilraunum.
Sagði hann niðurstöður allra tilrauna
hérlendis og erlendis sýna svipaðar
niðurstöður. Íblöndun PD-5 yki skil-
virkni eldsneytis um allt að 21%, þó
aðeins mismunandi eftir vélagerðum.
Bruni yrði hreinni, mengun minni og
sót hyrfi úr vélum.
Dregur úr losun
gróðurhúsalofttegunda
Karl Devlin, framkvæmdastjóri
Fuel-Tec Ltd., segist binda miklar
vonir við árangur af notkun PD-5 á
Íslandi. „Við teljum að með bætiefn-
unum megi draga verulega úr losun
gróðurhúsalofttegunda við fiskveiðar
og -vinnslu, flutningaþjónustu og
hvarvetna á Íslandi þar sem notuð
eru tæki knúin jarðefnaeldsneyti.“
6% sparnaður, segir útgerðarstjóri
hjá Þorbirni
Andrés Guðmundsson, útgerðar-
stjóri hjá Þorbirni hf. í Grindavík,
er ekki í nokkrum vafa um ágæti
PD-5 bætiefnisins, sem prófað hefur
verið á Wickman-vél í línubátnum
Ágústi GK 95. „Olíusparnaður hjá
okkur hefur verið 6% með PD-5 og
sótvandamál eru úr sögunni. Miðað
við ársnotkun er þetta sparnaður upp
á 2-3 milljónir króna. Við vonumst
hins vegar eftir enn stærri tölum í
sparnaði í viðhaldi því bætiefnið
hreinsar óhreinindi úr olíunni, sem
leiðir til tærari og betri bruna.“
Fleiri dæmi um sparnað
Tilraunir með PD-5 í fiskimjölsverk-
smiðju Ísfélagsins í Vestmannaeyjum
benda til þess að með notkun þess
hafi náðst umtalsverður olíusparn-
aður. Fyrirtækið hefur ákveðið að
nota PD-5 bætiefnið áfram.
Tilraunir Malbikunarstöðvarinnar
Höfða á „payloader“-gröfu sýndu 8%
sparnað í eldsneytisnotkun tækisins
með notkun PD-5.
Tilraunir leigubílstjóra í borginni
hafa sýnt 9% minni notkun eldsneytis
á ekinn kílómetra með notkun PD-5.
Tilraunir verktaka með beltagröfu
og jarðýtu sýna 13% sparnað elds-
neytis á hvort tæki með notkun PD-5.
Fuel-Tec Ltd. stofnað 2010
Fuel-Tec var stofnað árið 2010 á
Norður-Írlandi til að annast fram-
leiðslu og dreifingu á umhverfis-
vænum bætiefnum fyrir jarðefna-
eldsneyti, PD-5. Bætiefnin draga úr
eldsneytisnotkun og minnka verulega
útblástur gróðurhúsalofttegunda.
Ísland er í hópi fyrstu Evrópulanda,
þar sem PD-5 er til sölu.
Kemi ehf. hóf starfsemi 1991
Kemi ehf. hóf starfsemi árið 1991 sem
eins manns fyrirtæki en í dag starfa þar
níu manns. Kemi er innflutningsfyrir-
tæki sem selur hreinsiefni, smurefni,
öryggisvörur og aðrar rekstrarvörur
til fyrirtækja og einstaklinga. Aðsetur
fyrirtækisins er að Tunguhálsi 10 í
Reykjavík.
/HKr.
Kemi og Fuel-Tec kynna „byltingarkennd“ bætiefni í olíu og bensín:
Íslenskar tilraunir sýna PD-5 skila 6–13% eldsneytissparnaði
Samstarf um sölu og kynningu Kemi ehf. á PD-5 efnunum frá Fuel-Tec Ltd. í höfn. Frá vinstri: Haraldur E. Jónsson,
sölumaður hjá Kemi, Aaron McVitty, framkvæmdastjóri tæknisviðs Fuel-Tec, Karl Devlin, framkvæmdastjóri Fuel-
Tec og Jón Viðar Óskarsson, framkvæmdastjóri Kemi.
Can-Am Outlander T3 Max 650 dráttarvél eða fjórhjól. Myndir / HLJ
Risastór bögglaberinn að aftan þolir
90 kg burð.