Bændablaðið - 16.05.2012, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 2012
Ármann Elísson er fjórði ætt-
liður frá 1908 sem býr í Dölum.
Ármann og Jóna Óskarsdóttir
tóku við búskap þar árið 1990.
Býli? Dalir.
Staðsett í sveit? Dalir eru innsti
bær í Fáskrúðsfirði.
Ábúendur? Ármann Elísson og
Jóna Óskarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Ármann og Jóna, Daníel
Ármannsson og Elís Ármannsson,
Arnar Ármannsson og Guðrún
Sigurðardóttir, Linda Hrönn
Ármanndsóttir, Ingimar
Guðmundsson og Emilía Rós
Ingimarsdóttir.
Stærð jarðar? Ræktað land er
um 44 ha og heildarstærð er um
5.000 ha.
Tegund býlis? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
600 fjár, 4 hestar og 1 folald, 2 kýr
og 2 kálfar, 5 hundar og nokkrar
hænur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Fénu er gefið tvisvar á dag yfir vet-
urinn. Á sumrin er svo heyskapur
og á haustin eru smalamennskur.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Skemmtilegustu bústörfin eru
sauðburður, heyskapur og smala-
mennskur. Leiðinlegast er að skafa
grindur í fjárhúsunum.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Með
svipuðu sniði og nú.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þau eru í ágætis
horfi.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Ágætlega ef við göngum ekki í
ESB.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Í lambakjöti og mjólkurafurðum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, skyr, sulta, egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Það sem er í matinn
hverju sinni, okkur finnst allt gott.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Ekkert eitt sérstakt,
en það var skemmtilegt þegar
þeir Stefán í Teigi og Þórarinn
Lárusson komu með heyköggla-
verksmiðjuna og köggluðu
þurrhey.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Stúlkan á myndunum heitir Emilía Rós Ingimarsdóttir.
Dalir
Finnskir berjasaftpottar vekja lukku:
Spara berjatínslufólki mikla
hreinsun á berjum
– Pottarnir gefa kost á að búa til fyrirtaks hrásaft á fljótlegan hátt
Þó sumarið sé varla hafið og enn
sé langt í berjatímann, þá er for-
sjált berjatínslufólk þegar farið
að undirbúa sig. Þorsteinn F.
Þráinsson matreiðslumeistari og S.
Eva Friðþjófsdóttir danskennari á
Ísafirði flytja inn og selja Muurikka
og Opa vörur frá Finnlandi gegnum
netverslun sína, muurikka.is. Meðal
þess sem þau bjóða upp á er for-
láta berjasaftpottur til að framleiða
hrásaft úr berjum, rabarbara eða
ávöxtum.
Þorsteinn segir að í kringum
berjatínslu, söftun og jafnvel víngerð
í framhaldinu geti skapast skemmtileg
stemming. Því sé tilvalið fyrir fjöl-
skyldur eða saumaklúbba að slá saman
í svona pott, þar sem ekki sé verið að
nota hann dags daglega.
Þarf ekki að hreinsa berin
Þorsteinn segir að svipaðir pottar hafi
svo sem áður verið fluttir til landins.
Einn helsti kostur þeirra er að ekki þarf
að hreinsa berin til að búa til hrásaft og
það einfaldar söftun til mikilla muna.
Ef þau eru rykug, dugar að skola þau
undir rennandi vatni.
Vinsælt í Finnlandi
„Við kynntumst þessum vörum í
Finnlandi árið 2004 og heilluðumst
af gæðum og kostum þeirra. Systir
mín býr úti í Finnlandi og ég var
að leita mér að pönnum til að nota
yfir opnum eldi. Þá benti hún mér á
Muurikka-vörurnar. Eins benti hún
mér á þessa saftpotta og sagði að allar
ömmur í Finnlandi ættu svona potta.
Fjölskyldurnar færu svo út í skóg
seinni partinn í ágúst og tíndu ber til
að safta. Þannig myndast skemmtileg
fjölskyldustemming og því hef ég
hvatt fólk hér á landi til að sameinast
um pottakaup, því auðvitað er ekki
verið að nota þetta á hverjum degi.
Þá má hæglega gufusjóða í pottunum
ýmislegt annað, eins og grænmeti eða
kjúkling.“
Opa og Muurikka runnu saman
í eitt
„Ég hef boðið þessar vörur til sölu
hér á landi síðan 2007. Þarna er um
að ræða tvö vörumerki sem sameinast
hafa í eitt fyrirtæki. Ég fékk upphaf-
lega umboð fyrir Muurikka, það fyrir-
tæki keypti síðan fyrirtækið Opa og
heitir Opa Muurikka í dag. Fyrirtækin
voru með sitt hvora vörulínuna og eru
þær enn framleiddar hvort undir sínu
merkinu. Opa var eingöngu að fram-
leiða potta og aðar vörur fyrir útieldun,
eins og hlóðapotta. Því miður hætti
fyrirtækið þó framleiðslu á hlóðapott-
unum, en þeir voru orðnir vinsælir
hér á landi.
Vörur frá Muurikka hafa verið á
boðstólum síðan 1970 en Opa-vörur
allar götur síðan 1930. Fyrirtækið á í
dag í harðri samkeppni við Iittala og
er mjög virt í Finnlandi.“
Gefur nýja vídd í matreiðslu
„Einföld hönnun og notagildi eru í
fyrirrúmi, ásamt þeim markmiðum
að nýta hitagjafann og spara orku.
Muurikka gefur útieldun nýja vídd í
matreiðslu og engin veisla eða sam-
koma er of stór eða flókin fyrir hana.
Einkunnarorð Opa eru „Arjen sankari“
eða Hversdaghetjan og eru þau orð
að sönnu.“
Þorsteinn segir að pottarnir, sem
eru í þremur einingum, taki um 10 lítra
af berjum í einu eða 5 kg af rabarbara.
Hann segist setja í pottinn þrjá lítra af
vatni sem síðan sé soðið á hellu eða
gasi. Þannig fáist t.d. um 5-6 lítrar af
saft úr 5 kg af rabarbara.
Heilnæm hrásaft
Berin koma ekki í beina snertingu
við vatnið en gufan sem stígur upp
sprengir þau og safinn streymir niður
í pottinn. Að sögn Þorsteins segja sér-
fræðingar hjá MATÍS að með þessari
aðferð fáist hrein hrásaft. Vegna þess
að berin séu ekki soðin fáist úr þeim
öll andoxunarefni, næringarefni og
litur sem í berjunum er.
Fólk ræður því síðan hvort það
notar hrásaftina ómengaða eða
blandar sykri út í pottinn. Sjálfur
segist Þorsteinn setja um 500 grömm
af hrásykri í pottinn, þar sem hann
gefi saftinni mun skemmtilegra bragð
en hvítur sykur. Líka sé hægt að nota
púðursykur. Segir hann að miklu betri
árangur náist við að safta með þessum
hætti heldur en að kaldpressa ber, eins
og oft sé gert, og meiri safi og nær-
ingarefni náist úr berjunum. Ein suða
tekur rétt rúman klukkutíma.
Betra að frysta rabarbarann fyrst
Það eru þó ekki bara ber sem hægt er
að safta í pottunum. Í þeim er t.d. hægt
að gera rabarbarasaft, en Þorsteinn
segir mikilvægt að frysta rabarbarann
fyrst. Ástæðan er sú að við frystinguna
verður efnabreyting í rabarbaranum
og sýra, sem óæskileg er fyrir fólk,
umbreytist í mjólkursýru. (Stilkur
rabarbarans inniheldur talsvert magn
af oxalsýru sem gerir hann súran.
Oxalsýran í rabarbara er í það miklum
styrk að hún getur haft óæskileg áhrif
á nýrnastarfsemi og ætti að minnsta
kosti ekki að neyta mikils af honum.
Mikil neysla rabarbara getur einnig
eytt glerungi tanna.) Hafa ber í huga
að rabarbari úr fyrstu uppskeru á sumri
gefur mun meiri saft en úr seinni upp-
skerum.
Reyndar segir Þorsteinn að ber sem
notuð eru þurfi ekki að vera ný, ekkert
síðra sé að nota frosin ber til söftunar.
Það eigi ekki síst við um krækiberin
og þá náist safinn betur úr hratinu.
Síðan geti fólk prófað sig áfram og
blandað saman ólíkum tegundum til
að fá mismunandi saft. Jafnvel mel-
ónum, ananas eða öðru – tilvalið fyrir
fólk sem hefur gaman af tilraunum
í matargerð. Þá þykir kjörið að nota
slíka saft til að búa til léttvín.
Lánaði pottinn um allt land
„Ég er búinn að eiga minn pott í um
fjögur ár og það er búið að safta í
honum mörg hundruð lítra. Í hitteð-
fyrra seldust pottarnir upp í Finnlandi
og erfiðlega gekk að fá sendingu
hingað. Ég greip þá til þess að lána
pottinn minn til fólks þvers og kruss
um landið. Ég fékk sendingu síðast-
liðið haust og önnur sending er að
koma nú um næstu mánaðamót.
Við fylgjum að sjálfsögðu öllum
almennum reglum um ábyrgðir og
vöruskil sem gilda um seljendur á
vörum og þjónustu. Hikið ekki við
að hafa samband við okkur í gegnum
muurikka.is, komi upp einhver vanda-
mál eða bara sökum forvitni.“
Þorsteinn starfar dagsdaglega hjá
Gúmmíbátaþjónustunni ehf. á Ísafirði
en tekur þó að sér þar fyrir utan að sjá
um veislur og annað þegar færi gefst.
Salan á vörum Opa Muurikka tekur
þó æ meiri tíma vegna aukinnar sölu.
Hér eru svo dæmi um uppskriftir af
vefsíðu muurikka.is:
Rabarbarasaft
Einfalt er að laga góða rabarbarasaft
í saftpottinum frá Opa.
5 kg gróft skorinn rabarbari.
500 gr hrásykur.
Setjið ca 3 lítra af vatni í pottinn, látið
rabarbarann í sigtið og hellið úr einum
pakka af hrásykri (500 gr) yfir. Setjið
pottinn á eldavél og kveikið undir.
Þegar suðan kemur upp er gott að
lækka aðeins undir og eftir ca 1 klst.
ættuð þið að vera komin með ca 5 lítra
af rabarbarasaft.
Rabarbara- og eplasaft
2,5 kg rabarbari.
2,5 kg epli (gul eða rauð eftir smekk
hvers og eins, ég nota frekar gul).
250 gr hrásykur.
Skolið rabarbarann og skerið í 3-4
cm langa bita.
Skolið eplin og skerið í báta (hýðið
má vera á).
Setjið ca 3 lítra af vatni í pottinn, látið
rabarbarann og eplin í sigtið og hellið
hrásykri yfir. Setjið pottinn á eldavél
og kveikið undir. Þegar suðan kemur
upp er gott að lækka aðeins undir
og eftir ca 1 klst. ættuð þið að vera
komin með ca 5 lítra af rabarbara- og
eplasaft. /HKr.
Þorsteinn F. Þráinsson matreiðslu-
meistari með saftpottinn góða.