Bændablaðið - 16.05.2012, Blaðsíða 35
35Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 2012
1 7 9 8 2
6 8
1 9 4 5
2 6
7 3
5 4 1 6 3
7 6 2 9 8 4
8
5 1
5 6
6 2 5
7 2
1
2 8 3 6 7 5
7 9 4 6
1 8 4
5
7
6 3 8 1
1
8 2 7
9 8 5 3
3
3 1 9
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar
er að setja réttar tölur frá 1-9 í
eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
og heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú til
hægri þyngst en sú í miðjunni þar á
milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
4
Heiða Rakel Guðmundsdóttir
er nemandi í Hvaleyrarskóla í
Hafnarfirði og verður innan tíðar 16
ára gömul. Hún verður víða í sumar,
fer til Danmerkur með skólanum
sínum, til Spánar með knattspyrnu-
félaginu sínu og fjölskyldunni og
ætlar einnig í sumarbústað.
Nafn: Heiða Rakel Guðmundsdóttir.
Aldur: 15 að verða 16.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: 220 Hafnarfjörður.
Skóli: Hvaleyrarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Ég á mér mörg uppáhaldsdýr eins
og til dæmis hesta, hunda, ketti,
sebrahesta og fleira. Ég á kindur
og páfagauk.
Uppáhaldsmatur: Hamborgar-
hryggurinn sem ég fæ á jólunum.
Uppáhaldshljómsveit: One direc-
tion, LMFAO og fleiri.
Uppáhaldskvikmynd: Goal 1.
Fyrsta minningin þín? Fyrsta
Spánarferðin.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og spila
á gítar.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Að vera á Facebook.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Atvinnumaður í fótbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Það er margt skemmtilegt
sem við vinkonurnar gerum saman.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Að taka próf.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í
sumar? Ég ætla að fara til Danmerkur
með skólanum, til Spánar með fótbolt-
anum og síðan aftur til Spánar með
fjölskyldunni. Síðan ætla ég bara að
fara upp í sumarbústað og njóta sum-
arsins. /ehg
Klæðileg og sæt sumarpeysa
– fyrir börnin
PRJÓNAHORNIÐ
Stærðir:
1-2, 2-3, 4-5, 5-6 ára.
Gult, fjólublátt, grænt eða bara eitthvað í þessum
litum sem liggur í garnkörfunni og er hvort sem
er ekki nóg í neina flík.
Heklunál númer 3 eða sú stærð sem passar við
grófleika garnsins sem við erum að nota.
Efni:
Tyra frá garn.is. Tyra fæst í 14 fallegum litum.
Rautt An 2137 - 4 dokkur
Ljósgrátt nr. AF 9141 - 1 dokka
Silfurgrátt nr. AF 970 -1 dokka
Prjónar:
Hringprjónar nr. 4,5 x 60 cm
Sokkaprjónar nr. 4,5
Aðferð:
Bolur og ermar prjónuð í hring, sléttprjón með
röndunum.
Við handveg eru ermar og bolur sameinuð
á einn hringprjón og axlarstykkið prjónað
með einum lit með garðaprjóni. Prjónað er
perluprjón neðst á ermum og bol: 1 l sl. og
1 l br., næsta umferð slétt ofan á brugðna og
brugðin ofan á slétta.
Bolur:
Fitja upp 114-126-138-150 L, tengja í hring
og prjóna perluprjón 6 umferðir.
Prjónið nú 6 umf. rautt, 4 umf. ljósgrátt, 6
umf. rautt, 3 umf. silfurgrátt, 6 umf. rautt , 3
umf. ljósgrátt, 5 umf. rautt, 2 umf. silfurgrátt,
4 umf. rautt, 2 umf. ljósgrátt, 3 umf. rautt,
1 umf. silfurgrátt, 2 umf. rautt, 1 umf. ljós-
grátt, prjónið svo áfram með rauðu þar til bolur
mælist 25-27-31-33 cm frá uppfitjun. ATH: Á
sama tíma er tekið úr eftir 9-10-11-12 cm, 6L
jafnt yfir og eftir 17-19-21-23 cm, 6L jafnt yfir.
Setjið 6-8-8-10 L undir handveg báðum megin
á hjálparprjón. Þá eiga að vera 45-49-55-59 L
að framan og aftan.
Geymið og prjónið ermar.
Ermar:
Fitjið upp 45-47-49-51 L, prjónið 6 umferðir
perluprjón með rauðu.
Prjónið nú 6 umf. rautt, 4 umf. ljósgrátt, 6
umf. rautt, 3 umf. silfurgrátt, 6 umf. rautt, 3
umf. ljósgrátt, 5 umf. rautt, 2 umf. dökkgrátt,
4 umf. rautt, 2 umf. ljósgrátt, 3 umf. rautt, 1
umf. silfurgrátt, 2 umf. rautt, 1 umf. ljósgrátt.
ATH: Á sama tíma er tekið úr í 8.-9.-10.-11. umf
sitt hvoru megin við miðja undirermina. Aftur
í 6.-7.-8.-9. umf. eftir síðustu úrtöku og enn í
6.-7.-8.-9. umf. eftir síðustu úrtöku.
Prjónið nú 12 umf., þá er aukið út um 1 L
sitt hvoru megin við miðja undirermi þrisvar
sinnum með 5 umf. millibili. Þá eiga að vera
45-47-49-51 L á prjóninum.
Setjið nú 6-8-8-10 L á miðri undirermi á
hjálparprjón
Axlarstykki:
Sameinið á hringprjón bol og ermar.
Axlastykkið er prjónað 1 umferð brugðin og
1 umferð slétt þannig að það kemur út sem
garðaprjón í hring.
Laskaúrtaka á samskeytum erma og bols í
annarri hvorri umferð þannig:
Merkið fyrir miðju samskeyta erma og bols,
alls 4 merki. Þegar 4L eru að næsta merki eru
prjónaðar 2L saman, 2L brugðnar að merki, 2L
brugðnar eftir merki, 2L saman.
Tekið er úr í annari hvorri umferð, sitt hvoru
megin við merkin, þar til garðaprjónslykkj-
urnar yfir ermunum eru 3, þá er hætt að taka
úr þar en haldið áfram að taka úr að framan
og aftan.
*Nú eru lykkjurnar 3 fyrir ofan ermarnar prjón-
aðar sléttar og í fjórðu hverri umferð er fyrsta
lykkjan tekin óprjónuð, 2L prjónaðar sl. og
óprjónaða lykkjan dregin yfir hinar tvær.* Frá
*-* er gert tvisvar.
Passið að prjóna brugðnu lykkjurnar 4 áfram
brugðnar alla leið upp kragann.
Þegar búið er að bregða óprjónuðu lykkjunni
tvisvar yfir hinar 2 er hætt að taka úr og
prjónað stroff 2 sl. og 2 br. en lykkjurnar 3
með óprjónuðu lykkjunni prjónaðar alla leið
upp kragann líka, líkt og áður og 4 brugðnar
lykkjur sitthvoru megin við. Kraginn, sem núna
á að vera 54-58-66-63 L, er prjónaður svona
10 umferðir, og þá eru sléttu lykkjurnar með
óprjónuðu lykkjunni komnar tvisvar í viðbót,
alls fjórum sinnum. Fellið laust af.
Gangið frá endum og lykkið saman undir
höndum. Inga Þyrí Kjartansdóttir
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Á ferð og flugi í sumar
79
Ný Fab Lab smiðja
sett upp á Ísafirði
Matarsamfélag
Árnesþings
Nú er í gangi áhugavert samstarfs-
verkefni áhugahóps um matar-
menningu og matvælaframleiðslu í
Árnessýslu í tengslum við vaxandi
ferðaþjónustu í sýslunni. Stefnan
er sett á upprunamerkingar mat-
væla sem framleidd eru á svæðinu.
„Í samvinnu við Matarsmiðjuna
á Flúðum reynum við svo að efla
enn frekar fullvinnslu matvæla með
áherslu á gerð matarminjagripa auk
sérstakra framleiðsluvara í nafni
fyrirtækja eða einstaklinga og matar-
samfélagsins.
Sérstök merki (lógó) verða gerð í
ýmsum stærðum sem m.a. passa inn
í matseðla og geta þá veitingahús
merkt þá rétti sem eiga rætur sínar
að rekja til héraðsins, sem gefur
skemmtilegan möguleika á því að
beina sjónum sérstaklega að þeim
matvælum sem eru framleidd hér
og búa til nýja rétti. Þannig styrkjum
við hvert annað. Lokamarkmið
matarsamfélagsins er svo að koma
á matarmenningarferðum um
Árnessýslu sem mætti starfrækja
allan ársins hring.
Sveitarfélög gætu séð sér hag í
matartengdum hátíðum ýmiskonar
sem undirstrika framleiðslu í hér-
aðinu, t.d. væri ekki úr vegi að halda
hátíðina „Gott í gogginn“ í Grímsnes
- og Grafningshreppi, bjórfestival
annarsstaðar og svo erum við auðvi-
tað með Ísdaginn mikla í Hveragerði
og uppskeruhátíð á Flúðum, við
höfum öll okkar sérstöðu,“ segir Elfa
Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi í
Árborg og verkefnisstjóri verkefnis-
ins. /MHH
„Það er kannski ofmælt að segja
að Fab Lab sé galdratæki – en það
kemst ansi nálægt því“, segir í til-
kynningu frá Iðnaðarráðuneytinu.
Fab Lab (Fabrication Laboratory)
er stafræn smiðja með tækjum og
tólum til að búa til nánast hvað
sem er. Nú er von á einni slíkri
til Ísafjarðar sem hefur starfsemi
í haust.
Að smiðjunni standa
Mennta-skólinn á Ísafirði,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands,
Bolungarvíkurkaupstaður og
Ísafjarðarbær.