Bændablaðið - 16.05.2012, Page 36
36 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. maí 2012
Íslensk hönnun
S
ú nýbreytni var tekin upp
í byrjun maí að halda
sýninguna Handverk
og hönnun í Ráðhúsi
Reykjavíkur í sumar-
byrjun, en hún hefur fram að
þessu ávallt verið haldin að
hausti. Vel þótti til takast og
lagði margt gesta leið sína í
Ráðhúsið til að líta á brot af því
besta sem íslenskir hönnuðir og
handverksfólk hafa fram að færa
nú um mundir. Voru sýnendur
sem blaðamaður Bændablaðsins
ræddi við ánægðir með helgina
og sögðu að aðsóknin hefði
farið fram úr þeirra björtustu
vonum, þannig að greinilega er
grundvöllur fyrir því að halda
sýninguna tvisvar á ári. /ehg
Handverk og hönnun að sumri
Guðmundur Örn Ólafsson kynnti vörur sínar undir merkinu Horny Viking,
en hann fæst meðal annars við hnífasmíði og vinnur með horn.
Hugrún Ívarsdóttir frá Akureyri kynnti vörur sínar en hún sækir innblástur
í laufabrauð og rekur Laufabrauðssetrið.
Katrín Jóna Grétarsdóttir úr Mos-
fellsbæ sýndi muni sem hún vinnur
kyns fígúrur sem vöktu athygli.
Ása Tryggvadóttir keramiker sýndi stilkana sína sem hún mótar eftir hvönn.Þórdís Jóhannsdóttir Wathne hannar þetta glæsilega hálsskraut undir merkinu Spunadís.
Myndlistarkonan Sigurborg Stefánsdóttir sýndi fallega púða.
Ragga Ólafs sýndi töskur, klúta og púða sem hún útbýr en í púðana notar
hún gömul útsaumsverk og endurnýtir í nýjan nytjamun.