Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 2
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR2
SAMGÖNGUR Borgarráð Reykja-
víkur lagði til á fundi sínum á
fimmtudag að mögu leikar á lestar-
tengingu milli Keflavíkur flug-
vallar og höfuðborgarsvæðisins
verði tryggðir í aðalskipulagi
Reykjavíkur og svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins.
„Þetta eru í raun tilmæli
borgar ráðs til skipulagssviðs
og stýrihóps um aðalskipulag,“
segir Hjálmar Sveinsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingar og fulltrúi
í umhverfis- og samgönguráði
Reykjavíkur.
„Málið snýst um að sveitar félögin
hagi sínu aðal-
skipu lagi þannig
að þau úti loki
ekki lestar sam -
göngur í fram-
tíðinni. Það felst
engin ákvörðun
í þessu nema að
sveitarfélögin
ha ld i mögu-
leikunum opn u-
m .“
Hj álmar segir aðspurður að
þessar hugmyndir séu hluti af
framtíðarstefnumörkun fyrir
flugvallarsvæðið í Vatnsmýri.
„Þess utan er þetta ein mikil-
vægasta samgönguleið landsins
og umferð á bara eftir að aukast
þar sem gert er ráð fyrir milljón
ferðamönnum til landsins eftir tíu
til fimmtán ár.“
Engar hugmyndir eru enn uppi
um hvar slík spor gætu legið, en
stefnt er að því að mynda starfs-
hóp sveitarfélaganna um málið.
„Orð eru til alls fyrst,“ segir
Hjálmar að lokum. „Þetta er við-
leitni til að halda leiðum opnum og
sjá til þess að ekkert gerist sem
útilokar þennan möguleika.“
- þj
REYKJAVÍKURBORG Of dýrt er að
útbúa undirgöng undir Miklubraut
við Lönguhlíð þannig að auðveld-
ara verði að fara um með barna-
vagn í samræmi við tillögu sem
barst á vefnum Betri Reykjavík.
Í umsögn framkvæmda- og
eignasviðs segir að snúið verði
að koma fyrir skábrautum fyrir
barnavagna, hjólastóla og reiðhjól
við göngin. Helsta lausnin sé lyftu-
hús með tilheyrandi hliðarfram-
kvæmdum. Alls myndi þetta kosta
50 til 100 milljónir krónur. Ekki er
mælt með þeirri framkvæmd. - gar
Undirgöng við Lönguhlíð:
100 milljónir
fyrir barnavagn
HJÁLMAR
SVEINSSON
VETUR Í VATNSMÝRI Borgaryfirvöld vilja
tryggja möguleika á lestarsamgöngum
við Keflavík í framtíðinni. Málið tengist
veru flugvallar í Vatnsmýrinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Borgarráð vill halda möguleikum opnum í skipulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu:
Lestarsamgöngur verði ekki útilokaðar
SAGA Sjötíu árum eftir ein stakt
björg unar af rek var Mag núsi
Páls syni frá Vetur húsum í Eski-
firði fært þakkar bréf bresku
rík is stjórnarinnar fyrir ein-
stakt björgunar afrek að fara nótt
21. janúar 1942. Magnús, móðir
hans og systkini björguðu þá 48
breskum her mönnum frá bráðum
bana í af taka veðri sem gekk yfir
Austur land. Átta her menn urðu
úti þessa nótt en mun fleiri hefðu
farist ef ekki hefði verið fyrir hug-
rekki fjölskyldunnar, eins og segir
í þakkarbréfinu sem er undirritað
af Nick Harvey, her mála ráð herra
Breta.
Magnús, þá aðeins fjór tán
ára gamall, var ný sofnaður um
kvöldið, eftir að hafa unnið sam-
fleytt í tvo daga við upp skipun á
salti, þegar hann var vakinn af
bróður sínum Páli. Páll hafði þá
af til viljun gengið fram á að fram-
kominn hermann á milli úti húss
og bæjar.
„Hann er hetjan í þessari sögu,“
segir Magnús sem vísar fremur á
framtak annarra heimilismanna
á bænum en síns eigin. Og það
þrátt fyrir að hafa alla nóttina
lagt út í sortann og dregið hvern
hermanninn af öðrum inn í hlýjuna
í Veturhúsum. „Við gengum á
hljóðin í vesalings mönnunum sem
voru aðframkomnir. Þeir sáu ljósið
frá fjósaluktinni okkar. Margir
voru skólausir, en allir rennblautir
og kaldir,“ segir Magnús sem
heldur því fram að lífsbjörgin hafi
verið kerti sem móðir hans setti
út í glugga um kvöldið og sneri að
heiðinni.
Bretarnir tilheyrðu her flokki,
The King‘s Own Yorkshire Light
Infantry (KOYLI), sem var hluti
ný stofnaðrar fjall göngu hersveitar.
Þeir voru við æfingar, ætluðu
að ganga frá Reyðar firði yfir
Hrævars skörð til Eski fjarðar. En
vegna erfiðra að stæðna þurftu
þeir að fara lengri leið, en hrepptu
af taka veður.
Magnús lýsir því að þeir bræður
báru mennina í hús, systur hans
hlúðu að þeim og móðir hans stóð
og bakaði brauð og hitaði kaffi
þessa löngu nótt. Átta hermenn
urðu hins vegar úti, einn dó í
Veturhúsum en sjö í túnfætinum,
eins og kom í ljós þegar dagur reis.
Tvo þeirra fann Magnús sem telur
atburðinn ekki hafa haft áhrif
á sig. „Þetta var bara verk sem
þurfti að vinna,“ segir Magnús af
því lítillæti sem einkennir hann.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson er að
leggja lokahönd á heimildarmynd
um atburðina og heitir því
viðeigandi nafni Veturhús. Myndin
verður frumsýnd á páskadag á
Stöð 2. Framleiðendur eru Sturla
Pálsson og Arnar Knútsson.
svavar@frettabladid.is
Heiðraður 70 árum
eftir björgunarafrek
Magnús Pálsson frá Veturhúsum í Eskifirði tók við viðurkenningu frá bresku
ríkisstjórninni í gær fyrir einstakt björgunarafrek. Hann og nánasta fjölskylda
bjargaði 48 breskum hermönnum frá bráðum bana í aftakaveðri í janúar 1942.
SÍÐBÚNAR ÞAKKIR Magnús tók við þakkarbréfinu úr hendi Jerry Hudson, ofursta og
varnarmálafulltrúa, sem kom sérstaklega til landsins í gær vegna samkomu á heimili
breska sendiherrans á Íslandi, Ians Whitting, sem er hér fyrir miðri mynd. Hudson
ofursti sagði hlýhug bresku þjóðarinnar fylgja bréfinu, en af hverju það beið svo
lengi að þakkir bárust sagðist hann ekki geta skýrt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gylfi, dreymir ykkur ameríska
drauminn?
„Ameríkannskibara!“
Gylfi Sigurðsson er trommuleikari Retro
Stefson. Hljómsveitin leikur í fyrsta skipti
á tónleikum í Bandaríkjunum næsta
sumar.
NICOLAS SARKOZY Frakklands forseti
segir franska hermenn ekki vera í
Afganistan til að láta afganska hermenn
skjóta á sig. NORDICPHOTOS/AFP
FRAKKLAND, AP Frakkar hættu
tímabundið öllu samstarfi um
þjálfun afganskra hermanna eftir
að maður, íklæddur afgönskum
hermannabúningi, drap fjóra
franska hermenn og særði fleiri.
Nicolas Sarkozy sagði
hugsanlegt að franski herinn verði
kall aður heim frá Af gan istan hið
fyrsta, verði öryggi franskra her-
manna ekki betur tryggt.
„Franski herinn er í Afganistan
til að aðstoða Afgana í baráttu við
hryðjuverkamenn og talibana.
Franskir hermenn eru ekki í
Afganistan til þess að afganskir
hermenn geti skotið á þá,“ sagði
Sarkozy. - gb
Franskir hermenn drepnir:
Franski herinn
hættir þjálfun
REYKJAVÍK Hverfastöðvar og síma-
ver Reykjavíkur verða með opnar
vaktir yfir helgina vegna færðar
og snjókomu. Íbúar geta sótt
sand og salt á hverfastöðvarnar
og símaver veitir upplýsingar og
tekur við ábendingum.
Í gærnótt voru snjóruðnings-
tækin ræst til að ryðja umferðar-
götur og göngustíga. Í tilkynn-
ingu frá borginni segir að unnið
hafi verið sleitulaust í gærdag við
ruðninga og voru vélar sendar í
húsagötur eftir þörfum.
Hverfastöðvar og símaver
verða opin á milli klukkan 10.30
og 15 yfir helgina. - sv
Opið fyrir sand og salt:
Borgin verður
með snjóvaktir
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Júl-
íus Þorbergsson, kaupmann í Draumnum við Rauðar-
ár stíg, í eins árs fangelsi fyrir að selja læknadóp í
versluninni. Þá var hann fundinn sekur um að hafa
selt munn- og neftóbak.
Lögregla réðst í húsleitir í Draumnum og víðar
sumarið 2010, fann þar mikið af læknadópi og inn-
siglaði verslunina. Júlíus opnaði hana að nýju nú rétt
fyrir áramót.
Fyrir dómnum báru vitni viðskiptavinir Júlíusar,
nágrannar og fleiri og voru svo til allir sammála um
að hjá Júlíusi hefði um langa hríð mátt kaupa lækna-
dóp. Því neitaði hann statt og stöðugt en dómurinn tók
meira mark á vitnunum og sakfelldi Júlíus.
Á heimili Júlíusar fannst 21 gramm af kókaíni sem
honum var gefið að sök að hafa ætlað að selja, en því
neitaði hann og sagði það hafa verið skilið eftir hjá
honum.
„Þótt saga ákærða um hina erlendu iðnaðarmenn
sem hann réði til starfa án þess að vita haus né sporð á
þeim sé ekki beint trúleg þá er ekki hægt, gegn neitun
hans, að sakfella hann fyrir vörslur kókaíns á þeim
grundvelli einum að efnin hafi fundist á heimili hans,“
segir í dómnum. Er hann því sýknaður af þeim lið.
Loks var hann ákærður fyrir peningaþvætti, en á
heimili hans fannst jafnvirði fjórtán milljóna króna
sem taldar voru ágóði lyfjasölu. Hann sagði þetta
vera löglegan ávinning starfsemi sinnar og afgang
af ferðafé, en dómnum þykir það hæpin skýring og
finnst ótrúlegt að nokkur geymi sparifé í rykfallinni
ferðatösku. Féð er því gert upptækt. - sh
Kaupmaður sakfelldur fyrir að selja læknadóp í verslun sinni:
Júlli í Draumnum í árs fangelsi
SEKUR Dómurinn tók ekki mikið mark á skýringum Júlíusar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNSÝSLA Stuðningsmenn Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta
Íslands, hafa opnað heimasíðu þar
sem hægt er að skora á hann til að
bjóða sig fram til forseta í næstu
kosningum. Heimasíða hópsins,
askoruntilforseta.is, var formlega
opnuð í gær.
Meðal forsvarsmanna heimasíð-
unnar eru Guðni Ágústsson, fyrr-
verandi ráðherra, Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður Fjölskyldu-
hjálpar Íslands, Ragnar Arnalds,
fyrrverandi ráðherra, Grétar Mar
Jónsson, fyrrverandi þingmaður,
og Baldur Óskarsson, fyrrverandi
framhaldsskólakennari. Ólafur
hefur ekki upplýst hvort hann
mun bjóða sig fram. - sv
Fyrrum ráðherrar styðja Ólaf:
Stuðningssíða
opnuð í gær
VILJA ÓLAF Guðni Ágústsson er einn
forsvarsmanna síðunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SPURNING DAGSINS
Landvarðanámskeið
Umsóknum skal skilað fyrir 5. febrú ar 2012
til Umhverfisstofnunar, Suðurlands braut 24
eða rafrænt á umhverfisstofnun.is
Í umsókn þarf að koma fram nafn, kennitala,
heimilis fang, sími og netfang. Skilyrði er að
umsækjendur séu fæddir 1992 eða fyrr.
Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi.
Skemmtileg störf í náttúru Íslands 16. febrúar til 11. mars
Kennt er um helgar og á
kvöldin á virkum dögum,
sjá dagskrá á
umhverfisstofnun.is
Námskeiðsgjaldið
er kr. 120.000