Fréttablaðið - 21.01.2012, Qupperneq 6
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR6
Sanngirnisbætur
Innköllun
Í samræmi við ákvæði laga nr. 47/2010 um sanngirnisbætur fyrir
misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr.
26/2007 og tóku gildi hinn 28. maí 2010, hefur sýslumanninum á
sama heimilinu.
heimavistarskólanum að Jaðri
Hér með er skorað á alla þá sem voru vistaðir á heimavistar-
skólanum Jaðri einhvern tíma á árabilinu 1946-1973 og urðu þar
fyrir illri meðferð eða ofbeldi sem olli varanlegum skaða, að lýsa
kröfu um skaðabætur fyrir undirritaðri fyrir 20 apríl 2012. Kröfu
-
bætur.is og hjá tengiliði vegna vistheimila..
Verði kröfu ekki lýst fyrir 20. apríl 2012 fellur hún niður.
Bent er á að unnt er að leita aðstoðar tengiliðar vegna vist heimila
við framsetningu og skil á bótakröfu. Aðstoð tengiliðar er að
þriðju hæð, 101 Reykjavík. Sími tengiliðar er 545 9045. Vef-
Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður
FRÉTTASKÝRING: Frávísun á máli Geirs H. Haarde
Þingmenn ræddu tillögu
um afturköllun ákæru á
hendur Geir H. Haarde
fram á kvöld í gær. Lagt
var til að henni yrði vísað
frá og niðurstaða lá ekki
ljós fyrr en í gærkvöldi.
Frávísunartillagan var
felld með 31 atkvæði gegn
29. Tekist var á um laga-
túlkanir og hvort ný
efnisleg rök hefðu komið
fram.
Aðeins eitt mál var á dag skrá
Alþingis í gær: tillaga Bjarna
Benedikts sonar, formanns Sjálf-
stæðis flokksins, um að Alþingi
aftur kalli ákæru á hendur Geir
H.Haarde, fyrrum forsætis-
ráðherra. Um ræðan hófst klukkan
10.30 í gærmorgun og stóð fram á
tíunda tímann í gærkvöldi.
Bjarni Benediktsson mælti fyrir
til lögu sinni. Hann sagði margt
hafa komið fram síðan ákæran var
sam þykkt sem ætti að hafa áhrif
á af stöðu manna. Þá hefði Lands-
dómur vísað frá fyrstu tveimur
liðum af sex í ákærunni. Þeir liðir
sem eftir stæðu hefðu aldrei einir
og sér leitt til þess að Alþingi hefði
ákveðið að höfða sakamál á hendur
fyrrverandi forsætisráðherra.
Frávísun veigamestu liðanna
jafngilti því að meginforsendur
málssóknarinnar væru brostnar.
Magnús Orri Schram, þing-
maður Samfylkingarinnar, talaði
fyrir rökstuddri dagskrártillögu
um að vísa málinu frá.
Hann sagði engan forsendu brest
hafa orðið á málinu sem rétt lætti
að fallið verði frá því. Engin beiðni
hefði borist um slíkt, hvorki frá
sak sóknara Al þingis né Lands-
dómi. Lands dómur hefði hins
vegar hafnað því að vísa málinu
frá í heild sinni og því stæðu
fjögur atriði máls höfðunarinnar
eftir óhögguð.
Deila þingmanna snérist í gróf-
um dráttum um þrjú atriði: Hvort
Alþingi væri sætt á því að grípa inn
í störf Landsdóms, hvort einhver ný
efnisleg rök hefðu komið fram fyrir
afturköllun og hvort mistök hefðu
verið gerð við atkvæðagreiðsluna
í september 2010 sem bæri að leið-
rétta.
Löglegt eða ekki?
Drjúgur tími þingmanna fór í að
rökræða um hvort Alþingi væri
heimilt að draga tillöguna til baka.
Vísað var í greinargerð með lögum
um Landsdóm, sem Ólafur Jóhann-
esson samdi og Bjarni Benedikts-
son, þáverandi forsætisráðherra,
mælti fyrir.
Var þar helst vísað í tilvitnun
sem Fréttablaðið birti í gær, en þar
segir, eftir leiðsögn um saksóknar-
nefnd: „En eins og nú er, hefur
Alþingi engin skipti af málinu, eftir
að það hefur kjörið sóknara.“
Þeir sem styðja tillögu Bjarna
vísuðu hins vegar í seinni tíma
lög spekinga, svo sem Stefán Má
Stefáns son, Róbert Spanó og Ragnar
Hall. Þeir hefðu allir metið það svo
að Al þingi hefði heimild til að aftur-
kalla ákæruna, enda sak sóknar aðili.
Fjöldi þingmanna lýsti sig and-
snúinn niðurstöðu forseta Alþingis
að tillagan væri þingtæk.
Mistök eða ekki
Atli Gíslason, formaður þing-
mannanefndarinnar sem lagði
ákærurnar til, sagði mistök hafa
verið gerð við atkvæðagreiðsluna.
Hann hefði ætíð skilið málið svo
að um eina heildstæða tillögu um
ákæru á hendur fjórum fyrrum
ráðherrum væri að ræða, en ekki
fjórar sjálfstæðar tillögur.
Þegar í ljós kom að aðeins var
samþykkt að ákæra einn ráðherra
hefði átt að gera hlé á þingfundi og
kalla þingmannanefndina saman.
Heggur hann þar í sama knérunn
og Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra sem lýst hefur yfir sömu
skoðun.
Atla ber þar ekki saman við
Eygló Harðar dóttur, þing mann
Fram sóknar flokksins, en hún sat
með honum í nefndinni. Hún sagði
það alla tíð hafa verið sinn skilning
að um fjórar að skildar til lögur
væri að ræða. Annað hefði ekki
gengið enda væri um að ræða til-
lögur um persónu lega ábyrgð hvers
og eins sem gæti leitt til á kæru.
Slíku væri ekki hægt að slá saman
í einn pakka.
Fylgismenn til lögu Bjarna
vitnuðu ótt í um mæli Atla og töldu
að það að sumir þeirra sem sam-
þykktu ákæru töluðu nú um mi stök
væri næg ástæða fyrir því að
hleypa málinu áfram.
Skúli Helgason, þing maður Sam-
fylkingarinnar, sagði það hins
vegar af og frá. Mý mörg dæmi
væru um að menn skiptu um
skoðun þegar nokkuð væri liðið frá
at kvæða greiðslu. Slíkt kallaði ekki
á endur upp töku mála.
Frávísun felld eftir langar umræður
...svo er borið á þá að hafa
gerst sekir um einhvers konar
rökvillu, af því að þeir héldu einhverju
öðru fram í einhverju öðru máli.
Bjarni Benediktsson
Þó að þetta mál sé á dagskrá
þingsins þá þarf það ekki að
þýða að það sé þingtækt. Það er
einfaldlega hér á dagskrá af því að
forseti þingsins setti það á dagskrá.
Þór Saari
Ég vona að háttvirtum
þingmanni reki minni til líkt
eins og mér þegar þessari atkvæða-
greiðslu var lokið, þegar þingmenn
þustu hér út sumir hverjir með
kökkinn í hálsinum og öðrum
brugðið, vegna þess hvernig þetta
endaði og nú eru þeir að koma fram
og lýsa því hvernig þeim var brugðið
mörgum hverjum og hvernig málið
breyttist.
Gunnar Bragi Sveinsson
Eru tilfinningar þingmanna og
samviskubit þeirra hugsanlegt
efnislegt tilefni til þess að Alþingi fari
að taka afstöðu til þess að fella niður
ákæru á hendur sakborningi í þessu
tilfelli.
Ólína Þorvarðardóttir
Tillagan var afgreidd hér, ekki
eins og ég greiddi atkvæði að
öllu leyti, og ég var með fullri
meðvitund og opin augun og ég hélt
að það ætti almennt við um
þingmenn, að minnsta kosti þá sem
hafa eitthvað sinnt þingstörfum, að
þeir vissu hvernig það gerist.
Steingrímur J. Sigfússon
ATLI GÍSLASON
Beðið var með eftirvæntingu eftir máli Atla
Gíslasonar, þingmanns utan flokka, en hann var
formaður þingmannanefndarinnar sem lagði til
ákæru á hendur fjórum fyrrverandi ráðherrum.
Atli sagði að hann hefði litið á tillögu meiri-
hlutans sem eina heildstæða tillögu um að kæra
fjóra ráðherra, ekki fjórar sjálfstæðar tillögur.
„Það er mín skoðun að fyrirkomulag atkvæða-
greiðslunnar hafi verið bjagað,“ sagði Atli, og
játaði að hafa gert mistök með því að gera ekki
hlé á atkvæðagreiðslunni til að funda frekar um
málið. Þá sagði Atli það hafa verið sína skoðun að ákæra
ætti alla eða engan.
„Ég lýsti þeirri skoðun minni á þingflokksfundi VG og
i óformlegum samræðum fyrir atkvæðagreiðsluna að
annaðhvort ætti að ákæra fjóra eða engan. Þessi skoðun
mín kom svo fram í fjölmiðlum eftir atkvæðagreiðsluna.“
Þetta kemur illa saman við orð Atla í Frétta-
blaðinu tveimur dögum eftir atkvæðagreiðsluna,
en spurður um hvort rétt væri að Geir einn
yrði dreginn fyrir Landsdóm sagði hann þá: „Ég
hugsaði einhvern tíma með sjálfum mér: Fjórir,
enginn eða einn. Það er algengt í sakamálum að
aðalmaður sé ákærður en aðrir ekki, án þess að
ég vilji heimfæra það beint yfir á þetta.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, gaf lítið fyrir það að koma fram og
ræða um mistök 15 til 16 mánuðum eftir
umrædda atkvæðagreiðslu. Hefðu menn gert það strax
eftir hana hefði verið betra að vinda ofan af málinu, ekki
nú þegar ferlið væri komið af stað. Þá sagði hann sér-
kennilegt af Atla að taka sæti í saksóknarnefnd, sem er
saksóknara Alþingis til ráðgjafar, ef hann taldi alla tíð að
mistök hefðu verið gerð við atkvæðagreiðsluna.
Talar um mistök en settist í saksóknarnefnd
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Meðal deiluefna gærdagsins
var hvert ætti að vísa málinu ef
frávísun yrði felld. Flutningsmaður
tillögunnar, Bjarni Benediktsson,
lagði til að þingsályktunartillagan
færi til saksóknarnefndar. Henni
væri málið skylt, enda væri hennar
að fylgjast með saksókninni.
Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, og fleiri bentu
á að það væri einfaldlega ekki
heimilt. Þingsályktunartillögu bæri,
samkvæmt þingsköpum, að vísa til
einnar af fastanefndum þingsins
eða að skipa um hana sérstaka
nefnd. Hvorugt fælist í tillögu
Bjarna. Mörður sagði eins hægt að
vísa málinu til Þingvallanefndar og
til saksóknarnefndar.
Kallaði Mörður eftir úrskurði
forseta Alþingis fram eftir degi.
Hvaða nefnd?
Óhætt er að segja að andrúmsloftið á Alþingi hafi
verið þrúgandi í gær, þegar málefni varðandi ákæru á
hendur Geir H. Haarde voru rædd. Stálin stinn mættust í
ræðustól Alþingis og mátti oft og tíðum sjá að þingmenn
höfðu litla þolinmæði fyrir málflutningi hver annars. Hin
raunverulegu átök fóru hins vegar fram utan þingsalar.
Legið var á þingmönnum um að sveiflast til fylgilags
ýmist við tillögu Bjarna um afturköllun ákærunnar eða
við frávísun á þeirri tillögu.
Einn heimildarmanna Fréttablaðsins sem rætt var við
á fimmtudagskvöld reyndist sannspár, en hann sagði að
hann mundi ganga í þingsal morguninn eftir án þess að
vita hver afdrif málsins yrðu. Það er fáheyrð staða að ekki
sé ljóst við upphaf umræðu hvernig þingmenn muni
kjósa um tillöguna. Hvað sem stjórnmálamenn segja um
mikilvægi umræðunnar og lýðræðisleg vinnubrögð og
hversu mikið sem þeir neita því að flokkslínur skipti engu
heldur aðeins þeirra eigin sannfæring, þá liggur það nú
yfirleitt nokkuð ljóst fyrir hvernig línur liggja á Alþingi við
upphaf umræðu.
Ljóst var hins vegar að örfá eða jafnvel eitt atkvæði
gætu skipt sköpum varðandi málið. Því skipti miklu
hverjir væru í salnum. Því hefur Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra gert sér grein fyrir, en hann flýtti
heimkomu sinni um nokkra daga, tók sæti á þingi og
greiddi atkvæði gegn frávísunartillögunni, sem sam-
flokksmaður hans Magnús Orri Schram mælti fyrir. Þá var
legið á þingmönnum sem þóttu ekki einarðir í afstöðu
sinni fram eftir degi.
Sú vinna virðist hafa skilað árangri. Þeir sem bjuggust
við því að frávísunartillagan yrði samþykkt urðu svart-
sýnni eftir því sem leið á daginn. Það stóð enda heima
að frávísunartillagan var felld og samþykkt að málið færi
áfram í nefnd.
Legið á mönnum, skipt um skoðun og heimför flýtt
ÞUNGT HUGSI Maraþonumræða fór fram um tillögu Bjarna á þingi í gær. Sömu spurningarnar komu ítrekað upp og fengu
sömu svörin. Fátt nýtt kom fram þegar leið á daginn, en þingmenn héldu umræðum áfram fram á kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA