Fréttablaðið - 21.01.2012, Side 10
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR10
NÁTTÚRA Árleg talning vetrarfugla, sem er
nýlokið, sýnir mikið og fjölskrúðugt fugla-
líf á norðanverðu Snæfellsnesi. Á talninga-
svæðunum nú voru 29 þúsund fuglar af 39
tegundum.
Fuglalífið er óvenju blómlegt vegna
mikillar síldargengdar í Breiðafirði, og á
það við fjórða veturinn í röð. Nú sáust enn
fleiri fuglar en áður, að því er kemur fram
á vef Náttúrustofu Vesturlands.
Á meðal þess sem mesta athygli vekur
er gríðarlegur fjöldi máfa, súlna og ann-
arra fiskæta. Algengustu tegundirnar
voru svartbakur, æðarfugl og hvítmáfur
en máfar, æður, súla og fýll voru samtals
ríflega 80% af heildarfjölda. Samtals sáust
16 hafernir, fleiri en nokkru sinni fyrr.
Náttúrufræðistofnun tekur við niður-
stöðum talninganna og er búist við að talið
hafi verið á nærri 180 svæðum á Íslandi
í ár.
Árlegar vetrarfuglatalningar hófust á
Íslandi um jólaleytið 1952 að bandarískri
fyrirmynd. Á síðustu árum hafa hátt á
annað hundrað manns tekið þátt. Talning-
ar fóru lengst af fram um jólin og af þeim
sökum hafa talningar þessar oft verið
nefndar jólatalningar.
Markmiðið er að safna upplýsingum um
fjölda og dreifingu fugla að vetrarlagi.
Talningar eru staðlaðar og geta því nýst til
vöktunar einstakra stofna. - shá
MÁFAR ÁBERANDI Vetrarfuglatalningar hafa verið samfellt á
Íslandi frá 1952. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Síldargengd í Breiðafirði hefur mikil áhrif á fuglalíf við norðanvert Snæfellsnes:
Aldrei sést fleiri hafernir á svæðinu en í ár
NEMENDUR Í VERZLUNARSKÓLA ÍSLANDS Nemendum sem fengu hvorki skólavist í
vali eitt né tvö fækkaði um þriðjung milli áranna 2008 og 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Innritun nýnema 2008-2011
Nemendur sem hvorki fengu skólavist í vali 1 né 2 við innritun í framhaldsskóla
Haust 2008 310
Haust 2009 342
Haust 2010 209
Haust 2011 80
Heimild: Menntamálaráðuneytið
MENNTAMÁL Náms ráð gjafar hafa
orðið varir við óöryggi meðal nem-
enda í efstu bekkjum grunn skóla
og foreldra þeirra vegna óvissu um
hvernig staðið verði að inn ritun í
fram halds skóla næsta haust.
Samkvæmt heimildum blaðsins
verður málið tekið upp á vettvangi
Félags náms- og starfsráðgjafa eftir
að menntamálaráðuneytið kynnir í
byrjun næsta mánaðar bráðabirgða-
fyrirkomulag við innritun.
Fyrir komu lag sem hefur verið
við lýði síðustu ár var aflagt í
janúar byrjun eftir nýtt álit umboðs-
manns Al þingis. Í því kom fram að
laga stoð hafi skort fyrir hverfa-
skiptingu nemenda í fram halds-
skóla á höfuð borgar svæðinu.
Breytt fyrirkomulag innritunar
sem tekið var í notkun árið 2010
kvað á um að ákveðið hlutfall plássa
í hverjum skóla skyldi tekið frá
fyrir nemendur úr hverfi skólans.
Val nemenda fór þannig fram að
þeir tiltóku tvo skóla, þann sem þeir
vildu helst sækja í fyrsta vali og svo
næstbesta kost í öðru vali.
Samkvæmt gögnum frá mennta-
mála ráðu neytinu virðist inn ritun
sam kvæmt nýja kerfinu, sem nú
hefur verið af lagt, hafa verið skil-
virkari en fyrri að ferðir og mun
færri nemendur staðið uppi án skóla
við lok inn ritunar. Árið 2009 urðu
nokkur vand ræði við innritun þegar
gildi tóku lög um fræðslu skyldu allt
til 18 ára aldurs. Það ár voru 342
nemendur án skóla að vali loknu
og þurftu sér staka íhlutun ráðu -
neytisins. Haustið 2010 var þessi
fjöldi kominn niður í 209 og í fyrra-
haust þurftu einungis 80 nemendur
sér staka í hlutun.
Samkvæmt tölum ráðu neytisins
fengu síðasta haust rúmlega 98 pró-
sent nemenda skólavist í öðrum
hvorum þeim skóla sem þeir völdu
og 87 prósent fengu inni í þeim skóla
sem þeir vildu helst.
Álit umboðsmanns Alþingis
kemur í kjölfar um kvartana til
hans frá tveimur nemendur í 10.
bekk grunnskóla. Annar taldi inn-
ritunarreglurnar fela í sér mismun-
un á grundvelli búsetu og brjóta í
bága við jafnræðisreglur.
Í kvörtuninni var bent á að
framhalds skólar væru ekki allir
sam bærilegir og að í þeim væri
ekki sama náms fram boð. Hinn
nemandinn taldi inn ritunar-
reglurnar ekki byggjast á mál efna-
legum sjónar miðum. „Með þeim
væri réttur nemenda til val frelsis
skertur og þeim mis munað á ómál-
efna legum for sendum,“ segir í áliti
umboðsmanns. olikr@frettabladid.is
Flestir fengu
inni í skóla
að eigin vali
Samkvæmt nýaflögðu innritunarkerfi framhalds-
skóla fengu 98 prósent nemenda inni í öðrum hvorum
þeirra skóla sem þeir völdu. Stefnt er að því að kynna
nýtt bráðabirgðafyrirkomulag í næsta mánuði.
Velferð á óvissutímum
Þann 27. janúar n.k. standa Félagsráðgjafardeild og Þroskaþjálfabraut Háskóla Íslands, Ís-Forsa,
Þroskaþjálfafélag Íslands og Félagsráðgjafafélag Íslands fyrir opinni ráðstefnu undir yfirskriftinni
Velferð á óvissutímum. Í ágúst 2011 var haldin ráðstefnan The Joint Nordic Conference on Welfare
and Professionalism in Turbulent Times. Af því tilefni verður endurflutt efni forráðstefnunnar og
íslensku aðalfyrirlestranna og dregnar saman helstu niðurstöður ráðstefnunnar.
Dagskrá
13:00 – 13:10 Opnun ráðstefnu Anni G. Haugen, lektor við félagsráðgjafardeild
Háskóla Íslands
13:10 – 13:20 Ávarp Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra
13:20 – 13:50 Þekking og áhrifavald í félagsráðgjöf Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf
– siðfræðilegt og pólitískt sjónarhorn við Háskóla Íslands
13:50– 14:20 Fatlað fólk og velferðarríkið: Uppgjör Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunar-
við fortíð – hvert stefnir í framtíð? fræðum við Háskóla Íslands
14:20 – 14:40 Kaffi
14:40 – 15:10 Hverjir eru lærdómar bankahrunsins? Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar
Háskóla Íslands
15:10 – 15:40 Lífskjör í kreppu Kolbeinn Stefánsson, aðjúnkt við félags- og
mannvísindadeild Háskóla Íslands
15:40 – 16:00 Samantekt af ráðstefnu frá í ágúst Gunnar Sandholt, félagsmálastjóri
Staðsetning:
Grand hótel Reykjavík
Sigtúni 38, 105 Reykjavík.
Léttar veitingar í boði ráðstefnuhaldara í lok ráðstefnu
Ekkert þátttökugjald en þörf er á að
skrá sig á www.throska.is
Allir velkomnir
1. Hvaða erlenda útgáfufyrirtæki
hefur samið við Bjarna Hauk Þórs-
son um bókarskrif?
2. Hvar vilja kínverskir fjárfestar
leggja fé í heilsuþorp?
3. Hvar er ráðstefna um læsi
haldin um helgina?
SVÖRIN
1. Random House. 2. Á Flúðum. 3. Í
Norræna húsinu.
VEISTU SVARIÐ?