Fréttablaðið - 21.01.2012, Page 22
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR22
B
altasar lofaði að bjóða
mér til Íslands, en
ég hef ekki ennþá
fundið tíma. Mig
langar mikið til að
heimsækja landið,“
segir leikarinn, framleiðandinn
og fyrrverandi rapparinn Mark
Wahlberg.
Wahlberg er mikill Hollywood-
harðjaxl og símanærveran rímar
við það; hann hlær ekki (enda
reyndi ég ekki að vera fyndinn)
og skilar orðunum frá sér skýrt
og skorinort. Hann er raunar svo
mikill harðjaxl að hann segir í
nýju viðtali að hann hefði gripið í
taumana áður en önnur flugvélin
hafnaði á háhýsi í New York 11.
september 2001. Bara ef hann
hefði verið um borð í vélinni (hann
átti bókaðan miða, en forfallaðist).
Hann hefur reyndar beðist
afsökunar á þeim ummælum.
Mark Wahlberg fer með aðal-
hlut verkið í Contraband, nýjustu
kvik mynd Baltasars Kormáks,
sem var frum sýnd í Banda-
ríkjunum um síðustu helgi.
Hann var staddur í New Orleans
í Banda ríkjunum þegar Frétta-
blaðið hafði uppi á honum. Þar
er hann að fram leiða og leika
í kvik myndinni Broken City
ásamt velsku þokka dísinni
Catherine Zeta-Jones og ástralska
þumbanum Russell Crowe.
Þú hefur unnið með heims-
frægum leik stjórum á borð við
Martin Scorsese og Paul Thomas
Anderson, hvernig var að leika
undir stjórn leik stjóra frá eyju
sem fæstir vita að sé til?
„Ég naut þess. Baltasar er svo
hæfileika ríkur leik stjóri og hæfi-
leika ríkur leikari. Hann stóð sig
stórkostlega og sá til þess að allir
leikararnir gerðu sitt besta. Þá
hvatti hann alla til að prófa nýja
hluti með frábærum árangri.
Málið með Baltasar er að hann
er ekki vanur að vinna með jafn
stórar upphæðir og tíðkast í
Hollywood. Þess vegna er hann
ekki hræddur við að óhreinka
á sér hendurnar og ganga í öll
verk, stór og smá. Þess vegna
vonast ég til að gera aðra mynd
með Baltasar sem fyrst.“
Vá, þessi náungi er hæfileikaríkur
Contraband er endur gerð kvik-
myndarinnar Reykja vík Rotterdam,
eftir Óskar Jónas son. Baltasar
Kormákur lék aðal hlutverkið í
henni og Mark Wahlberg tók svo
við keflinu af honum og lék sömu
persónu í Contraband.
Wahlberg fékk sent eintak af
Reykja vík Rotterdam í gegnum
umboðs skrif stofuna William
Morris/Endeavour, skömmu eftir
að skrif stofan gerði samning við
Baltasar. „Þau bjuggust við að ég
kynni að meta myndina. Ég horfði
á hana og fannst hún algjör lega
Ég óttaðist
að það yrðu
einhvers
konar tungumálaörðug-
leikar, en strax á fyrsta
degi sá ég að hann var
með hlutina á hreinu
og var handviss um að
samstarfið yrði gott.
FLOTTUR FERILL Frammistaða Marks Wahlberg í hinni frábæru Boogie Nights vakti mikla athygli.
Síðan þá hefur leiðin legið upp á við og í dag er hann ein skærasta stjarnan í Hollywood. MARK WAHLBERG Í 15 ÁR
1997 BOOGIE NIGHTS 2000 PERFECT STORM 2003 THE ITALIAN JOB 2006 THE DEPARTED 2010 THE FIGHTER
Til í hvað sem er með Baltasar
Contraband, kvikmynd Baltasars Kormáks, fór beint á toppinn í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Leikarinn og framleiðandinn
Mark Wahlberg fer með aðalhlutverkið í myndinni og er virkilega ánægður með samstarfið við Baltasar. Atli Fannar Bjarkason
ræddi við Wahlberg sama kvöld og myndin var forsýnd í Reykjavík og komst að því leikarinn hefur mikið dálæti á Ólafi Darra.
ÁNÆGÐUR MEÐ SAMSTARFIÐ Mark Wahlberg er gríðarlega ánægður með samstarfið við Baltasar Kormák og vill gera nýja kvikmynd með honum sem fyrst.