Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 34
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR34
E
inn allra sigur sælasti
leik maður íslenskrar
knattspyrnu, Sigur-
steinn Gísla son, féll
frá mánudaginn 16.
janúar eftir stutta
en harða baráttu við krabbamein,
aðeins 43 ára að aldri. Sigursteinn
lék lengst af með ÍA og KR en með
þessum félögum vann hann alls
níu meistaratitla í efstu deild og
þrjá bikarmeistaratitla, auk fjölda
annarra bikara í smærri mótum. Þá
lék Sigursteinn 22 A-landsliðsleiki
fyrir Íslands hönd. Hann var kosinn
besti leikmaður Íslandsmótsins í
knattspyrnu haustið 1994 og var
sæmdur gullmerki KSÍ á síðasta ári.
Sigurganga á Skaganum
Sigursteinn var fæddur og upp-
alinn á Akranesi og til heyrði
mikilli knattspyrnu ætt, en eftir
því sem næst verður komist hafa
að minnsta kosti átta afkomendur
ömmu Sigursteins leikið með
meistaraflokki ÍA. Hann lék með ÍA
í yngri flokkum þar til hans fluttist
í vesturbæ Reykjavíkur haustið
1985 og gekk þá til liðs við KR, þar
sem hann hlaut sína eldskírn í efstu
deild sumarið 1987.
Að tímabilinu loknu sneri hann
aftur upp á Skaga og varð mikil-
vægur hlekkur í hinu ótrú lega
sterka og sigur sæla liði ÍA sem
tryggði sér sæti í efstu deild haustið
1991. Árin á eftir tók við óslitin
sigur ganga þar sem fimm Íslands-
meistara titlar komu í hús á árunum
1992 til 1996. Þar af unnu Skaga-
menn tvöfalt, Íslandsmót og bikar,
árin 1993 og 1996 og er þetta lið af
mörgum talið með þeim öflugustu
í íslenskri knattspyrnusögu.
Ásamt óbilandi sigurvilja þótti
Sigursteinn einnig einkar laginn
við að tileinka sér flestar stöður á
vellinum, þótt lengst af hafi hann
leikið í vörninni.
Mikilvægasta gjöfin til KR
Eftir að hafa glímt við meiðsli tíma-
bilin 1997 og 1998 gekk Sigursteinn
til liðs við KR-inga á ný og tók þátt
í að færa fylgis mönnum liðsins
mikil vægustu gjöf sem þeir gátu
hugsað sér: Fyrsta Íslands meistara-
titil félagsins í 31 ár haustið
1999. Á þessu aldarafmælisári
KR tryggði félagið sér einnig
bikarmeistaratitil, en þrír aðrir
Íslandsmeistaratitlar fylgdu í
kjölfarið árin 2000, 2002 og 2003.
Í millitíðinni reyndi Sigursteinn
fyrir sér hjá Stoke undir stjórn
Guðjóns Þórðarsonar á hálfs árs
lánssamningi, þá 31 árs gamall.
Meiðsli settu strik í reikninginn í
Englandi, en alls lék Sigursteinn
átta leiki með Stoke. Þá stóð honum
til boða að skrifa undir samning
hjá sænska félaginu Örgryte
hausið 1994 en kaus heldur að taka
þátt í áframhaldandi velgengni
Skagamanna.
Sigursteinn var spilandi aðstoðar-
þjálfari hjá Víkingi í efstu deild
sumarið 2004 en hóf að því loknu
þjálfun 2. flokks KR og tók svo
við þjálfun meistaraflokks KR frá
miðju sumri 2005 og út tíma bilið.
Hann var svo aðstoðarþjálfari
meistaraflokks KR tímabilin 2005,
2006, síðari hluta 2007 og 2008.
Haustið 2008 gerðist Sigursteinn
þjálfari meistaraflokks Leiknis
í Breiðholti. Hann gegndi þeirri
stöðu þar til hann fór í veikinda-
frí á vordögum 2011 þegar hann
greindist með krabbamein í nýrum
og lungum.
Vinsæll og hugrakkur
Í júní síðastliðnum skipulögðu vinir
og velunnarar knatt spyrnu leik til
stuðnings Sigursteini og fjölskyldu
hans milli ÍA og KR á Akranes-
velli, þar sem margir af fyrrum
liðs félögum hans og fleiri leik menn
víðs vegar að tóku þátt. Tæp lega
4.000 áhorfendur mættu á völlinn
þennan laugar dag, enda Sigur steinn
vin sæll maður sem þótti sýna mikið
hug rekki og æðru leysi í baráttu
sinni.
Sigursteinn lætur eftir sig eigin-
konuna Önnu Elínu Daníelsdóttir
og þrjú börn: Magnús Svein, Unni
Elínu og Teit Leó.
Einn sá allra sigursælasti
Knattspyrnumaðurinn Sigursteinn Gíslason lést í vikunni eftir harða baráttu við krabbamein. Sigursteinn lék lengst af með
ÍA og KR og er einn allra sigursælasti leikmaður íslenskrar knattspyrnusögu, en alls varð hann níu sinnum Íslandsmeistari og
þrisvar sinnum bikarmeistari, og hlaut fjölda annarra titla. Kjartan Guðmundsson leit yfir feril þessa mikla sigurvegara.
„Ég man eftir Steina þegar hann var
smápolli í fótbolta á Merkurtúni,“
segir Guðjón Þórðarson knattspyrnu-
stjóri, sem þjálfaði Sigurstein hjá ÍA
og einnig um skeið hjá Stoke, en milli
fjölskyldna Sigursteins og Guðjóns
mynduðust sterk tengsl. „Eitt haustið
þurfti ég að vera erlendis í á fjórðu
viku og þá fluttu Steini og Anna inn í
húsið og pössuðu tvo yngstu strákana
mína allan tímann. Heimili þeirra var
líka alltaf opið fyrir öllum strákunum
mínum og við höfum öll misst afar
góðan og tryggan trúnaðarvin.“
Guðjón lýsir Sigursteini sem
jafnlyndum og góðum dreng sem
var ávallt reiðubúinn til að takast á
við það sem ætlast var af honum.
„Hann leitaði alltaf lausna í stað þess
að væla og vera með vandræðagang.
En ekki skipti minna máli hversu staðráðinn hann var í að gera alltaf gott
úr hlutunum og sjá húmorinn í öllu. Ég hef oft sagt að karakterar fólks
kristallist á fótboltavellinum og þar var Steini eins og í lífinu sjálfu, lagði
sig allan fram og var jafnframt mjög hvetjandi fyrir alla í kringum sig. Steini
skilur eftir sig stórt skarð sem verður aldrei fyllt,“ segir Guðjón.
■ SKARÐ SEM EKKI VERÐUR FYLLT
MEISTARI Guðjón Þórðarson og Sigur-
steinn, sem klæddist sérhannaðri
ÍA og KR-treyju í stuðningsleiknum í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR BJARKI
„Ég var svo heppinn að kynnast Sigursteini þegar
hann kom til KR fyrir tímabilið 1999. KR hafði verið í
vandræðum með að vinna Íslandsmeistaratitil og ég
er sannfærður um að koma hans til félagsins hjálpaði
mikið til við að landa titlinum. Sigurvegarinn skein af
honum,“ segir Guðmundur Benediktsson sem lék með
Sigursteini hjá KR og kynntist honum og fjölskyldu hans
vel. Guðmundur bætir við að fátt hafi verið leiðinlegra en
að vera á móti Sigursteini á æfingum. „Hann ekki sérlega
skemmtilegur andstæðingur þegar hann var að vinna
mann, en þannig er það oft með þá sigursælustu. Það er
á hreinu að það var mun betra en hafa Steina í liði með
sér en á móti.“
Guðmundur segir það forréttindi að hafa fengið að
kynnast Sigursteini og söknuðurinn sé mikill. „Steini var
aldrei með neitt múður heldur gerði það vel sem hann
tók sér fyrir hendur og ætlaðist einnig til þess af öðrum.
Árangur hans sem þjálfari, þegar hann var svo nálægt því
að koma Leikni upp um deild, kom alls ekki á óvart því
þar var Steini bara að halda áfram því starfi sem hann
vann sem leikmaður.“
Guðmundur var einn þeirra leikmanna sem tóku þátt
í stuðningsleiknum milli ÍA og KR á Akranesi í sumar
og segir það hafa verið frábæran dag í alla staði. „Þar
sýndi það sig svart á hvítu hvaða hug allir báru og bera
til Steina. Allir voru tilbúnir að leggja sitt af mörkum og
settu það ekki fyrir sig hvar í heiminum þeir voru eða
hvernig stóð á hjá þeim. Þessu hefur maður líka tekið
eftir svo um munar síðustu mánuði og það segir það
sem segja þarf um Steina.“
■ SIGURVEGARINN SKEIN AF HONUM
LANGÞRÁÐIR TITLAR Sigursteinn Gíslason og Guðmundur
Benediktsson fagna bikarmeistaratitli KR-inga haustið 1999
ásamt félögum sínum. MYND/HILMAR ÞÓR GUÐMUNDSSON
SÁ NÍUNDI Haustið 2003 fagnaði Sigursteinn sínum níunda Íslandsmeistaratitli
ásamt Magnúsi Sveini syni sínum. Sigursteinn grínaðist gjarnan með að KR yrði ekki
Íslandsmeistari fyrr en hann sjálfur sneri aftur til félagsins, en sú varð einmitt raunin.
MYND/EINAR ÓLASON
BESTUR Sigursteinn var valinn leikmaður
tímabilsins 1994, en Skagamenn unnu
fimm Íslandsmót í röð á árunum 1992
til 1996. MYND/BRYNJAR GAUTI SVEINSSON
Á SKIPASKAGA Sigursteinn var mikilvægur hlekkur í hinu sigursæla liði ÍA í upphafi
tíunda áratugarins.
ÞJÁLFARINN Sigursteinn þjálfaði Leikni frá 2008 til 2011. Hér er hann í leik gegn Haukum sumarið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI